Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022 Fátt annað kemst að í huga manns en innrás Rússlands í Úkraínu um þessar mundir. Fjöldi íþróttasambanda hefur í kjölfarið brugðist við og meinað rússneskum lands- og fé- lagsliðum þátttöku í keppnum á vegum þeirra þar til tilkynnt verður um annað. Mörg þeirra hafa sömuleiðis sett hvítrússnesk lands- og fé- lagslið í bann þar sem Hvíta- Rússland styður við hernað Rússa. Alþjóðaknattspyrnu- sambandið, FIFA, og Knatt- spyrnusamband Evrópu, UEFA, hafa reyndar ekki tekið svo djúpt í árinni. Evrópska handknattleiks- sambandið, EHF, og Al- þjóðaíshokkísambandið, IIHF, hafa sem dæmi bannað lið frá báðum löndum en hins vegar hefur Alþjóðakörfuknattleiks- sambandið, FIBA, ekkert að- hafst, að minnsta kosti ekki þegar þetta er ritað. Ég bind vonir við það að FIBA og fleiri íþróttasambönd taki sig til, fylgi áðurnefndum sam- böndum að máli og setji lið og annað íþróttafólk frá löndunum tveimur í bann. Einhverjum kann að finnast það ósanngjarnt gagnvart íþróttafólkinu sem hefur flest ekkert unnið sér til saka. Ég tel svona aðgerðir hins vegar nauð- synlegar enda íþróttir og íþróttaviðburðir eitt helsta sam- einingartákn þjóða. Það er eitthvað sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti gerir sér fulla grein fyrir enda hefur hann lagt sig í líma við að lappa upp á ímynd Rússlands í gegnum hina ýmsu viðburði, þar á meðal HM 2018 í knattspyrnu karla, sem landinu var úthlutað af FIFA með afar grunsamlegum hætti. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.isJa Morant, leikmaður Memphis Grizzlies, er kominn í hóp þeirra leikmanna sem skorað hafa 50 stig eða meira í leik í NBA-deildinni í körfuknattleik. Ja Morant skoraði 52 stig þegar Memphis vann San Antonio Spurs 118:105 og setti félagsmet hjá Memphis. Mest hafði hann áður skorað 47 stig í leik. Morant er aðeins 22 ára og hefur leikið vel á keppnistímabilinu. Væntingar hafa verið til hans gerð- ar frá því hann var valinn annar í nýliðavalinu árið 2019. 22 ára leikmað- ur með 52 stig AFP Atkvæðamikill Morant með boltann í leiknum gegn San Antonio. Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður, er á leið til Þýska- lands á nýjan leik þar sem hann verður aðstoðarþjálfari 1. deildar liðs Erlangen í handknattleik. Ólafur sagði í viðtali á RÚV á dögunum að hann væri á leið til Þýskalands í tengslum við hand- boltann. Vísir.is greindi frá því í gær að Ólafur muni skrifa undir samning við þýska félagið sem gild- ir út keppnistímabilið. Raúl Alonso er þjálfari Erlangen í dag en liðið er sem stendur í 13. sæti þýsku 1. deildarinnar. Morgunblaðið/Ómar Þýskaland Ólafur lék með Wüpper- tal, Magdeburg og RN Löwen. Ólafur fer til Erlangen NOREGUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Knattspyrnukonan Selma Sól Magnúsdóttir skrifaði undir tveggja ára samning við norska úr- valsdeildarfélagið Rosenborg hinn 20. janúar á þessu ári en liðið er eitt það sterkasta á Norðurlönd- unum í dag. Selma, sem er 23 ára gömul, kemur til Rosenborg frá uppeldis- félagi sínu Breiðabliki þar sem hún hefur leikið allan sinn feril að und- anskildu árinu 2015 þar sem hún lék með Fylki í láni frá Breiða- bliki. Alls á hún að baki 84 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 8 mörk og þá lék hún fimm af sex leikjum Breiðabliks í B-riðli Meist- aradeildarinnar síðasta haust. „Ég er búin að koma mér vel fyrir í Þrándheimi og þetta lítur bara mjög vel út allt saman,“ segir Selma Sól í samtali við Morg- unblaðið. „Ég var alls ekki búin að taka neina ákvörðun um að yfirgefa Breiðablik eftir að Meistaradeild- arævintýrinu lauk. Ég ákvað að bíða og sjá hvað væri í boði og ég var alveg ákveðin í því að ég myndi ekki fara nema eitthvað mjög spennandi væri í boði. Það er allt til alls hjá Breiðabliki og allt gert til þess að okkur leikmönn- unum líði sem best hjá félaginu. Ég er búin að vera í klúbbnum síðan ég var fjögurra ára gömul og það var virkilega erfitt að kveðja félagið en á sama tíma þarf maður líka að horfa fram á við, ætli mað- ur sér að taka næstu skref á ferl- inum. Ég fór út til Rosenborg á reynslu í janúar og fann það strax að mér leið mjög vel í þessu um- hverfi í Þrándheimi. Ég heyrði af einhverjum áhuga frá öðrum liðum en um leið og Rosenborg fór að sýna mér alvöruáhuga ákvað ég að stökkva á það strax og ég velti því öðrum möguleikum lítið fyrir mér,“ segir Selma sem á að baki 17 A- landsleiki þar sem hún hefur skor- að tvö mörk. Hraðari æfingar Selma hélt út til Noregs í lok janúar en keppni í norsku úrvals- deildinni hefst hinn 20. mars þegar Rosenborg fær Avaldsnes í heim- sókn í 1. umferð deildarinnar. „Æfingarnar hafa verið góðar hingað til en auðvitað tekur alltaf smá tíma að koma sér inn í það sem liðið er búið að vera að gera. Það eru nýjar áherslur hérna en persónulega hefur mér gengið vel á æfingum og ég er sátt við mína frammistöðu á æfingasvæðinu hingað til. Ég finn klárlega mun á æfingunum hérna úti og heima enda eru flestir leikmenn Rosen- borg atvinnumenn og gera því lítið annað en að æfa og spila fótbolta. Það er aðeins misjafnt hvenær við erum að mæta á æfingar yfir daginn en við borðum nánast alltaf saman á æfingasvæðinu. Ef það er morgunæfing þá borðum við sam- an í hádeginu og ef við æfum síð- degis þá borða leikmennirnir sam- an kvöldmat. Æfingarnar eru hraðari en heima og stærsti mun- urinn er eflaust sá að leikmenn- irnir sem æfa saman eru flestallir mjög sterkir, án þess að ég vilji móðga einhvern heima á Íslandinu góða.“ Háleit markmið Rosenborg, sem áður hét Trond- heims-Örn, varð síðast Nor- egsmeistari árið 2003 en þrátt fyr- ir það er liðið það sigursælasta í Noregi ásamt LSK í Lilleström. „Félagið byrjaði að spila undir merkjum Rosenborg árið 2020. Þá var strax settur meiri peningur í klúbbinn og þetta var í raun tekið á hærra stig ef svo má segja. Norðmenn tóku ákvörðun fyrir nokkrum árum síðan að efla kvennaboltann til muna og gera hann stærri en hann hafði áður verið. Þetta er því alltaf að verða stærra og stærra. Rosenborg sem slíkt hefur því aldrei orðið Noregsmeistari áður en liðið hefur hafnað í öðru sæti deildarinnar undanfarin tvö tíma- bil. Það vantar því herslumuninn upp á að ná að klára dæmið og markmiðið í ár er klárlega að gera betur en undanfarin tvö ár. Klúbb- urinn ætlar sér að vera í fremstu röð, eitthvað sem ég er mjög vön hjá Breiðabliki, og ég var líka spennt fyrir því að reyna fyrir mér í þannig umhverfi erlendis. Ég er sjálf í þessu til þess að vinna bik- ara enda er það það skemmtileg- asta við fótboltann.“ Á réttri leið Selma Sól sleit krossband í sept- ember 2019 og lék því ekkert tíma- bilið 2020 en hún var í íslenska landsliðshópnum sem tók þátt í al- þjóðlega kvennamótinu She Belie- ves Cup í Bandaríkjunum á dög- unum þar sem hún var á skotskónum í 2:1-sigri Íslands gegn Tékklandi í Carson í Kali- forníu. „Þetta er allt á réttri leið hjá mér ef svo má segja eftir kross- bandsslitin. Það vantaði aðeins upp á kraftinn og sprengikraftinn síð- asta sumar en það orsakaðist líka af því að ég náði ekki heilu und- irbúningstímabili með liðinu í fyrra. Tímabilið var líka mjög langt enda fórum við í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og ég fékk því lítinn tíma til þess að byggja mig enn þá meira upp meðan á tímabilinu stóð. Ég finn það hins vegar núna að ég er aftur að nálg- ast mitt besta form sem er mjög jákvætt. Þegar kemur að landsliðinu er það Steini [Þorsteinn Halldórsson] sem ræður öllu. Það eina sem ég get gert er að standa mig vel með mínu félagsliði og svo auðvitað að spila eins vel og ég get þegar ég fæ tækifæri með landsliðinu. Það er draumur allra leikmanna að taka þátt í lokakeppni Evrópu- mótsins og það væri frábært að vera valin. Ég er hins vegar mjög einbeitt á það að fara vel af stað með Rosenborg og ná upp fyrri styrk. Svo sjáum við bara hverju það mun skila mér þegar fer að nálgast sumartímann,“ bætti Selma Sól við í samtali við Morg- unblaðið. Skemmtilegast að vinna bikara Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þrándheimur Selma Sól hefur verið í lykilhlutverki hjá uppeldisfélagi sínu Breiðabliki undanfarin ár. - Selma Sól Magnúsdóttir er spennt fyrir tímabilinu í norsku úrvalsdeildinni - Miðjumaðurinn nálgast sitt besta form eftir krossbandsslit í september 2019 Selma Sól Magnúsdóttir » Fæddist 23. apríl 1998. » Uppalin hjá Breiðabliki í Kópavogi og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með liðinu árið 2013. » Hefur leikið með Breiðabliki og Fylki hér á landi. » Á að baki 17 A-landsleiki fyr- ir Ísland og 26 landsleiki fyrir yngri landsliðin. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Dalhús: Fjölnir – Njarðvík .................. 18.30 Grindavík: Grindavík – Breiðablik...... 19.15 Ásvellir: Haukar – Keflavík................. 20.30 1. deild karla: Ásvellir: Haukar – Hrunamenn ............... 18 1. deild kvenna: Dalhús: Fjölnir B – Snæfell................. 20.30 HANDKNATTLEIKUR Coca Cola-bikar karla, 8-liða úrslit: Höllin Ak.: Þór – FH................................. 19 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Kórinn: HK – Valur................................... 18 Würth-völlur: Fylkir – KA ....................... 18 Nettó-höll: Keflavík – Afturelding .......... 18 Deildabikar kvenna, Lengjubikar: Nettó-höll: Keflavík – Afturelding .......... 20 Í KVÖLD! 1. deild karla Hamar – Skallagrímur..........................89:96 Staða efstu liða: Haukar 21 19 2 2176:1688 38 Höttur 21 18 3 2121:1757 36 Álftanes 22 14 8 2088:1885 28 Fjölnir 22 12 10 2076:2088 24 1. deild kvenna Hamar-Þór – KR.................................. 75:84 Aþena – Stjarnan.................................. 78:75 Ármann – Tindastóll ............................ 82:59 Þór Ak. – ÍR .......................................... 52:67 Staða efstu liða: Ármann 18 15 3 1449:1170 30 ÍR 17 14 3 1282:994 28 KR 18 12 6 1373:1249 24 Snæfell 17 10 7 1237:1181 20 Aþena/UMFK 18 10 8 1284:1335 20 Þór Ak. 17 9 8 1231:1157 18 >73G,&:=/D

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.