Morgunblaðið - 09.02.2022, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2022 11VIÐTAL
Hafrún Friðriksdóttir hefur svo sannarlega
látið til sín taka í alþjóðlega lyfjageiranum:
fyrst hjá Omega Pharma, svo hjá Actavis, þá
Allergan og loks hjá ísraelska lyfjarisanum
Teva frá 2017.
Hún hlaut á dögunum viðurkenningu FKA,
Félags kvenna í atvinnulífinu, og nefndi dóm-
nefnd félagsins sérstaklega að Hafrún hefði
ekki aðeins vakið athygli fyrir faglega færni
sína heldur líka skoðanir sínar og litríkan per-
sónuleika.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Helstu áskorarnirnar eru tengdar kórónu-
veirufaraldrinum. Hjá þeim hluta Teva sem
ég er ábyrg fyrir hefur ástandið haft áhrif á
klínískar rannsóknir í öllum fösum. Einnig
hefur faraldurinn raskað afhendingu á ýmsum
vörum sem við notum í okkar daglega rekstri.
Faraldurinn hefur breytt rekstrarumhverfi
allra lyfjafyrirtækja á margan hátt og fara t.d.
kynningar á nýjum lyfjum núna fram á netinu
frekar en með heimsóknum til lækna eins og
áður.
Hver var síðasta ráðstefnan sem
þú sóttir?
Ég tók þátt í pallborðsumræðum á ráð-
stefnu í janúar á þessu ári. Umræðan snerist
um hvernig stóru lyfjafyrirtækin í heiminum
gætu unnið betur saman að rannsóknum og
þróun.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á hvernig þú starfar?
Why Should Anyone Be Led by You eftir
Rob Goffe og Gareth Jones er bók sem er í
uppáhaldi hjá mér.
Hvernig heldurðu þekkingu þinni við?
Þar sem ég vinn við rannsóknir og þróun
snýst starf mitt að mörgu leyti um að kynna
mér nýjungar á því sviði; þ.e. fylgjast með því
sem er að gerast hverju sinni og innleiða nýj-
ungar í starfseminni.
Hugsarðu vel um líkamann?
Skokk hef ég stundað í fjörutíu ár og tekið
þátt í maraþonhlaupum um allan heim. Þá er
ég einnig dugleg að borða súkuklaði.
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Það er mikill munur á rekstrarumhverfi
lyfjafyrirtækja á milli landa en við erum með
lyf á markaði í meira en sextíu löndum víðs-
vegar um heiminn. Flest lönd Evrópu eru
frekar stöðug hvað lyfjageirann varðar og
lyfjaverð að miklu leyti ákveðið ellegar sam-
þykkt af yfirvöldum í hverju landi. Í Banda-
ríkjunum ræðst lyfjaverð hins vegar mun
meira af framboði og eftirspurn, og fleiri þátt-
um.
Hvað gerirðu til að fá orku og
innblástur í starfi?
Samstarfsfólk mitt gefur mér innblástur og
mér þykja það forréttindi að fá að vinna með
jafn hæfileikaríku fólki og ég geri í dag.
SVIPMYND Hafrún Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarsviðs Teva Pharmaceuticals
Faraldurinn hefur truflað rannsóknir
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Mikið úrval af öryggisvörum
Verkfæri og festingar
vinnuföt fást einnig í
HAGI ehf • Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414 3700 • hagi@hagi.is • hagi.is • Hagi ehf HILTI
Opið: 8-18 virka daga – 10-12 laugardaga
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
EINKAHLUTAFÉLÖG
Nýskráningar einkahlutafélaga í
janúar 2022 voru 287 eða um 6%
færri en í janúar á síðasta ári þegar
þær voru 304. Þetta kemur fram á
vef Hagstofunnar.
Mest aukning nýskráninga frá
janúar í fyrra var úr 50 í 69 í bygg-
ingarstarfsemi og mannvirkjagerð á
meðan þeim fækkaði úr 37 í 26 í fast-
eignaviðskiptum, samkvæmt mati
Hagstofunnar.
Á vefnum má sjá að fjöldi ný-
skráninga á öllu árinu í fyrra var
3.224 félög en árið þar áður var fjöld-
inn 2.487. Aukningin á milli 2020 og
2021 var því tæplega þrjátíu prósent.
Morgunblaðið/ÞÖK
3.224 einkahlutafélög voru nýskráð í
fyrra að því er Hagstofan hermir.
Sex pró-
sent færri
ný félög
NÁM: MS í lyfjafræði frá Háskóla Ís-
lands 1987 og doktorspróf í eðlis-
lyfjafræði frá sama skóla 1997.
STÖRF: Sviðsstjóri hjá Omega
Pharma frá 1997 til 2002; ýmsar stöð-
ur hjá Actavis Group frá 2002 til 2015,
m.a. aðstoðarframkvæmdastjóri
rannsóknar- og þróunarsviðs; að-
stoðarframkvæmdastjóri og síðar
framkvæmdastjóri samheitalyfja-
sviðs Allergan frá 2015 til 2016; ýms-
ar stjórnunarstöður hjá Teva Pharma-
ceuticals frá 2017 síðast fram-
kvæmdastjóri rannsóknar- og
þróunarsviðs.
ÁHUGAMÁL: Ég hef stundað hlaup
og skokk í um það bil fjóra áratugi,
bæði utan vegar og á malbiki. Í tví-
gang hljóp ég maraþon í New York,
og einnig í Reykjavík, á Mývatni, í
London, Berlín, Búdapest, París, Chi-
cago og víðar.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ein af fimm
systkinum. Á sambýlismann og tvo
syni, tvær tengdadætur og fjögur
barnabörn.
HIN HLIÐIN
Hafrún bendir á þá áskorun
lyfjafyrirtækja að rekstrar-
umhverfi þeirra er mjög
breytilegt á milli landa.