Morgunblaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2022FRÉTTIR
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
GENGISMÁL
Miðgengi evru var 142,4 krónur í
gær og þarf að leita aftur til tímans
fyrir kórónuveirufaraldurinn til að
finna sambærileg gildi. Þannig kost-
aði evran tæplega 143 krónur vikuna
áður en faraldurinn hófst með full-
um þunga í marsmánuði 2020.
Með því er að rætast sú spá
Analytica, sem fjallað var um í Við-
skiptaMogganum fyrr á þessu ári,
að krónan myndi styrkjast í ár. Sam-
kvæmt miðgildi þeirrar spár mun
evran kosta um 135 kr. í árslok.
„Verðbólguþrýstingur er nokkur
og horfur á að Seðlabankinn haldi
áfram í vaxtahækkunarferli. Búast
má við að þetta leiði til aukins vaxta-
munar við útlönd og styðji við gengi
krónunnar,“ sagði Yngvi Harðarson,
framkvæmdastjóri Analytica, af því
tilefni. Þau orð vekja athygli í ljósi
styrkingar krónu en greiningarað-
ilar vænta almennt að Seðlabankinn
hækki vexti í dag. baldura@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Reiknað er með að Seðlabankinn greini frá vaxtahækkun í dag.
Krónan styrkist enn
frekar gagnvart evru
Þessi nýja þjónusta Toyota ber yfir-
skriftina Kinto ONE og er hluti af
nýrri stefnu fyrirtækisins á alþjóða-
vísu. Haukur Þór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Okkar bílaleigu, sem
heldur utan um Kinto-þjónustuna
hér á landi, segir í samtali við Við-
skiptaMoggann að leigan henti þeim
sem þurfi að hafa aðgang að bíl en
vilji ekki endilega binda fjármagn
með kaupum á einum slíkum.
Allt er innifalið í leiguverði nema
bensínkostnaður og þrif, þar með
talið tryggingar, bifreiðagjald, dekk
og dekkjaskipti auk reglubundins
viðhalds.
Bíllinn er kaskótryggður sem
þýðir að ef notandi verður valdur að
tjóni greiðir hann eigin áhættu upp
á að hámarki 177 þúsund krónur
fyrir hvert einstakt tjón.
Fjölbreyttari þarfir
Forsaga málsins er sú að sögn
Hauks að árið 2019 stofnaði Toyota
fyrirtækið Kinto með það að mark-
miði að koma til móts við stækkandi
hóp viðskiptavina sem vilja leigja
bíla til skemmri eða lengri tíma og
hafa fjölbreyttari þarfir en hefð-
bundnir kaupendur sem eiga sinn bíl
til lengri tíma og sinna þannig öllum
sínum ferðaþörfum.
Ástæðan fyrir þessu skrefi Toyota
er að sögn Hauks að móðurfyrir-
tækið skilgreinir sig ekki lengur
sem bílaframleiðanda eingöngu,
heldur fyrirtæki sem hefur á boð-
stólum margvíslegar lausnir til að
auðvelda öllu fólki að komast á milli
staða.
Haukur segir að langtímaleiga á
Toyota- og Lexus-bílum sé einungis
fyrsta skrefið því í raun séu engin
takmörk á því hvað hægt er að gera
innan Kinto-hugmyndafræðinnar.
Ísland er fimmtánda landið sem
byrjar með Kinto.
Aðspurður segir Haukur að í
framtíðinni snúist þetta um farar-
tæki af öllum stærðum og gerðum.
„Þetta snýst bara um að koma fólki
frá a til b. Toyota er nú þegar búið
að pakka saman sex mismunandi
Kinto-þjónustum, allt frá þessari
langtímaleigu eins og við erum að
byrja með upp í svokallað Car Pool-
ing, þar sem fólk deilir bíl.“
Enn er þó óvíst að sögn Hauks
hvort sú þjónusta verður boðin hér á
landi. „Slíkt deilibílafyrirkomulag er
nú þegar komið í prófun hjá Toyota í
Svíþjóð og á Írlandi sem tilrauna-
verkefni.
Netsíða opnuð á morgun
Haukur segir að á morgun, 10.
febrúar, verði opnuð netsíða á vef-
slóðinni kinto.is þar sem hægt verð-
ur að skoða verð og þjónustu-
framboð.
Sem dæmi um opnunartilboð á
heimasíðunni verður í boði leiga á
Yaris-bíl til 36 mánaða á 83 þúsund
krónur á mánuði. Annað tilboð
hljóðar upp á 89 þúsund krónur fyr-
ir leigu á Yaris í eitt ár.
Kórónuveiran hefur valdið mikl-
um töfum í bílaframleiðslu í heim-
inum. Verður til nóg af bílum handa
öllum?
„Já, við ætlum að passa upp á að
hafa þokkalegan lager. Fram-
leiðslugetan hjá okkar birgjum,
Toyota og Lexus, er orðin fín og við
horfum ekki á það sem vandamál.
Það er því engin hámarksstærð á
flotanum okkar og við bjóðum alla
velkomna.“
Allir bílar í boði
Aðspurður segir Haukur að allir
bílar sem Toyota og Lexus fram-
leiðir verði í boði í Kinto-þjónust-
unni.
„Þessi þróun er bara viðbragð við
þeirri þróun sem er að verða í heim-
inum. Hinn vestræni heimur er að
fara frá því að eiga hluti yfir í að
nota hluti. Það er mikil aukning í
svona þjónustu, hvort sem litið er til
Bandaríkjanna, Bretlands eða
Norðurlandanna. Þetta er komið til
að vera.“
Auðvelda öll-
um að komast
á milli staða
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Frá og með morgundeg-
inum geta viðskiptavinir
Toyota leigt sér Toyota- eða
Lexus-bíl til 12-36 mánaða.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Haukur Þór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Okkar bílaleigu, sem heldur utan um Kinto-þjónustuna hér á landi.
Kinto One-þjónusta Okkar bílaleigu er hluti af Kinto Europe sem er með
höfuðstöðvar í Köln í Þýskalandi.
Eins og fram kemur á heimasíðu Toyota Motor Europe (TME) var Kinto
Europe upphaflega hleypt af stokkunum snemma árs 2019 og eins og
segir í samtalinu hér til hliðar, er hugmyndafræðin sú að hjálpa öllum að
færa sig frá punkti a til punkts b.
Kinto Europe er að 51% hluta í eigu Toyota Financial Services Corpora-
tion (TFSC) í Japan en hin 49% eru í eigu TME.
Bæði félögin eru að fullu í eigu Toyota-bílaframleiðandans japanska.
One, Flex, Share, Ride, Join og Go
Á heimasíðunni er þjónusta Kinto tíunduð en auk Kinto One, sem fer af
stað hér á landi á morgun, eru fimm aðrar þjónustuleiðir í boði í Evrópu.
Kinto Flex er þannig áskriftarþjónusta farartækja, Kinto Share er deili-
þjónusta farartækja þar sem ólíkir aðilar sameinast í bíl. Kinto Ride er
þjónusta eins og Uber og Lyft þar sem bílstjóri ekur bílnum og Kinto Join
er deiliþjónusta eins og Kinto Share, nema fyrir fyrirtæki. Að lokum er það
Kinto Go sem er alhliða og víðtæk lausn til að koma fólki á milli staða. Þar
er um samhæfingu og skipulag ferðalags að ræða, þar sem almennings-
samgöngur koma meðal annars við sögu.
Hugmyndafræðin inniheldur
sex mismunandi þjónustuleiðir