Morgunblaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 1
FARALDURINN FLÆKTI MÁLINPÚTÍN ERTIL ALLSVÍS Kampavíns-Kalli og kjallararnir sem hann keypti í Reims 8 Það er hefð fyrir því að leiðtogar Rúss- lands fari sínu fram með því að vera óútreiknanlegir og uppátækjasamir. 10 VIÐSKIPTA 11 Hafrún Friðriksdóttir hjá lyfjarisanum Teva Pharma- ceuticals segir kórónuveirufaraldurinn hafa tor- veldað klínískar rannsóknir á lyfjum. MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2022 Tugmilljarða tekjuauki álveranna Álverð nálgaðist 3.200 dali tonnið í gær og hefur hækkað um ríflega 500 dali frá byrjun desember. Meðalverð í kauphöllinni með málma í London (LME) fór hæst í 3.180 dali í október og var þá yfir 50% hærra en í byrjun árs 2021. Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri viðskipta- þróunar hjá Norðuráli, segir orkukreppuna í Evrópu og Kína hafa dregið úr álframleiðslu í álf- unum. Með því hafi dregið úr framboðinu. „Það er almennur skortur á áli. Eftirspurnin er mikil, framboðið er að minnka. Meðan orku- kreppan er í gangi í Evrópu er heldur líklegra að það dragi úr framleiðslu. Nokkrir þættir leggjast á eitt í Evrópu. Deilur Rússa og Úkraínumanna hafa þrýst upp gasverði og þá er verið að loka kjarnorkuverum. Við það bætast hækkandi kol- efnisgjöld á orkuframleiðslu,“ segir Páll. Þessir þættir auki kostnað við álframleiðslu í Evrópu en séu hugsanlega ekki að öllu leyti komnir fram í álverði. Á Íslandi sé skortur á orku helst skýrður með stöðu miðlunarlóna Landsvirkjunar en vegna skerðinga minnki ársframleiðsla íslenskra álvera einnig. „Skerðingar Landsvirkjunar eru nauðsyn- legar og skiljanlegar en koma á óheppilegum tíma fyrir orkusækinn iðnað á Íslandi og orkufyr- irtækin. Það er ekki auðveld staða fyrir álverin á Íslandi að vera að framleiða minna en þau ætluðu að gera. Það er hart sótt á sölusamninga vegna skorts og tjón vegna skerðinganna er því miður töluvert,“ segir Páll. Eykur tekjurnar um ríflega 70 milljarða Álverð var að meðaltali 1.730 dalir 2020 en tæplega 2.490 dalir 2021. Íslensku álverin fram- leiddu 800 þús. tonn í fyrra og jukust tekjur þeirra því um yfir 70 ma. með hækkun álverðs. Við það bætast aukatekjur vegna virðisaukandi framleiðslu álveranna. Ekki síst álagning ÍSAL á álbolta en hún hefur fimmfaldast samanborið við 2020. Mun það ásamt almennri hækkun álverðs að óbreyttu rúmlega tvöfalda árstekjur ÍSAL milli 2020 og 2022, þ.e. yfir 40 milljarða aukning. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Viðskiptavinir íslensku álveranna vildu gjarnan kaupa meira ál frá íslensku álverunum, ef það væri í boði, en álverð er sögulega hátt. Frá 10. febrúar 2020 til 8. febrúar 2022, bandaríkjadalir á tonn Heimsmarkaðsverð á áli sl. tvö ár 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 2020 2021 2022 1.460 Heimild: LME/Bloomberg *8. feb. kl. 14.25 3.195*3.200 1.676 Reykjavíkurborg hefur samið við stærstu olíufélög landsins um stór- felldar breytingar á skipulagi mik- ilvægra lóða vítt og breitt um borg- ina. Margar þeirra verða nýttar undir uppbyggingu íbúðar- og verslunarhúsnæðis á komandi ár- um. Í flestum tilvikum er skipulagi borgarinnar breytt til þess að koma breytingunum til leiðar en að öðrum kosti hefðu olíufélögin getað haldið bensínafgreiðslu á lóðunum áfram. Þau umsvif eru þó á undan- haldi með hröðum orkuskiptum í samgöngum. Ekki liggur fyrir á þessum tíma- punkti hversu mikil verðmæti olíu- félögin fá afhent frá borginni en það mun m.a. ráðast af því hversu mikið byggingarmagn verður heim- ilað á lóðunum. Sækja fyrirtækin, eðli máls samkvæmt, fast að byggðin verði þétt og mikil. Þá á enn eftir að kynna nýja samninga um fleiri lóðir, sem lengri tíma tók að semja um. Afhenda fyrirtækjunum milljarða verðmæti Morgunblaðið/Kristinn Magnússon N1 mun hverfa af Ægisíðu 102 en fyrirtækið er sennilega með milljarða ábata. Olíufélögin munu breyta ásýnd borgarinnar á kom- andi árum. Með slaghamar og sög á lofti. 6 Global Fintech as a Service rapyd.net/is Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. EUR/ISK 9.8.'21 8.2.'22 160 155 150 145 140 135 147,85 142,25 Úrvalsvísitalan 3.700 3.500 3.300 3.100 2.900 2.700 9.8.'21 8.2.'22 3.313,02 3.227,28

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.