Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022 Það þyrfti ekki að spyrja að leikslokum réðust úrslit árása Rússa á Úkraínu af samúð um- heimsins. - - - Sigurði Sigurð- arsyni þótti í sínu bloggi útspil Sviss merkilegt er landið bannaði allt flug frá Rússlandi um lofthelgi þess: - - - Sviss er eyja, umkringd ESB- ríkjum sem þegar hafa bannað flug Rússa í Evrópu …“ Sigurður telur með hliðsjón af þessu for- dæmi að hinn kunni mannvinur, borgarstjórinn, gangi enn lengra og banni Rússum að lenda á Reykjavíkurflugvelli. - - - Sigurður telur að horfast verði í augu við bitran raunveruleik- ann: „Góða fólkið er svo gott og það lætur ekkert tækifæri ónotað til að auglýsa sig. Afar sterkt er að formæla Pútín, kalla hann heimsk- an, vitfirrtan, geðveikan og svo framvegis. Raunveruleikinn er hins vegar ekkert grín og stríð er enginn leikur. Jafnvel þó allur heimurinn sé á móti Rússum og all- ir fjölmiðlar tíundi stríðsrekst- urinn og greini frá hetjulegri vörn Úkraínumanna er ljóst að þeir eiga ekki nokkurn möguleika gegn árásarhernum. - - - Ekkert getur orðið þeim til bjargar nema önnur ríki komi þeim til aðstoðar á vígvellinum eða bylting verði heima við. - - - Hvorugt mun gerast.“ - - - En ekki má áfellast þá sem eiga ekkert eftir nema ljós von- arinnar þótt þeir ríghaldi í það. Sigurður Sigurðarson Grár veruleiki and- spænis veikri von STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Auðvitað gerist ofbeldi bara af hálfu gerenda, en það þarf líka að auka fræðslu og aðstoða og við er- um með allskonar aðgerðir sam- hliða. Þetta er bara ein af mörg- um,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri. Í gær var kynnt vitundarvakning gegn kynferðisofbeldi á djamminu sem Sigríður kveðst vonast til að komi til með að hafa fælingarmátt fyrir gerendur. Dómsmálaráðuneytið, ríkislög- reglustjóri og Neyðarlínan standa saman að vitundarvakningunni. Árið 2020, þegar samkomutak- markanir vegna Covid-19 voru harðastar, fækkaði tilkynntum nauðgunum um 43 prósent og segir Sigríður mikilvægt að fara ekki aft- ur í sama farið nú þegar skemmt- analífið er komið aftur í fullan gang. Hún segir vitundarvakn- inguna aðallega snúast um að virkja samfélagið allt gegn kyn- ferðisofbeldi. Byrlanir á djamminu hafa töluvert verið í umræðunni upp á síðkastið og aðspurð hvort sérstakar ráðastafanir séu gerðar til að reyna að sporna við þeim, segir Sigríður alla aðila hafa verið að skerpa á sínum ferlum varð- andi byrlanir. Samstarf aðila sem koma að skemmtanalífinu skipti líka miklu máli. Nánar er fjallað um þetta á mbl.is. solrun@mbl.is Allt samfélagið gegn kynferðisofbeldi - Vitundarvakning gegn kynferðisofbeldi á djamminu kynnt á fundi í gær Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kynning Sigríður á fundinum í gær. Eric Alton McVadon, fyrrverandi flotafor- ingi og yfirmaður Varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, lést í Bandaríkjunum 15. febrúar sl. eftir 15 ára stríð við Parkinson- sjúkdóminn. Hann fæddist í Baton Rouge í Louisiana 3. sept- ember 1936 og varð því 85 ára. McVadon lauk námi frá Tulane-háskóla 1958 og varð flug- maður í bandaríska sjóhernum 1960. Hann gegndi her- þjónustu í 35 ár og átti glæsilegan feril. Var m.a. yfirmaður á flugmóð- urskipinu USS Shangri-La í Miðjarð- arhafi 1967-68 þegar sex daga stríðið var háð. McVadon var við Naval War College í Newport, Rhode Island, 1969 og lauk þá meistaragáðu í al- þjóðastjórnmálum við George Wash- ington-háskóla. Auk ensku talaði hann og skrifaði japönsku, mandarín- kínversku og íslensku. Hann vann sig upp í stöðu tveggja stjarna vara- aðmíráls. McVadon stýrði varnarstöð sjó- hersins á Keflavíkurflugvelli 1982- 1984. Hann sneri aftur til Íslands sem æðsti yfirmaður varn- arliðsins 1986-1989 og var hér þegar leiðtoga- fundur Reagans og Gorbatsjovs var hald- inn. McVadon hélt þá kynningarávarp um Reagan forseta sem sýnt var um allan heim. Hann hélt fyr- irlestra víða um heim sem sérfræðingur um hernaðarumsvif Kín- verja. Að lokinni her- þjónustu var hann við ráðgjafarstörf í aldar- fjórðung. Hann var sæmdur flugorðu (Air Medal) eftir herþjónustu tvö tímabil í Víetnamstríðinu. Hann sat um tíma í herforingjaráðinu í Pentagon og starfaði sem varnarmálafulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Kína í stríð- inu í Írak. Fyrir það var hann sæmd- ur orðu (Defense Distinguished Ser- vice Medal). Hann var sæmdur hinni íslensku fálkaorðu, stórriddarakrossi með stjörnu, árið 1989. Eiginkona McVadon var Marshall Marie Phillips og kynntust þau í framhaldsskóla. Þau voru 64 ár í hjónabandi þar til hún lést í janúar 2021. Þau eignuðust fimm börn sem öll lifa föður sinn. Andlát Eric Alton McVadon flotaforingi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.