Morgunblaðið - 28.02.2022, Page 32
FULLKOMIN
ÞÆGINDI
FALLEG
HÖNNUN OG
ÞÆGINDI
PANDORA
HÆGINDASTÓLAR
HLEÐSLUSTÓLLMEÐ 3 MÓTORUM
STILLANLEG HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
– EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI
ZERO
GRAVITY
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Ástin og dauðinn er
yfirskrift hádegis-
tónleika í Hafnar-
borg á morgun,
þriðjudag, þar sem
Hanna Þóra Guð-
brandsdóttir sópran
og Antonía Hevesi
píanóleikari koma
fram og flytja meðal
annars aríur eftir ítölsku tónskáldin Puccini og Verdi.
Húsið verður opnað kl. 11.30 og tónleikarnir hefjast kl. 12
og standa yfir í um hálfa klukkustund. Tónleikarnir eru
öllum opnir á meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis.
Hanna Þóra lauk söngnámi við Söngskólann í Reykjavík
2005 og menntaði sig í framhaldinu erlendis. Hún hefur
sungið sem einsöngvari með ýmsum kórum og við
kirkjulegar athafnir. Eins hefur hún oft komið fram á veg-
um Íslensku óperunnar, jafnt með kór óperunnar og sem
einsöngvari. Hanna Þóra var valin bæjarlistamaður Akra-
ness 2011, en hún hefur lagt áherslu á að efla menn-
ingarlíf bæjarfélags síns, Akraness, og Vesturlands.
Antonía
Hevesi
Hanna Þóra
Guðbrandsdóttir
Hanna Þóra og Antonía koma fram
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 59. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Ítalía renndi sér upp að hlið Íslands með sanngjörnum
sigri, 95:87, í undankeppni HM karla í körfuknattleik í
gær en liðin áttust við í Bologna. Liðin mættust tvíveg-
is á fjórum dögum en Ísland vann í Hafnarfirði 107:105
á fimmtudaginn eftir tvíframlengdan leik sem lengi
verður í minnum hafður. »26
Ítölum tókst að svara fyrir sig gegn
Íslendingum í Bologna í gær
ÍÞRÓTTIR MENNING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Íslenskukennsla Sambands ís-
lenskra kristniboðsfélaga er í
Kristniboðssalnum við Háaleitis-
braut í Reykjavík sjöunda veturinn í
röð. Helga Vilborg Sigurjónsdóttir,
kristniboði og tónlistarkennari, tók
við kennslunni haustið 2019 og sinn-
ir henni ásamt öðrum kennara.
Margir sjálfboðaliðar aðstoða, m.a.
kennarar á eftirlaunum, og nýir
sjálfboðaliðar eru velkomnir. Yfir 90
nemendur eru skráðir á vormisseri.
„Ég sá um foreldramorgna í
tveimur þjóðkirkjusöfnuðum. Við
Agnes T. Ragnarsson vinkona mín
kynntumst þar mörgum erlendum
mæðrum. Þær gátu ekki sótt ís-
lenskunámskeið sem öll voru á
kvöldin, auk þess sem ekki mátti
koma með börn,“ sagði Helga Vil-
borg. Hún ræddi þetta við konur í
Kristniboðssambandinu og var
ákveðið að hefja íslenskukennslu
fyrir mæðurnar. Kristín Bjarnadótt-
ir kristniboði og Agnes komu nám-
skeiðunum af stað. Kennsluna sóttu í
upphafi aðallega mæður með ung
börn. Svo fór þetta að spyrjast út og
fleiri bættust í hópinn.
„Nú er meiri hluti nemenda flótta-
menn og hælisleitendur. Konur eru
enn í miklum meiri hluta og börn eru
alltaf velkomin með foreldrum sín-
um,“ sagði Helga Vilborg. „Við höf-
um aldrei sagt nei við neinn sem vill
koma. Það hafa verið allt að 80 nem-
endur í einu sem þá hefur verið skipt
upp í smærri hópa vegna samkomu-
takmarkana. Þegar þær voru sem
mestar í fyrra héldum við áfram og
ég var þá með níu nemendur í einu.
Við sáum hvað þetta var mikilvægt
fyrir fólkið. Margir í þessum hópi
eru mjög einangraðir og þetta eini
staðurinn þar sem sumir hitta annað
fólk.“ Stór hluti nemenda eru músl-
imar eða hindúar.
„Þeir vita að við erum kristin en
við erum ekki predika í íslensku-
kennslunni. Við viljum fyrst og
fremst mæta fólkinu með kærleika,“
sagði Helga Vilborg.
Nemendur hafa verið frá tíu ára
og upp í áttræðisaldur. Stærstu hóp-
arnir nú eru frá Venesúela og Afg-
anistan. Venesúelabúarnir eru
margir vel menntaðir og vanir að
læra. Á hinn bóginn er menntunar-
stig Afgananna ekki eins hátt, sér-
staklega hjá konunum sem sumar
hafa aldrei áður gengið í skóla og
eru hvorki læsar né skrifandi.
Nemendurnir tala margir aðeins
sitt móðurmál og ekki neina ensku.
Stuðst er við kennsluaðferð sem
byggist mikið á myndum, látbragði,
söng og föndri. Fólkið lærir íslensk-
una svolítið eins og mállaus, ólæs og
óskrifandi börn læra móðurmálið.
Íslenskunemar Nemendur eru duglegir og áhugasamir um að læra málið. Helga Vilborg er fremst, önnur f.v.
Íslenskukennslan sem
er umvafin kærleika
- Kennslan byggist mikið á myndum, látbragði og söng