Morgunblaðið - 09.02.2022, Side 9
Tíu milljón flöskur liggja í kalksteinshellum hússins. Það undirstrikar hversu
langan tíma það tekur að búa til hið fullkomna kampavín. Stundum áratugi.
1979 er eft-
irsóttur árgangur.
Þrjátíu metra niður í jörðina. Það er ekki fyrir fólk með innilokunarkennd að
sækja þessa íverustaði kampavínsins heim. Brattar tröppurnar eru oft hálar.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2022 9SJÓNARHÓLL
GEFÐU STARFSFÓLKINU
DAGAMUN
Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
Ó
byggðanefnd var sett á laggirnar með þjóð-
lendulögum nr. 58/1998 til þess að fara með þrí-
þætt hlutverk: (i) Að kanna og skera úr um
hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og
eignarlanda; (ii) Að skera úr um mörk þess hluta þjóð-
lendu sem nýttur er sem afréttur; og (iii) Að úrskurða um
eignarréttindi innan þjóðlendna. Við setningu laganna var
talið að þessi vegferð myndi taka innan við 10 ár og gert
var ráð fyrir því að verkefni óbyggðanefndar yrði lokið ár-
ið 2007. Núna, hátt í 25 árum síðar,
situr óbyggðanefnd hins vegar
sem fastast en samkvæmt gildandi
lögum er gert ráð fyrir að verkefni
nefndarinnar ljúki árið 2024. Það
gæti þó talist bjartsýnt miðað við
nýjustu vendingar enda hefur
óbyggðanefnd nú til skoðunar að
beita endurupptökuheimild sem
kom inn í þjóðlendulögin árin
2020.
Samkvæmt endurupptökuheim-
ildinni er óbyggðanefnd heimilt að
taka til meðferðar svæði sem hafa
áður sætt meðferð hennar ef
nefndin hefur í úrskurði sínum
gert athugasemd við kröfugerð
ríkisins. Jafnframt var ríkinu
heimilað að auka við kröfur í máli
sem er til meðferðar hjá óbyggða-
nefnd ef nefndin myndi ekki meta
ríkinu það til vanrækslu að hafa
ekki gert kröfur sínar í einu lagi í
öndverðu og að hinar auknu kröf-
ur myndu ekki seinka máls-
meðferð um of. Í umsögn um
frumvarpið á sínum tíma gerðu Landssamtök landeig-
enda alvarlegar athugasemdir við þessi ákvæði. Töldu
samtökin að ákvæðin væru til þess fallin að viðhalda óör-
yggi landeiganda varðandi eignarrétt sinn og að þau færu
gegn því meginmarkmiði laganna að ekki myndi ríkja
óvissa um eignarréttarlega stöðu landsvæða. Þá töldu þau
jafnframt að ákvæðin kynnu að fara gegn 70. gr. stjórn-
arskrárinngar um réttláta málsmeðferð og 72. gr. stjórn-
arskrárinnar um vernd eignarréttar.
Áhyggjur landeigenda virðast ekki hafa verið að
ástæðulausu enda hefur sérstök óbyggðanefnd til skoð-
unar hvort taka beri til meðferðar að nýju 17 landsvæði
sem áður hafa sætt meðferð hjá óbyggðanefnd. Líkt og áð-
ur greinir er endurupptökuheimildin takmörkuð við svæði
þar sem óbyggðanefnd hefur gert athugasemdir við kröf-
ur ríkisins í úrskurði. Nú virðist deilt um hversu afmörkuð
slík athugasemd þurfi að vera enda
telja landeigendur að einungis hafi
verið gerð slík athugasemd í 5 af
þeim 17 málum sem eru til um-
ræðu. Mun þetta væntanlega auka
enn frekar á lagaflækjurnar sem
eru fram undan.
Ljóst er að einhver bið verður
eftir því að öll kurl verði komin til
grafar í málefnum óbyggðanefnd-
ar. Lögmenn landeigenda hafa
haldið því fram að tvöföld eða sí-
endurtekin málsmeðferð óbyggða-
nefndar á svæðum þar sem máls-
meðferð hefur verið lokið og
kröfugerð íslenska ríkisins aukin
verulega brjóta gegn reglum ís-
lenskrar stjórnskipunar um rétt-
láta málsmeðferð, þar á meðal
banni við tvöfaldri málsmeðferð og
friðhelgi eignarréttarins. Boðað
hefur verið að látið verði reyna á
þetta álitaefni fyrir dómi ef nauð-
syn krefur og þar með þarf að
skera úr um þessi atriði áður en
hægt verður að taka efnislega af-
stöðu til eignarréttar á þeim svæðum sem um ræðir. Til
viðbótar á óbyggðanefnd enn eftir að úrskurða um svæði í
Ísafjarðarsýslum, á Austfjörðum og eyjum og skerjum
umhverfis landið sem áætlað er að ljúki árið 2024. Stuðull-
inn á það að verkefni óbyggðanefndar, sem nú þegar eru
komin 15 ár fram yfir upphaflega áætlun, muni dragast
enn frekar á langinn er því orðinn ansi lágur.
Óbyggðanefnd situr
sem fastast
LÖGFRÆÐI
Ari Guðjónsson
yfirlögfræðingur Icelandair Group og lögmaður
”
Áhyggjur landeigenda
virðast ekki hafa verið
að ástæðulausu enda
hefur sérstök óbyggða-
nefnd til skoðunar hvort
taka beri til meðferðar
að nýju 17 landsvæði
sem áður hafa sætt
meðferð hjá óbyggða-
nefnd. Líkt og áður
greinir er endurupp-
tökuheimildin takmörk-
uð við svæði þar sem
óbyggðanefnd hefur
gert athugasemdir við
kröfur ríkisins í úrskurði.