Morgunblaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2022FRÉTTIR Snjöll öryggislausn fyrir nútímaheimili Nánar á securitas.is/heimavorn Sími 580 7000 www.securitas.is VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR Mesta hækkun KVIKA +1,67% 24,40 S&P 500 NASDAQ +1,24% 14.050,536 +0,30% 4.491,09 +0,54% 7.569,73 FTSE 100 NIKKEI 225 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. +0,16% 27.284,52 90 70 50 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)GULLVERÐ ($/únsu) 9.8.'21 1.500 2.000 1.723,4 9.8.'21 90,42 8.2.'22 69,04 8.2.'22 1.821,8 Mesta lækkun ICEAIR -1,41% 2,10 Þorgeir Frímann Óðinsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda, IGI, og framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrir- tækisins Directive Games, segir að störfum í íslenskum tölvuleikjaiðnaði hafi fjölgað um 35% á síðasta ári, eða úr 322 starfsmönnum í 435. Eins og fram kom í samtali Við- skiptaMoggans á dögunum við Stefán Þór Björnsson, fjármálastjóra tölvu- leikjafyrirtækisins Solid Clouds, er útlit fyrir að fjöldi starfandi í grein- inni, annarra en starfa hjá risanum CCP, fari samtals fram úr stór- fyrirtækinu á þessu ári. Flestir bæta við sig Þorgeir segir stóru fréttirnar þær að mikil fjölgun sé að verða í grein- inni og flest fyrirtæki að bæta við miklum fjölda starfsmanna. „Hér eru nú sex fyrirtæki sem eru með meira en tuttugu starfsmenn hvert. Okkar fyrirtæki, Directive Games, hefur til dæmis vaxið úr tveimur starfs- mönnum á íslensku skrifstofunni í byrjun árs 2020 upp í 21 starfsmann í janúar á þessu ári og við erum að auglýsa eftir fleirum. Það stefnir í að umsvif okkar verði þreföld innan tíð- ar miðað við það sem var fyrir nokkr- um mánuðum. Þá má nefna spútnik-fyrirtækið Myrkur Games sem hyggst fjölga upp í 35 starfsmenn á þessu ári. Svip- uð staða er hjá Mainframe Industries og 1939 Games,“ segir Þorgeir og segir mikla grósku í geiranum. Fjárfesting 4,4 milljarðar 2021 Hann segir að fjárfesting í íslensk- um tölvuleikjageira á síðasta ári, að CCP frátöldu, hafi verið 35 milljónir Bandaríkjadala eða tæplega 4,4 millj- arðar íslenskra króna. Þar vegi þungt 22 milljóna dala fjárfesting í Main- frame og 5 m. dala fjárfesting í 1939. Þorgeir segir að fyrirtækin séu far- in að skila vaxandi útflutningstekjum og af því sé hann stoltur. „Við í íslenskum leikjaiðnaði erum líka í skýjunum með stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sem sýnir að yf- irvöldum er full alvara með að treysta stoðir íslensks hugverkaiðnaðar.“ Þorgeir nefnir í því sambandi betr- umbætur á rekstrarumhverfi og tímabundið endurgreiðsluhlutfall vegna rannsókna og þróunarverkefna sem fest hafi verið í sessi. Svigrúm líf- eyrissjóða og hvatar fyrir ein- staklinga til fjárfestingar í nýsköpun hafi einnig verið aukið. „Hitt stóra at- riðið er skilningur á fyrirsjáanlegum mannauðsskorti í greininni. Þetta tæklar sáttmálinn með fyrirætlunum um að auka brautargengi erlendra sérfræðinga til landsins og með inn- spýtingu í STEM-greina menntun.“ Nýir landvinningar Um stöðuna hjá Directive Games segir Þorgeir að fyrirtækið sigli nú hraðbyri inn í frekari landvinninga með nýjum tölvuleikjum, en hingað til hefur starfsemin verið í bland þróun eigin verkefna og vinna fyrir þriðja aðila. „Það má segja að við höfum verið svona skuggahöfundar fyrir er- lend stórfyrirtæki. Við höfum unnið fyrir mörg af stærstu tæknifyrir- tækjum í heimi að ýmiss konar verk- efnum. Það þýðir að fyrirtækið hefur alltaf haft nægar tekjur og ekki þurft að reiða sig á hlutafjáraukningar.“ Nýr tölvuleikur Directive Games er nú í alfa-prófunum svokölluðum og fer síðan í beta-prófanir á næstu mánuðum að sögn Þorgeirs. „Það verkefni gengur ágætlega. Í þessu prufuferli verður sannreynt hvort leikurinn eigi erindi á alþjóðamarkað eða hvort við þurfum að gera frekari breytingar. Þá er annar leikur í burð- arliðnum, en hann er meðal annars ástæðan fyrir því að okkur vantar meira starfsfólk.“ Útlit er fyrir að sögn Þorgeirs að rafíþróttahlið fyrrnefnda leiksins, sem ber heitið The Machines Arena (TMA), verði keyrð af Faceit, raf- íþróttavettvangi með 22 milljónum notenda. „Það veitir okkur góðan að- gang að miklum fjölda spilara.“ Íþyngjandi regluverk í Kína Directive Games er bæði með skrifstofur í Kína og Los Angeles. Þorgeir segir að vegna íþyngjandi regluverks í Kína varðandi leikja- iðnað og nýrra áherslna ríkisstjórnar Íslands á hugverkaiðnað sé líklegra að fyrirsjáanleg mannauðsaukning fyrirtækisins verði hér á landi frekar en í Kína. Varðandi skrifstofu félags- ins í Los Angeles segir Þorgeir að hún hafi verið stofnsett í aðdraganda Covid sem hafi hægt á uppbygginu. Nú séu þó blikur á lofti um að sú upp- bygging fari af stað aftur. Starfsfólki fjölgaði um 35% Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Íslenskur leikjaiðnaður er í mikilli sókn að sögn formanns íslenskra leikjaframleiðenda. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Þorgeir segir að leikjafyrirtækin séu farin að skila vaxandi útflutningstekjum og af því sé hann stoltur. ELDSNEYTI Skeljungur hagnaðist um rúma 6,9 milljarða króna á árinu 2021. Jókst hagnaðurinn verulega frá fyrra ári þegar hann nam 1.087 milljónum króna. EBITDA-hagnaður nam 3.665 milljónum og var EBITDA- hlutfallið 35%. Framlegð nam 10,5 milljörðum króna og jókst um 10,6% frá fyrra ári. Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 46,4%, sam- anborið við 8,1% á fyrra ári. Hand- bært fé frá rekstri var 2.754 millj- ónir og jókst úr 1.812 milljónum árið 2020. Eigið fé í lok árs 2021 var 16,5 milljarðar króna og eig- infjárhlutfall félagsins var 49,9%. Forsvarsmenn félagsins telja að af- koma félagsins verði jákvæð um 7,6-8,3 milljarða króna eftir skatta nú í ár að teknu tilliti til vænts hagnaðar af fasteignum sem talinn er verða 5 milljarðar króna. Skeljungur hagnast um 7 milljarða kr. Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon Skeljungur margfaldaði hagnað sinn á nýliðnu ári miðað við árið 2020.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.