Morgunblaðið - 23.03.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022
Þrátt fyrir linnulausar loftárásir
Rússa í meira en þrjár vikur er úkra-
ínski herinn kominn í sókn á nokkr-
um svæðum. Þetta var haft eftir tals-
manni bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins í gær.
Árásir Rússa hafa lagt í rúst fjölda
úkraínskra borga frá því þeir réðust
inn í Úkraínu með stóran her hinn 24.
febrúar. Mannfall eykst stöðugt og
meira en tíu milljónir manna hafa flú-
ið heimili sín. Engin lausn á stríðs-
átökunum virðist í sjónmáli.
Vilja áfram viðræður
Rússnesk stjórnvöld segjast þó
vera reiðubúin að halda áfram við-
ræðum við Úkraínumenn, sem miða
að því að binda enda á hernaðarað-
gerðir Rússa í nágrannaríki sínu.
Aftur á móti vilja ráðamenn í Kreml
sjá viðræðurnar, sem hafa lítinn ár-
angur borið, verða efnismeiri.
Kenna hvor öðrum um
„Það eru einhvers konar ferli í
gangi. Við vildum gjarnan sjá virkari
og umfangsmeiri viðræður,“ sagði
Dmitrí Peskov, talsmaður Kremlar,
við blaðamenn í gær.
Sömuleiðis sagði hann Úkraínu-
menn vel meðvitaða um afstöðu
Rússa sem afhentu kröfur sínar til
þeirra fyrir þó nokkrum dögum. „Við
viljum fá efnismeiri og skjótari svör,“
bætti hann við.
Til þessa hafa viðræður ekki skilað
miklum árangri og kenna leiðtogar
ríkjanna tveggja hvor öðrum um.
„Maður heyrir allan daginn
sprengjur í loftinu, þegar það er verið
að skjóta á sprengjur á leiðinni hing-
að inn,“ segir Óskar Hallgrímsson
ljósmyndari og íbúi í Kænugarði.
Síðustu daga og vikur, eftir því
sem landher Rússa hefur veikst og
þurft að grípa til varna víða í Úkra-
ínu, hefur árásum úr lofti fjölgað.
Verjast vel í Kænugarði
Í Kænugarði eru flest flugskeyti
skotin niður af úkraínska hernum, en
annarsstaðar, til að mynda í Maríu-
pol, hafa skeytin oft náð skotmarki
sínu og sprengjum ringt yfir borgina.
Óskar bendir á að Atlantshafs-
bandalagið hafi hingað til ekki viljað
senda friðargæsluliða til Úkraínu af
ótta við frekari átök við Rússa á
svæðinu.
„Hvenær kallar þú þjóðarmorð
þjóðarmorð? Hvenær finnst þér það
nóg til að senda friðargæsluliða?“
spyr Óskar.
AFP/Fadel Senna
Átök Aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir að Rússar geti ekki unnið stríðið.
Vilja efnismeiri viðræður
- Úkraínski herinn í sókn á nokkrum svæðum - Rússar vilja skjótari svör - Evr-
ópusambandið vill aðstoða við uppbyggingu í Úkraínu eftir stríðið- Funda í Brussel
Evrópusambandið er með í undir-
búningi stofnun öflugs sjóðs til að
styðja við uppbyggingu Úkraínu
þegar stríðinu í landinu lýkur. Þetta
kom fram í gær í tengslum við
tveggja daga fund leiðtogaráðs sam-
bandsins sem hefst í Brussel í dag.
Innrás Rússa í Úkraínu og afleiðing-
ar hennar er meginefni fundarins.
Ljóst er að mikils fjármagns verð-
ur þörf þegar árásum Rússa linnir.
Gífurleg eyðilegging hefur orðið á
mannvirkjum í landinu, íbúðarhús-
um, verslunarhúsum, sjúkrahúsum,
opinberum stofnunum, flugvöllum
og margs konar öðrum samgöngu-
mannvirkjum og vegum.
Ekkert liggur á þessu stigi fyrir
um hve mikið fjármagn verður látið
renna í sjóðinn eða hvernig hann
mun starfa. Undirbúa embættis-
menn ESB nú slíkar reglur sem síð-
an verða að fá samþykki leiðtoganna.
Í drögum að samþykkt um sjóðinn er
talað um að kalla saman alþjóðlega
ráðstefnu honum til undirbúnings og
kann því að vera að lönd utan sam-
bandsins muni eiga aðild að honum.
Charles Michel, forseti leiðtoga-
ráðs ESB, greindi Selenskí, forseta
Úkraínu, frá áformunum í símtali á
föstudaginn. Sagði hann þá að fyrsta
verkefni sjóðsins væri að koma al-
menningi til aðstoðar og styðja nauð-
synlegustu uppbyggingu mikilvæg-
ustu innviða samfélagsins.
Úkraínumenn vilja aðild að ESB
sem fyrst en skoðanamunur er innan
sambandsins um hve hratt sé hægt
að bregðast við þeirri ósk.
Joe Biden Bandaríkjaforseti mun
koma á leiðtogafundinn á fimmtu-
daginn, en hann er m.a. á leið til Pól-
lands þar sem hann ræðir við stjórn-
völd og hittir flóttafólk frá Úkraínu.
Viðreisnarsjóður
fyrir Úkraínu
- Undirbúningur hafinn á vegum ESB
AFP
Eyðilegging Verslunarmiðstöð í
Kænugarði í rúst eftir árás Rússa.
Forseti Marshalleyja í Kyrrahafi,
David Kabua, kvaðst á mánudaginn
ekki ætla að unna sér hvíldar fyrr
en eyjan Taívan væri orðin „full-
gildur hluti af fjölskyldu þjóð-
anna,“ eins og hann komst að orði.
Hann er í fimm daga heimsókn í
landinu. Taívan hefur lengi barist
fyrir alþjóðlegri viðurkenningu en
fram að þessu hafa aðeins fjórtán
ríki viðurkennt sjálfstæði landsins
frá Kína. Kínverjar líta á Taívan
sem hluta af þeirra eigin landi og
hafa í hótunum um að innlima það.
„Hinni skammarlegu þögn um
stöðu Taívan verður að ljúka,“
sagði Kabua við komuna til lands-
ins. Hann fékk höfðinglegar mót-
tökur og var sæmdur heiðursorðu.
TAÍVAN
AFP
Kabuba kannar heiðursvörð í Tapei.
Marshalleyjar heita
fullum stuðningi
Tvær glæsi-
snekkjur rúss-
neska ólígarkans
og milljarða-
mæringsins
Romans Abramo-
vitsj eru komnar
í skjól í hafnar-
borgum í Tyrk-
landi. Nýtur auð-
kýfingurinn þess
að Tyrkir taka
ekki þátt í refsiaðgerðum vest-
rænna ríkja gegn Rússlandi vegna
innrásarinnar í Úkraínu. Eru þeir
þó aðilar að NATO en meta meira
efnahagsþýðingu góðra samskipta
við Rússa. Mótmælendur hafa safn-
ast saman við snekkjurnar með
úkraínska fána og mótmælt komu
þeirra til landsins. Stórar eignir
Abramovitsj í Bretlandi eru honum
óaðgengilegar vegna refsiaðgerða.
TYRKLAND
Snekkjur Abramo-
vitsj komnar í skjól
Ólígarkinn Roman
Abramovitsj
Dómstóll í Moskvu hefur fundið
stjórnarandstöðuleiðtogann Alexei
Navalní sekan um fjársvik og óvirð-
ingu við dómstóla. Þessar ákærur á
hendur honum komu fram í febrúar
til viðbótar við eldri ákærur sak-
sóknara sem leiddu til handtöku
hans fyrir tveimur árum og þriggja
og hálfs árs fangelsisdóms. Hann
var þá nýkominn heim frá Þýska-
landi eftir að hafa með naumindum
lifað af eiturárás sem talið er að
rússneska leyniþjónustan beri
ábyrgð á. Sakarefnin gegn Navalní
snúast um að hann hafi nýtt sér
mikla fjármuni sem samtök hans
höfðu aflað. Samtökin eru bönnuð og
hafa aðrir forystumenn þeirra farið í
felur eða flúið land. Navalní hafnaði
alfarið ákærunni og sama er að segja
um samstarfsmenn hans. Dómurinn
yfir Navalní var þyngdur í níu ár svo
hann mun þurfa að sitja í sjö ár til
viðbótar. Skömmu eftir uppkvaðn-
ingu dómsins voru lögmenn Navaln-
ís færðir í varðhald.
Áður en Navalní var handtekinn
var hann helsti leiðtogi stjórnarand-
stæðinga í Rússlandi og höfðu sam-
tök hans afhjúpað margs konar spill-
ingu í landinu, m.a. varðandi tengsl
auðkýfinga og stjórnar Pútíns.
Refsing andófsleiðtogans þyngd
- Alexei Navalní fundinn sekur um ný
ákæruatriði - Bíður löng fangelsisvist
AFP
Réttarhald Navalní hlýðir á verjanda sinn við uppkvaðningu dómsins í gær.
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Calia Pier
Ítalskt, gegnlitað nautsleður
Stakir sófar:
3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr.
2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr.
2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr.
Tungusófi
með rafmagni í sæti
615.000 kr.