Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 28
Hlaða Draga út og vefja
Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flæ
kjur
Ekkert v
esen
...algjör snilld!
www.danco.is
Heildsöludreifing
Ómissandi
í eldhúsið
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni
og Húsasmiðjunni
Bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Elsa Turchi
kemur fram ásamt hljómsveit sinni á hádegistónleikum
í Salnum í dag, miðvikudaginn 2. mars, kl. 12:15 og leik-
ur verk af hinni margverðlaunuðu plötu Meliae í bland
við nýtt efni og spuna. Hljómsveit Ingibjargar skipa auk
hennar sjálfrar þeir Tumi Árnason, Magnús Trygvason
Eliassen, Hróðmar Sigurðsson og Magnús Jóhann
Ragnarsson. Tónleikarnir eru liður í viðburðaröðinni
Menning á miðvikudögum sem styrkt er af lista- og
menningarráði Kópavogsbæjar.
Hljómsveit Ingibjargar Turchi spilar
á hádegistónleikum í Salnum
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 61. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
„Ég var alls ekki búin að taka neina ákvörðun um að
yfirgefa Breiðablik eftir að Meistaradeildarævintýrinu
lauk. Ég ákvað að bíða og sjá hvað væri í boði og ég var
alveg ákveðin í því að ég myndi ekki fara nema eitthvað
mjög spennandi væri í boði,“ segir knattspyrnukonan
Selma Sól Magnúsdóttir m.a. í samtali við Morgun-
blaðið en hún samdi við Rosenborg í janúar. »23
Ætlaði ekki að fara frá Breiðabliki
nema eitthvað spennandi byðist
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Söguleg stund, sögðu matreiðslu-
menn sem í gær komu saman til allra
síðasta kvöldverðarins á Grillinu á
Hótel Sögu. Sem kunnugt er hafa
samtök bænda nú selt hótelbygg-
inguna við Hagatorg í Reykjavík og
þangað verður starfsemi mennta-
vísindasviðs Háskóla Íslands flutt á
næstu misserum. Áfram lifa þó saga
og minningar, til dæmis um Grillið
sem var rómaður veitingastaður og
frægur fyrir flottheit og frábæran
mat. Þarna störfuðu líka margir af
bestu kokkum landsins sem margir
mættu í gær til söguloka, sem Klúbb-
ur matreiðslumeistara stóð fyrir.
Stefnur og straumar
„Nýjar áherslur, stefnur og
straumar í matreiðslumenningu Ís-
lendinga komu gjarnan frá Hótel
Sögu. Þar störfuðu frábærir kokkar
og mikill fjöldi nema í faginu fór þar í
gegn. Ef erlendir þjóðhöfðingjar
komu til Íslands voru þeim gjarnan
haldnar veislur á Sögu, hótelinu sem
var í eigu bænda og því var mikið
lagt upp úr því að vera með íslenskt
hráefni. Þessu er mikilvægt að halda
til haga og að þessu sögulega hóteli
verður eftirsjá,“ segir Þórir Erlings-
son, forseti Klúbbs matreiðslumeist-
ara.
Klúbburinn góði er fimmtíu ára
um þessar mundir og löng hefð er
fyrir því að á samkomur hans mæti
fólk jafnan í hvítum kokkajökkum,
svörtum buxum og jafnlitum skóm,
vel burstuðum. Samkoman í gær var
þar engin undantekning.
Fylgir mér alla tíð
„Ég átti góðan tíma á Hótel Sögu
og fékk þar góða þekkingu og
reynslu í matreiðslustörfum, sem
hefur fylgt mér alla tíð,“ segir Ragn-
ar Wessmann. Hann kom fyrst til
starfa á hótelinu sem nemi árið 1973
og var þar í nokkur ár. Fór svo til
starfa m.a. í útlöndum, en sneri síðan
aftur og alls er Sögutími Ragnars
nærri tuttugu ár. Hann var yfirkokk-
ur í nærri helming þess tíma.
„Kokkanemar sem komu á Sögu
byrjuðu í kjötvinnslu, voru svo settir
í að sjá um morgun- og hádegisverð,
næsta skref var undirbúningur
veislna í Súlnasal. Námsferillinn end-
aði svo á Grillinu, þar sem við lögðum
alltaf mikið upp úr lambakjöti, fiski
og öðru góðu. Allt var úthugsað og
vandlega útfært, meðal annars eftir
frönskum og norrænum hefðum.
Matseðlarnir sem mikil vinna var
lögð í að útfæra tóku líka mið af
hverri árstíð og ég man eftir því að
hafa verið sendur af vaktinni út í
Öskjuhlíð að tína fíflablöð og blóð-
berg í skraut á matardiskum,“ segir
Ragnar sem að sjálfsögðu mætti til
lokahófsins á Grillinu í gær, enda
góðs margs að minnast.
Morgunblaðið/Eggert
Síðasta kvöldmáltíðin Veitingamennirnir Ragnar Wessman og Þórir Erlingsson kvöddu Grillið í gærkvöldi.
Meistarakokkar tóku
síðustu kvöldmáltíðina
- Sögulok á Grillinu - Flottheit og frábær var maturinn