Morgunblaðið - 28.02.2022, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.02.2022, Qupperneq 32
FULLKOMIN ÞÆGINDI FALLEG HÖNNUN OG ÞÆGINDI PANDORA HÆGINDASTÓLAR HLEÐSLUSTÓLLMEÐ 3 MÓTORUM STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU – EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI ZERO GRAVITY Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Ástin og dauðinn er yfirskrift hádegis- tónleika í Hafnar- borg á morgun, þriðjudag, þar sem Hanna Þóra Guð- brandsdóttir sópran og Antonía Hevesi píanóleikari koma fram og flytja meðal annars aríur eftir ítölsku tónskáldin Puccini og Verdi. Húsið verður opnað kl. 11.30 og tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis. Hanna Þóra lauk söngnámi við Söngskólann í Reykjavík 2005 og menntaði sig í framhaldinu erlendis. Hún hefur sungið sem einsöngvari með ýmsum kórum og við kirkjulegar athafnir. Eins hefur hún oft komið fram á veg- um Íslensku óperunnar, jafnt með kór óperunnar og sem einsöngvari. Hanna Þóra var valin bæjarlistamaður Akra- ness 2011, en hún hefur lagt áherslu á að efla menn- ingarlíf bæjarfélags síns, Akraness, og Vesturlands. Antonía Hevesi Hanna Þóra Guðbrandsdóttir Hanna Þóra og Antonía koma fram MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 59. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Ítalía renndi sér upp að hlið Íslands með sanngjörnum sigri, 95:87, í undankeppni HM karla í körfuknattleik í gær en liðin áttust við í Bologna. Liðin mættust tvíveg- is á fjórum dögum en Ísland vann í Hafnarfirði 107:105 á fimmtudaginn eftir tvíframlengdan leik sem lengi verður í minnum hafður. »26 Ítölum tókst að svara fyrir sig gegn Íslendingum í Bologna í gær ÍÞRÓTTIR MENNING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslenskukennsla Sambands ís- lenskra kristniboðsfélaga er í Kristniboðssalnum við Háaleitis- braut í Reykjavík sjöunda veturinn í röð. Helga Vilborg Sigurjónsdóttir, kristniboði og tónlistarkennari, tók við kennslunni haustið 2019 og sinn- ir henni ásamt öðrum kennara. Margir sjálfboðaliðar aðstoða, m.a. kennarar á eftirlaunum, og nýir sjálfboðaliðar eru velkomnir. Yfir 90 nemendur eru skráðir á vormisseri. „Ég sá um foreldramorgna í tveimur þjóðkirkjusöfnuðum. Við Agnes T. Ragnarsson vinkona mín kynntumst þar mörgum erlendum mæðrum. Þær gátu ekki sótt ís- lenskunámskeið sem öll voru á kvöldin, auk þess sem ekki mátti koma með börn,“ sagði Helga Vil- borg. Hún ræddi þetta við konur í Kristniboðssambandinu og var ákveðið að hefja íslenskukennslu fyrir mæðurnar. Kristín Bjarnadótt- ir kristniboði og Agnes komu nám- skeiðunum af stað. Kennsluna sóttu í upphafi aðallega mæður með ung börn. Svo fór þetta að spyrjast út og fleiri bættust í hópinn. „Nú er meiri hluti nemenda flótta- menn og hælisleitendur. Konur eru enn í miklum meiri hluta og börn eru alltaf velkomin með foreldrum sín- um,“ sagði Helga Vilborg. „Við höf- um aldrei sagt nei við neinn sem vill koma. Það hafa verið allt að 80 nem- endur í einu sem þá hefur verið skipt upp í smærri hópa vegna samkomu- takmarkana. Þegar þær voru sem mestar í fyrra héldum við áfram og ég var þá með níu nemendur í einu. Við sáum hvað þetta var mikilvægt fyrir fólkið. Margir í þessum hópi eru mjög einangraðir og þetta eini staðurinn þar sem sumir hitta annað fólk.“ Stór hluti nemenda eru músl- imar eða hindúar. „Þeir vita að við erum kristin en við erum ekki predika í íslensku- kennslunni. Við viljum fyrst og fremst mæta fólkinu með kærleika,“ sagði Helga Vilborg. Nemendur hafa verið frá tíu ára og upp í áttræðisaldur. Stærstu hóp- arnir nú eru frá Venesúela og Afg- anistan. Venesúelabúarnir eru margir vel menntaðir og vanir að læra. Á hinn bóginn er menntunar- stig Afgananna ekki eins hátt, sér- staklega hjá konunum sem sumar hafa aldrei áður gengið í skóla og eru hvorki læsar né skrifandi. Nemendurnir tala margir aðeins sitt móðurmál og ekki neina ensku. Stuðst er við kennsluaðferð sem byggist mikið á myndum, látbragði, söng og föndri. Fólkið lærir íslensk- una svolítið eins og mállaus, ólæs og óskrifandi börn læra móðurmálið. Íslenskunemar Nemendur eru duglegir og áhugasamir um að læra málið. Helga Vilborg er fremst, önnur f.v. Íslenskukennslan sem er umvafin kærleika - Kennslan byggist mikið á myndum, látbragði og söng

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.