Morgunblaðið - 02.03.2022, Side 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MAGGA, HANN ER ALLUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... dagurinn sem ég
valdi þig.
ASNALEGA
VEKJARAKLUKKA
SJÁÐU HVAÐ KISI GERIR
VIÐ HNYKILINN!
ÉG HEFÖÐRUM
HNÖPPUM AÐ
HNEPPA!
MIKIÐ VILDI ÉG AÐ ÞÚ
KÍKTIR Á ÞETTA!
GÓÐANDAGINNOG
GLAÐANHAGINN!PILLIÐ
YKKURÁFÆTURÁÞESSUM
FRÁBÆRASÓLSKINSDEGI,
DÚLLURASSARNIRMÍNIR!
JIBBÍKÓLAKEI!
HEHE
tíð dragdrottningarinnar góðu, Lady
Gúgúlú.“ Svo eru bókuð nokkur
kynningarferðalög til útlanda á
árinu, en bækur Lilju koma nú út á
16 tungumálum.
Lilja hyggst ekki halda upp á af-
mælið með öðrum hætti en góðri mál-
tíð með nánustu fjölskyldu en hins
vegar hefur hún forsáð alls konar
matjurtum sem eiga að flytja í af-
mælisgjöfina frá eiginkonunni: glæsi-
legt gróðurhús sem væntanlegt er í
apríl. Þær hjónin eru búsettar við El-
liðavatnið í útjaðri höfuðborgarinnar
og njóta útivistarinnar í þeirri fallegu
náttúru sem þar er. Lilja er með
hænur í kofa í garðinum sem gefa vel
af sér af eggjum og þegar gróð-
urhúsið bætist við býst hún við því að
afla sjálf einhvers af þeim mat sem
hún eldar en Lilja er áhugamann-
eskja um matargerð og nýtur þess að
elda úr ferskum hráefnum.
Fjölskylda
Eiginkona Lilju er Margrét Pála
Ólafsdóttir, leikskólakennari og
frumkvöðull, f. 13.10. 1957 og þær
búa á Gilsbakka við Elliðavatn. For-
eldrar Margrétar Pálu eru hjónin
Kristín Gunnlaugsdóttir Oddsen,
húsfreyja á Hólsvöllum og Akureyri,
f. 22.12. 1922, d. 23.9. 1998 og Ólafur
Þorsteinn Stefánsson, bóndi á Hóls-
fjöllum og verkamaður á Akureyri, f.
30.1. 1917, d 13.1. 1999. Stjúpdóttir
Lilju er Brynja Jónsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur í Mosfellsbæ, f. 28.8.
1975, gift Gunnari Guðjónssyni
gluggasölumanni og þau eiga börnin
Móeyju Pálu, Agnar Inga, Lilju
Björk, Kötlu og Helga Blæ. Barna-
barnið er eitt: Adeline Brynja.
Systkini Lilju eru: 1) Sigríður Elfa,
listakona í Reykjavík, f. 18.1. 1962; 2)
Hjörtur Gísli, safnstjóri í Reykjavík,
f. 13.9. 1964 og 3) Þorgerður, lista-
kona í Tansaníu, f. 25.10. 1967.
Foreldrar Lilju eru hjónin Jóna
Kristín Sigurðardóttir, leikskóla-
starfsmaður í Reykjavík, f. 24. júlí
1940 og Sigurður Hjartarson, sagn-
fræðingur og kennari í Reykjavík, f.
23.8. 1941.
Lilja Svanbjörg
Sigurðardóttir
Gísli Jónsson
sjómaður og skáld í Bolungarvík
Elísabet Guðmundsdóttir
húsfreyja og verkakona í
Bolungarvík
Hjörtur Gísli Gíslason
verkamaður og rithöfundur á Akureyri
Lilja Sigurðardóttir
húsfreyja á Akureyri
Sigurður Hjartarson
sagnfræðingur og
kennari í Reykjavík
Sigurður Jakobsson
bóndi í A-Húnavatnssýslu
Ingibjörg Hólmfríður Sigurðardóttir
húsfreyja í A-Húnavatnssýslu
Hannes Sigurðsson
bóndi og hreppstjóri í Borgarfirði eystra
Sigríður Ingibjörg Eyjólfsdóttir
húsfreyja í Borgarfirði eystra
Sigurður Hannesson
húsasmíðameistari á Akureyri
Svanbjörg Baldvinsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Baldvin Þorvaldsson
bóndi í Eyjafirði
Snjólaug Filippía Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Eyjafirði
Ætt Lilju Svanbjargar Sigurðardóttur
Jóna Kristín Sigurðardóttir
leikskólastarfsmaður í
Reykjavík
Ég fékk góðan póst frá Pétri
syni mínum: „Steinar Þór
Sveinsson fór í Möðrudal í síðustu
viku og Herðubreið var með fal-
legan skýjahatt“:
Ferðast um í fötum hlýjum
finnast engin betri.
Herðubreið með hatt úr skýjum
heilsar mér að vetri.
Margt er ort um Pútín og Úkra-
ínu á Boðnarmiði. Hér er Þórarinn
Eldjárn:
Ein og fróm er óskin mín
Úkraínu- grimmum böðli:
Farðu í rófu og rass Pútín,
Rússar brátt þér steypa úr söðli.
Sigrún Haraldsdóttir yrkir:
Hálf er valtur heimurinn,
hörmungar í augsýn.
Drífðu í því drottinn minn
að drepa fantinn Pútín.
Þórunn Hafstein kveður með
þeirri athugasemd að smá erfitt sé
að ríma við fantinn P.
Valdasjúkur vargur er,
villimennið Pútin.
Fjandinn hirði fauta her
og fúlan Rússa grútinn.
Hannes Sigurðsson:
Ríður hann út um Rússalönd
reifur af stútaglaumi.
Ötul er Pútíns haga hönd
í heimsins bútasaumi.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
„Bölbæn (sléttubönd)“:
Gleypi Pútin Fjandinn flár,
fólsku þrútinn rata,
steypi tútinn illsku ár
úldnum grútar snata.
Öfugt:
Snata grútar úldnum ár
illsku tútinn steypi,
rata þrútinn fólsku flár
Fjandinn Pútin gleypi.
Í aðra sálma. Eyjólfur Ó. Eyjólfs-
son kvað:
Úlfgerður æpti af losta
óþoli, bruna og þorsta
en Hrollaugur bað
og hugsaðı́ um það
hvað helvítis smokkarnir kosta.
Hér er ástarvísa eftir Eggert J.
Levy:
Ástin leitar inn á við
aldrei neitar hnossi
yndið veitir enga bið
eftir heitum kossi.
Þorvaldur Rögnvaldsson Sauða-
nesi missti sauði sína og bát:
Mas er að hafa Mammons grát
þó miðlist nokkuð af auði,
nú skal efna í annan bát
og ala upp nýja sauði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort um Herðubreið
og Úkraníu