Morgunblaðið - 23.03.2022, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022
Söngskemmtun
Gríman 2020 – Söngvari ársins
Karin Torbjörnsdóttir
mezzo sópran
Sjáumst í Óperunni!
Elena Postumi píanó
Falleg efnisskrá m.a. eftir Debussy,
Poulanc og Daníel Bjarnason.
Miðasala á opera.is og harpa.is
Tryggðu þér miða!
Norðurljós
25. mars kl 20.00
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Sýnataka Kostnaður af sýnatökupinnum við PCR-próf er að jafnaði 369 kr.
Heildarkostnaður ríkisins af
sýnatöku vegna heimsfaraldurs
kórónuveirunnar frá því farald-
urinn hófst nemur samtals 11,4
milljörðum króna. Þetta kemur
fram í svari heilbrigðisráðherra
við fyrirspurn um sýnatökukostn-
aðinn frá Njáli Trausta Friðberts-
syni á Alþingi.
Heilbrigðisráðuneytið sendi
fyrirspurn til sjúkrahúsa og ann-
arra heilbrigðisstofnana um allt
land til að afla upplýsinga um
kostnaðinn við sýnatökurnar.
Njáll Trausti spurði m.a. hver
kostnaður ríkisins hefði verið
vegna sýnatökupinna að meðaltali
frá því faraldurinn hófst og
greint milli PCR-prófa annars
vegar og hraðprófa hins vegar.
„Heilbrigðisstofnanir sendu ráðu-
neytinu upplýsingar um með-
altalskostnað við hvert PCR-próf
annars vegar og hraðpróf hins
vegar. Samantekið hefur kostn-
aður ríkisins vegna sýnatöku-
pinna frá því faraldurinn hófst
verið 369 krónur fyrir hvert
PCR-próf að meðaltali. Kostnaður
fyrir hvert hraðpróf hefur verið
1.685 kr. að meðaltali fyrir hvert
próf,“ segir í svarinu.
Þar kemur einnig fram að
samkvæmt upplýsingum sem
bárust frá heilbrigðisstofnunum
hefur heildarkostnaður ríkisins
vegna sýnatökupinna frá því far-
aldurinn hófst verið 615.005.440
krónur fyrir PCR-próf annars
vegar og 389.413.072 krónur fyr-
ir hraðpróf hins vegar.
omfr@mbl.is
Sýnatökur kostuðu ríkið 11,4 milljarða
- Sýnatökupinnar kostuðu 615 milljónir vegna PCR-prófa og 389 milljónir vegna hraðprófa
Þing Starfsgreinasambands Íslands
(SGS) verður sett í Menningarhús-
inu Hofi á Akureyri í dag en þingið
mun standa yfir í þrjá daga. Á
þinginu verður m.a. ný forysta sam-
bandsins kjörin en Björn Snæ-
björnsson, núverandi formaður, til-
kynnti fyrir nokkru að hann hefði
ákveðið að láta af formennsku.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, og Þór-
arinn G. Sverrisson, formaður Öld-
unnar stéttarfélags, hafa báðir lýst
yfir að þeir gefi kost á sér til for-
mennsku sambandsins á þinginu.
Jafnframt hefur Guðbjörg Krist-
mundsdóttir, formaður Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur og
nágrennis, greint frá því í færslu á
facebook að hún hafi ákveðið að
gefa kost á sér sem varaformaður
SGS. Sólveig Anna Jónsdóttir, sem
var kosin vararmformaður SGS
2019, sagði af sér varaformennsk-
unni í nóvember sl.
Meðal þeirra sem flytja ávörp við
þingsetninguna kl. 17 í dag eru, auk
fráfarandi formanns, Sigurður Ingi
Jóhannsson innviðaráðherra,
Drífa Snædal, forseti ASÍ, Krist-
ján Bragason, framkvæmdastjóri
EFFAT, og Jens-Petter Hagen,
framkvæmdastjóri Nordic Union.
Á þingið í ár mæta alls 135
fulltrúar frá 19 aðildarfélögum
sambandsins. Kosningar til for-
manns, varaformanns og fram-
kvæmdastjórnar fara fram á loka-
degi þingsins á föstudag kl. 10:30.
Kjósa nýja
forystu á
föstudag
Vilhjálmur
Birgisson
- Þriggja daga þing
SGS hefst í dag
Þórarinn G.
Sverrisson
Guðbjörg
Kristmunds-
dóttir
Viðskipti