Morgunblaðið - 23.03.2022, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022
Á fleygiferð Hrafn þessi náði nokkurri ferð á flugi sínu um loftin, þótt þau hafi ekki verið blá. Kannski var hann með vindinn í bakið.
Eggert
Það er í eðli sumra
að sjá aðeins hið nei-
kvæða og neita að við-
urkenna hið jákvæða.
Svo eru alltaf ein-
hverjir sem telja það
þjóna pólitískum
markmiðum að mála
flest dökkum litum.
Þess vegna er þeim
þvert um geð að
dregnar séu fram tölu-
legar staðreyndir sem kynda illa
undir þann bölmóð sem þykir henta
til að fella pólitískar keilur.
Þvert á það sem reikna hefði mátt
með standa íslensk heimili sterkt
eftir að hafa siglt í gegnum erfitt
tímabil Covid-faraldursins:
. Hagstofan áætlar að ráðstöf-
unartekjur heimilanna hafi aukist
um 7,5% árið 2021. Ráðstöf-
unartekjur á mann jukust um
5,6%.
. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á
mann jókst um um 1,1%.
. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á
mann hefur hækkað um þriðjung
frá árinu 2013.
. Heildartekjur heimilanna jukust
um 8,6% á síðasta ári – þyngst
vega launatekjur sem áætlað er
að hafi aukist um ríflega 155 millj-
arða frá fyrra ári eða um tæplega
10%. Aukning launatekna skýrist
bæði af launahækkunum og
minnkandi atvinnuleysi. Að með-
altali hækkuðu laun um 8,3% sam-
kvæmt launavísitölu Hagstof-
unnar. Starfandi einstaklingum
fjölgaði um 2,1%.
. Um 4% heimila áttu erfitt með að
láta enda ná saman á síðasta ári,
borið saman við 6% árið á undan.
21% átti nokkuð erfitt sem er
lækkun frá fyrra ári. Aldrei hefur
hlutfall þeirra heimila sem átti
erfitt eða nokkuð erfitt verið
lægra.
. 75% heimila áttu auðvelt með að
láta enda ná saman. Árið 2013 var
hlutfallið innan við 50%.
. Vanskil heimila eru lítil og hafa
farið lækkandi að því
er kemur fram í nýj-
asta hefti Fjár-
málastöðugleika
Seðlabankans. Van-
skilahlutfall útlána
viðskiptabankanna
til heimila var 0,9% í
lok árs 2021 og hafði
lækkað um 1 pró-
sentu frá því heims-
faraldurinn hófst.
Vanskilatölurnar
benda því ekki til
vaxandi greiðslu-
vanda, en Seðlabankinn bendir á
að hlutfallið sé mjög lágt bæði í
sögulegu samhengi og í alþjóð-
legum samanburði, en í lok þriðja
ársfjórðungs á síðasta ári var það
að meðaltali 2,5% í Evrópu.
Lífskjör aldrei betri
Lífskjararannsókn Hagstofunnar
sem kynnt var í síðustu viku leiðir í
ljós að lífskjör hér á landi hafa aldrei
verið betri. Hlutfall heimila sem
segjast búa við efnislegan skort er
nálægt sögulegu lágmarki og aldrei
hafa færri heimili sagst eiga í erf-
iðleikum með að mæta óvæntum út-
gjöldum. En það er áhyggjuefni að
þrátt fyrir að hlutfall leigjenda sem
segist búa við efnislegan skort hafi
lækkað á undaförnum árum, er það
miklu hærra en hjá þeim sem búa í
eigin húsnæði; 10,9% á móti 2,4%.
Árið 2011 töldu liðlega 18% leigj-
enda sig búa við skort á efnislegum
gæðum.
Það er sameiginlegt afrek stjórn-
valda, launafólks og fyrirtækja að
sigla í gegnum efnahagslegar þreng-
ingar sem fylgju faraldrinum síð-
ustu tvö ár með þeim hætti sem gert
var; aukinn kaupmáttur, minni van-
skil, betri lífskjör og sterkari staða
heimilanna þegar á heildina er litið.
Árangurinn á síðustu árum hefur
ekki verið sjálfgefinn. Stærsta
áskorunin á komandi misserum er
að varðveita það sem á hefur unnist
en um leið vinna að því að létta undir
með þeim sem lakast standa. Inn-
rásin í Úkraínu hefur neikvæð áhrif
á íslenskt efnahagslíf og afleiðingar
Covid á heimsviðskiptin eru enn að
koma fram. Verðbólguþrýstingur er
mikill hér á landi líkt og í öllum við-
skiptalöndum okkar þar sem hann
er jafnvel mun meiri.
Fullkomið ábyrgðarleysi
Öllum má vera ljóst að tímabil
stöðugt batnandi lífskjara er að baki
og það mun reyna á stjórnvöld og
aðila vinnumarkaðarins að verja lífs-
kjörin sem hafa ekki verið betri.
Innistæða fyrir almennum launa-
hækkunum er ekki fyrir hendi á
næstu misserum. Stjórnmálamenn
verða að setja hugmyndir sínar um
sífellt aukin útgjöld ríkisins niður í
skúffu. Ýmis draumaverkefni verða
að bíða. Tími aðhalds í opinberum
rekstri er runninn upp. Takist vel til
á vinnumarkaði og í opinberum fjár-
málum eru allar forsendur fyrir því
að hægt sé að hefja nýja sókn til enn
betri lífskjara þegar halla fer á kom-
andi ár.
Íslenskur efnahagur stendur
sterkt eftir ágjöf síðustu missera.
En um leið og engin ástæða er til að
mála skrattann á vegginn væri það
dómgreinarleysi að virða að vettugi
þau viðvörunarljós sem blikka í al-
þjóðlegum efnahagsmálum. Gamall
fjandi okkar Íslendinga – verðbólg-
an – hefur minnt á sig. Og þótt
heimilin standi sterkt eru vísbend-
ingar um vaxandi áhættu vegna
skuldsetningar, þar sem hlutfall
skulda af ráðstöfunartekjum hefur
hækkað nokkuð. Hlutfallið er þó
lágt í sögulegu samhengi. Sú hætta
er fyrir hendi að þau heimili sem eru
illa varin fyrir verðbólgu og hækkun
nafnvaxta – eru með stóran hluta
skuldbindinga í breytilegum óverð-
tryggðum lánum – lendi í tíma-
bundnum erfiðleikum.
En þótt staðan sé góð er hún á
margan hátt viðkvæm. Fram undan
eru mikilvægir en líklega erfiðir
kjarasamningar, sem geta lagt
grunn að nýju tímabili stöðugt batn-
andi lífskjara. Við slíkar aðstæður er
það fullkomið ábyrgðarleysi af
stjórnum fyrirtækja að semja um
milljóna hækkanir á launum æðstu
stjórnenda – engu skiptir þótt þeir
séu þyngdar sinnar virði í gulli. Það
er stund og staður til að gera vel við
þá sem mestu ábyrgðina bera. Sem
betur fer hafa flestir stjórnendur
áttað sig á þessu enda hafa laun
þeirra hækkað minna en laun al-
mennra launamanna á síðustu árum.
En undantekningarnar eru hróp-
andi jafnt á almennum vinnumark-
aði og hjá ríkinu. Við samninga-
borðið, andspænis fulltrúum
launafólks, er trúverðugleiki stjórn-
enda sem notið hafa milljóna launa-
hækkana lítill sem enginn.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Það mun reyna á
stjórnvöld og aðila
vinnumarkaðarins að
verja lífskjörin sem hafa
ekki verið betri. Við
stöndum sterk eftir
ágjöf síðustu missera
Óli Björn Kárason
Höfundur er formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Sterk staða en viðkvæm
Möguleikar heimila á að ná endum saman
Hlutfall heimila semáttu auðvelt eða erfitt aðnáendumsaman2007-2021
75%
72%
23%
6%
67%
21%
26%
4%7%
80%
60%
40%
20%
0%
'07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21
Auðvelt
Erfitt eða nokkuð erfitt
Mjög erfitt
Heimild: Hagstofa Íslands
Breytingkaupmáttar ráðstöfunarteknaámann
Árleg breyting 2007-2021 (%)
10%
5%
0%
-5%
-10%
-15%
'07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21
Heimild: Hagstofa Íslands
8,0
6,3
-4,4
-14,4
-12,1
-0,4
0,3
3,6
8,8
1,4
6,6
4,7
0,2
2,4
1,1