Morgunblaðið - 02.03.2022, Side 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022
Tilkynnt hefur verið hvaða atvinnu-
sviðslistahópar fá úthlutað úr Sviðs-
listasjóði þetta árið. Alls bárust 149
umsóknir þar sem sótt var um ríflega
891 milljón króna og að auki 1.789
mánuði til listamannalauna. Sviðs-
listasjóður veitir 160 milljónir króna
til 23 atvinnusviðslistahópa leikárið
2022-2023 og fylgja þeim 170 lista-
mannalaunamánuðir, 20 mánuðir
voru veittir einstaklingum utan
sviðslistahópa.
Í tilkynningu á vef Rannís kemur
fram að sviðslistaráði þykir miður að
úthlutun seinkaði þetta árið, en yfir-
leitt er upplýst um úthlutanir úr
sviðslistasjóði samhliða því að upp-
lýst er hverjir fá starfslaun lista-
manna, sem var gert um miðjan jan-
úar. „Töf má rekja til viðspyrnu-
aðgerða ríkisstjórnar sem auglýstar
voru í lok janúar. Sviðslistaráð ósk-
aði eftir að viðbótarframlag yrði nýtt
til að hækka þessa úthlutun, og var
það gert að hluta. Auka umsóknar-
frestur í Sviðslistasjóð og launasjóð
sviðslistafólks vegna viðspyrnuað-
gerða ríkisstjórnar verður tilkynntur
á vormánuðum. Þá verða til úthlut-
unar 25 milljónir úr Sviðslistasjóði og
50 mánuðir úr launasjóði sviðs-
listafólks með áherslu á umsóknir frá
ungu sviðslistafólki, 35 ára og
yngra.“
Hæsti styrkur að þessu sinni renn-
ur til Rúnars Guðbrandssonar sem
fyrir hönd Lab Loka hlýtur 12 millj-
ónir úr sviðslistasjóði og 17 mánaða
listamannalaun til að setja upp
Marat/Sade. Í sýningunni taka þátt
20 leikarar, söngvarar og hljóðfæra-
leikarar á aldrinum 70-90 ára. Lárus
Vilhjálmsson hlýtur fyrir hönd Gafl-
araleikhússins 10 milljónir úr sviðs-
listasjóði og 20 mánaða listamanna-
laun sem hluta af samstarfssamningi
sem gerður var 2021 með því skilyrði
að Hafnarfjarðarbær legði fram
sambærilegt framlag til leikhússins.
Ragnheiður Maísól Sturludóttir
hlýtur fyrir hönd hópsins Svartur
jakki 10 milljónir úr sviðslistasjóði og
13 mánuði listamannalaun fyrir óper-
una Spunakonur. Pálína Jónsdóttir
hlýtur fyrir hönd Heimsleikhússins
ehf. 10 milljónir úr sviðslistasjóði og
11 mánaða listamannalaun fyrir leik-
ritið Djöfulsins snillingur. Rebekka
A. Ingimundardóttir hlýtur rúmar 10
milljónir fyrir samsköpunarverkið
Ég lifi enn. Birnir Jón Sigurðsson
hlýtur rúmar 9,9 milljónir fyrir hönd
hópsins Blautir búkar til að setja upp
sviðsverkið Sund. Þyri Huld Árna-
dóttir hlýtur rúmar 9,4 milljónir fyrir
hönd hópsins EG studio ehf. til að
setja upp dansverkið Hringrás.
Filippía Ingibjörg Elísdóttir hlýt-
ur fyrir hönd hópsins Urbania ehf.
tæpar 9,4 milljónir til að setja upp
leikverkið Aspas. Rósa Ómarsdóttir
hlýtur fyrir hönd Menningarfélags-
ins Tvíeindar 8,5 milljónir úr sviðs-
listasjóði og 8 mánaða listamanna-
laun til að setja upp dansverkið
Moltu. Elfar Logi Hannesson hlýtur
rúmar 8,4 milljónir til að setja upp
brúðusýninguna Tindátarnir. Vikt-
oría Blöndal hlýtur fyrir hönd hóps-
ins Alltaf í boltanum rúmar 8,2 millj-
ónir til að setja upp nýtt íslenskt
sviðsverk sem nefnist Óbærilegur
léttleiki knattspyrnunnar. Kara Her-
gils Valdimarsdóttir hlýtur fyrir
hönd hópsins Trigger Warning 8
milljónir úr sviðslistasjóði og 13 mán-
aða listamannalaun fyrir heimilda-
verkið Stroke. Valgerður Rúnars-
dóttir hlýtur 7 milljónir úr sviðs-
listasjóði og 12 mánaða listamanna-
laun fyrir hönd Dansfélagsins Lúxus
til að setja upp dansverkið Ó ljúfa líf.
Sigríður Soffía Níelsdóttir hlýtur
fyrir hönd hópsins Níelsdætur sf. 6
milljónir úr sviðslistasjóði og 11 mán-
aða listamannalaun til að setja upp
dansverkið Til hamingju með að vera
mannleg. Aldís Gyða Davíðsdóttir
hlýtur 6 milljónir úr sviðslistasjóði og
10 mánaða listamannalaun til að
setja upp brúðusýningu fyrir full-
orðna sem nefnist Hríma. Hallveig
Rúnarsdóttir hlýtur fyrir hönd Sam-
bandsins óperukompanís rúmar 5,7
milljónir til að setja upp óperuna
Síminn. Unnur Elísabet Gunnars-
dóttir hlýtur 4,5 milljónir úr sviðs-
listasjóði og 12 mánaða listamanna-
laun til að setja upp dansverkið Nýr
heimur – Ég býð mig fram. Bryndís
Ósk Þ. Ingvarsdóttir hlýtur fyrir
hönd hópsins Slembilukka 4,5 millj-
ónir úr sviðslistasjóði og 11 mánaða
listamannalaun fyrir barnaverkið
Hvíta tígrisdýrið.
Gríma Kristjánsdóttir hlýtur 3,1
milljón úr sviðslistasjóði og 9 mánaða
listamannalaun til að setja upp leik-
ritið Missir. Hilmir Jensson hlýtur
2,8 milljónir fyrir rannsóknina
Megaturo. Ágústa Skúladóttir hlýtur
rúmar 2,3 milljónir til að setja upp
leikrrtið Dagur í lífi öryrkja. Greta
Cloug hlýtur 2,2, milljónir úr sviðs-
listasjóði og 10 mánaða listamanna-
laun fyrir hönd Handbendis brúðu-
leikhúss til að setja upp barna-
sýninguna Moetivi Caravan. Elín
Gunnlaugsdóttir og tónleikhúshóp-
urinn Töfrar hljóta rúmar 1,8 millj-
ónir úr sviðslistasjóði og 13 mánaða
listamannalaun til að setja upp
barnasýninguna Skemmtilegast er
myrkrið.
160 milljónir til 23 sviðslistahópa
- Úthlutað hefur verið úr Sviðslistasjóði í ár - Úthlutun seinkaði vegna viðspyrnuaðgerða ríkisstjórnar
- Lab Loki hlýtur hæsta styrkinn til að setja upp verk með 20 þátttakendum á aldrinum 70-90 ára
Rúnar
Guðbrandsson
Birnir Jón
Sigurðsson
Hallveig
Rúnarsdóttir
Ágústa
Skúladóttir
Sigríður Soffía
Níelsdóttir
Pálína
Jónsdóttir
Á Djúpavogi hefur verið undirritað
samkomulag sveitarfélagsins Múla-
þings og Ars Longa-samtímalista-
safns um húsnæði við voginn á
Djúpavogi. Samninginn undirrituðu
Sigurður Guðmundsson myndlistar-
maður og Björn Ingimarsson
sveitarstjóri. Húsnæðið mun hýsa
hið nýstofnaða listasafn en gert er
ráð fyrir stórfelldum endurbótum á
því á komandi árum.
Sigurður, sem er einn kunnustu
listamanna þjóðarinnar, gaf nýverið
til safnsins 27 listaverk sem spanna
meira en 50 ára tímabil af ferli hans.
Mynda verkin stofn að safnkosti Ars
Longa en í tilkynningu frá safninu
segir að þess megi vænta að innan
fárra ára verði þessi safneign orðin
lítil innan um ný aðföng af listaverk-
um eftir samtímalistamenn, jafnt er-
lenda sem íslenska.
Sýningarhald hefst í sumar
Samtímalistasafnið Ars Longa er
sjálfseignarstofnun en stofnendur
eru myndlistarmennirnir Sigurður
Guðmundsson og Þór Vigfússon sem
stýra faglegu starfi þess í samvinnu
við sitjandi stjórn. Stjórnina skipa
þau Bjarki Diego, Fríða Björk Ingv-
arsdóttir, Greta Mjöll Samúels-
dóttir, Jóhann G. Jóhannsson og
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir,
ásamt þeim Sigurði og Þór.
Samtímalistasafninu á Djúpavogi
er, segir í tilkynningunni, ætlað að
vera lifandi vettvangur í sífelldri
endurnýjun um leið og safneign þess
mun halda um ómetanlegan menn-
ingararf til frambúðar. Lagt er upp
með að viðburðir og sýningarhald
hefjist án mikilla breytinga húsnæð-
isins strax í sumar með myndlistar-
sýningunni Rúllandi snjóbolta sem
farið hefur fram í Bræðslunni á
Djúpavogi frá árinu 2013. Við sýn-
ingarlok verður farið í framkvæmdir
en unnið er að fjármögnun og skipu-
lagi við endurbætur húsnæðisins.
Markmið með stofnun safns fyrir
alþjóðlega myndlist á Djúpavogi er
sagt vera að safna og varðveita lista-
verkaeign eftir íslenska og alþjóð-
lega listamenn, vera leiðandi vett-
vangur alþjóðlegrar samtímalistar á
Íslandi og efla tengsl og samvinnu
við listamenn og aðra fagaðila á al-
þjóðavísu með sýningarhaldi.
Eflir samfélagið í heild
Sjálfstætt safn af þessu tagi fyrir
alþjóðlega samtímalist á sér ekki
hliðstæðu hér á landi. Safninu er
ætlað að styðja við frjóan jarðveg
grasrótar listamanna samhliða sýn-
ingum á verkum þekktari lista-
manna víðsvegar að. Uppbygging al-
þjóðlegs samtímalistasafns á
svæðinu er sagt efla samfélagið í
heild og þar með efnahagslega
framþróun þess.
Aðdragandann að safninu má
rekja til Eggjanna í Gleðivík eftir
Sigurð, verka sem voru keypt með
dyggri aðstoð Djúpavogshrepps
þrátt fyrir erfitt efnahagsástand í
upphafi hrunsins. Í samvinnu við
Kínversk-evrópsku menningar-
miðstöðina (CEAC) hafa stofnendur
safnsins staðið fyrir árlegum sýn-
ingum undir heitinu Rúllandi snjó-
bolti frá árinu 2013.
Glaðir Björn Ingimarsson og Sigurður Guðmundsson handsala samninginn.
Samtímalistasafn fær
húsnæði á Djúpavogi
- Ars Longa ekki með hliðstæðu hér - Metnaðarfullt starf
Húsnæðið Hið nýja samtímasafn, Ars Longa, verður í þessari byggingu.
Hljómsveitin Paniik Mehlóna, tríó
píanóleikarans Tómasar Jónssonar,
kemur fram á tónleikum Jazz-
klúbbsins Múlans í Flóa í Hörpu, í
kvöld, miðvikudag. Hefur sveitin
leik kl. 20.
Ásamt Tómasi, sem leikur á
margvísleg hljómborð, koma fram
gítarleikarinn Rögnvaldur Borg-
þórsson og Magnús Trygvason Eli-
assen sem leikur á trommur. Tríóið
leikur tónlist Tómasar, kántrý-
ballöður og „hressandi psycadelia“,
í opnum útsetningum þeirra félaga,
eins og segir í tilkynningu.
Tóneikarnir í Múlanum í kvöld
eru liður í vordagskrá hans í Hörpu
og halda tónleikar áfram á mið-
vikudagskvöldum fram í miðjan
maímánuð. Múlinn er nú á sínu 25.
starfsári en hann er samstarfsverk-
efni Félags íslenskra hljómlistar-
manna (FÍH) og Jazzvakningar.
Paniik Mehlóna í Múlanum í kvöld
Skuggaleikur Tómas Jónsson hljóm-
borðsleikari leiðir Paniik Mehlóna.
Brynhildur Þóra Þórsdóttir sópran
og Stewart Emerson píanóleikari
kona fram á tónleikum í Salnum í
Kópavogi í kvöld, miðvikudag, og
hefjast þeir kl. 20. Yfirskrift tón-
leikanna er „Mignon og Strauss“.
Fyrri hluti tónleikanna verður
tileinkaður Mignon-ljóðunum eftir
Goethe. Mörg tónskáld hafa samið
lög við ljóðin og má heyra hvernig
tónskáldin Schubert og Wolf túlka
ljóðin á ólíkan hátt. Seinni hluti tón-
leikanna verður tileinkaður Rich-
ard Strauss og verða fjögur síðustu
sönglög hans flutt, „Vier Letzte
Lieder“.
Brynhildur Þóra útskrifaðist
2019 með meistaragráðu frá Tón-
listarháskólanum Hanns Eisler í
Berlín. Stewart Emerson er pró-
fessor við Hanns Eisler og hefur
unnið með söngvurum í áratugi.
Ljóðatónleikar Brynhildar Þóru
Söngkonan Brynhildur Þóra Þórsdóttir.
Í dagskrá með yfirskriftina „Bókakaffi – Erfð
áföll“ í menningarhúsinu Gerðubergi í kvöld,
miðvikudag, kl. 20 verður rætt um það hvern-
ig áföll geta borist niður kynslóðir. Soffía
Bjarnadóttir ræðir við rithöfundana Elísabetu
Jökulsdóttur og Önnu Hafþórsdóttur, um
skáldverkin Aprílsólarkulda, Rauða hesta og
Að telja upp í milljón – um arf og áföll í skáld-
skap og um leiðina til að sigrast á áföllum.
Í tilkynningu um viðburðinn segir að höf-
undarnir muni spjalla saman um skáldverk
sín, um magíska krafta, arf, rætur, áföll og
heilandi mátt skáldskapar.
Elísabet fékk Íslensku bókmenntaverðlaun-
in fyrir bók sína Aprílsólarkulda. Anna Hafþórsdóttir starfar sem rithöf-
undur, leikkona og handritshöfundur. Hennar fyrsta skáldsaga, Að telja
upp í milljón, bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins Nýjar
raddir 2021.
Höfundar ræða um áföll og skáldskap
Morgunblaðið/Eggert
Elísabet Jökulsdóttir