Morgunblaðið - 23.03.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er mjög bjart fram undan,“
segir Ninna Hafliðadóttir, markaðs-
og upplýsingastjóri lúxushótelsins
The Reykjavík Edition við Hörpu.
Hótelið auglýsti nýverið eftir
starfsfólki og er ráðgert að það
verði komið í fullan rekstur síðar á
þessu ári. Í byrjun árs var 27 starfs-
mönnum Edition sagt upp störfum
og því borið við að Ómíkron-bylgja
kórónuveirufaraldursins hefði dreg-
ið úr eftirspurn. Ninna segir að
margar af þeim uppsögnum hafi síð-
ar verið dregnar til baka eða fólk
hafi verið endurráðið.
„Á þeim tíma var ekki farið að sjá
fram á afléttingu sóttvarnaaðgerða
og bókanir voru ekki eins og gert
var ráð fyrir. Þetta snerist fljótt við
og við erum nú að sjá fram á mjög
góðar bókanir í vor og sumar. Plan-
ið var alltaf að við myndum geta náð
þessu fólki sem sagt var upp aftur
inn. Nú erum við að bæta við fólki
fyrir utan þessar uppsagnir. Hótelið
er ekki fullopnað en við stefnum að
því að gera það í sumar og þetta eru
alls 34 stöður sem auglýstar eru
nú,“ segir Ninna.
Hún segir að enn eigi eftir að
opna bari og veitingastaði á hót-
elinu auk þess sem nú séu aðeins
150 herbergi af 250 komin í notkun.
„Það á eftir að opna bæði nætur-
klúbb og Rooftop-veitingastað og
opna allar hæðirnar. Til að geta
gert það þarf að þjálfa og koma
fólki inn í störfin,“ segir Ninna. Hún
segir aðspurð að veitingastaðurinn
á þakverönd hótelsins verði opn-
aður í maí en ekki sé alveg komið á
hreint hvenær næturklúbburinn
verði opnaður. Hann verði til að
byrja með aðeins opinn fyrir einka-
samkvæmi.
Markaðsstjórinn vill ekki gefa
upp hver bókunarstaða hótelsins sé
en segir að hún sé góð, bæði fyrir
hópa, ráðstefnur og ráðstefnugesti
sem og almenna ferðamenn.
„Ferðaþjónustan er að fara á flug
og það er mikill áhugi á landinu. Við
þurfum að undirbúa okkur vel til að
geta tekið á móti ferðamönnum.“
Lúxushótelið ræður 34 starfsmenn
- Viðsnúningur hjá The Reykjavík Edition - Starfsmenn sem sagt var upp í byrjun árs endurráðnir og
nýrra leitað - Veitingastaður á þaki hótelsins og næturklúbbur brátt opnaðir - Allar hæðir nýttar
Morgunblaðið/Eggert
Edition Tekið var á móti fyrstu gestunum í október og brátt verður hótelið
opnað að fullu. Fjöldi stjórnunarstarfa á hótelinu er nú laus til umsóknar.
ÚRVALSFÓLK Á KANARÍ
WWW.UU.IS HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
MEÐ LÓLÓ RÓSENKRANZ
Komdu með í frábæra ferð fyrir 60 ára og
eldri til Kanarí. Í þessari ferð verður gist á
Eugenia Victoria, vel staðsettu hóteli við Ensku
ströndina.
Lóló Rósnkranz er vinsæll fararstjóri hjá Úrval
Útsýn og í þessari ferð mun hún bjóða upp
á fjölbreytta dagskrá svo allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi.
Hún býður þar á meðal upp á morgungöngur,
léttar og mýkjandi æfingar fyrir alla, minigolf
og skemmtilega ferð til Puerto de Morgan,
sameiginlegar kvöldstundir.
BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA, INNRITAÐUR
FARANGUR OG HANDFARANGUR, 13 NÆTUR Á EUGENIA
VICTORIA 3* HÓTELI MEÐ HÁLFU FÆÐI, ÍSLENSK
FARARSTJÓRN, AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI, OG
BÓKUN Í ALMENN SÆTI AÐ KOSTNAÐARLAUSU.
INNIFALIÐ Í VERÐI:
14 DAGA FERÐ
29. MARS - 11. APRÍL
VERÐ FRÁ 239.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Lóló Rósenkranz
VINSÆLFERÐ FYRIR60+
ÖRFÁ
SÆTI LAUS
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor
emeritus í íslenskri málfræði við
Háskóla Íslands, hefur vakið at-
hygli á skorti íslenskra leiðbeininga
við hjartastuðtæki í Árnagarði í
skrifum sínum á Facebook. Leið-
beiningarnar um hjartahnoð og
beitingu tækisins voru eingöngu á
ensku.
„Í Árnagarði af öllum húsum. Ef
einhvers staðar í veröldinni á að
hafa íslensku í heiðri er það þarna,
beint á móti dyrunum inn á Árna-
stofnun,“ skrifar Eiríkur.
Hann bendir einnig á að leiðbein-
ingarnar séu lífsnauðsynlegar.
„Fyrir utan þá óvirðingu sem ís-
lenskunni er sýnd með því að hafa
leiðbeiningar eingöngu á ensku er
auðvitað lífsnauðsyn að leiðbein-
ingar af þessu tagi, sem varða
bráðaaðgerðir sem geta skilið milli
lífs og dauða, séu öllum skiljan-
legar og á íslensku.“
Óvirðing við ís-
lensku í Árnagarði
- Leiðbeiningar sem séu lífsnauðsyn
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Skólabygging Stofnun Árna Magnússonar er meðal annars í Árnagarði.
Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhann-
esson og Eliza Reid, tóku við boll-
um með áletruninni „Heimsins
bestu foreldrar“ í setningu átaks
heimsforeldra UNICEF á Íslandi á
Bessastöðum í gær.
Átakið sem ber einmitt yfir-
skriftina „Heimsins bestu for-
eldrar“ snýr að því að fjölga svo-
kölluðum Heimsforeldrum sem
gefa mánaðarlega ákveðna upp-
hæð til hjálpar börnum um allan
heim.
Íslendingar eiga heimsmet í
fjölda heimsforeldra, en um 25
þúsund manns styrkja UNICEF
mánaðarlega á þennan máta.
Fyrstu þrjá mánuðina munu ný
framlög renna til Úkraínu, þar sem
neyðin er sérstaklega mikil núna.
Í samtali við mbl.is hvatti Guðni
þá sem geta til að styrkja átakið. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Heimsmet í
fjölda heims-
foreldra
Áslaug Hulda Jónsdóttir hyggst
ekki þiggja annað sætið á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Garðabæ í sveitar-
stjórnarkosningunum í vor. Hún
sóttist eftir að leiða listann en varð
að lúta í lægra haldi fyrir Almari
Guðmundssyni sem einnig sóttist
eftir fyrsta sætinu. Aðeins munaði
41 atkvæði á Áslaugu og Almari í
fyrsta sætið.
Áslaug, sem hefur verið formaður
bæjarráðs Garðabæjar síðustu átta
ár og þar áður forseti bæjarstjórnar,
segist frekar vilja snúa sér að öðrum
verkefnum og skapa rými fyrir nýtt
fólk. Hún segir listann skipaðan
flottu og öflugu fólki og vonar að því
muni ganga vel í vor.
Áslaug
Hulda þigg-
ur ekki sæti
- Segist vilja skapa
rými fyrir nýtt fólk