Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2017, Qupperneq 5

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2017, Qupperneq 5
5Siglfirðingablaðið bæjarbúa fyrir mjólk og mjólkurvörur; jafnframt hafði bærinn tryggt vörur frá Akureyri, og síðar frá Sauðárkróki „þó hún hafi stundum verið súr“, eftir langan flutning, eins og segir í bréfi til Hólsbúsnefndar árið 1940. Uppbygging og aukin ræktun Siglufjarðarkaupstaður keypti býlið Hól af Þorleifi Bergssyni, sem þar bjó, árið 1927. Búið byrjaði með 20 mjólkandi kýr. Það stækkaði svo smátt og smátt; kýrnar voru orðnar um 40 um 1940; þær urðu flestar nálægt 70 um 1960. Ársframleiðslan fór hæst í tæpa 200 þúsund lítra upp úr 1960. Í fyrstu takmarkaðist landnýting Hólsbúsins við heimatún Hóls, en náði síðar einnig yfir Leyning, Saurbæ, Skarðdalskot og Efri- og Neðri Skútu. Áhersla var lögð á að stækka ræktunarlandið með tilheyrandi skurðgreftri og plægingum. Einn síðasti túnbletturinn sem búið ræktaði var á Leyningsmýrum, rétt norðan við stíflu vatnsveitu bæjarins innst í Hólsdalnum. Auk þessa leigði búið af og til lönd til ræktunar, m.a. í Haganesi í Haganesvík og í Vík í Sæmundarhlíð. Nýtingarlandið var lengi framan af alltof lítið til að tryggja nægilegt fóður fyrir gripi búsins. Því þurfti að kaupa hey. Heykaupin stóðu í beinu sambandi við stærð ræktarlandsins sem búið hafði yfir að ráða, en réðust líka af tíðarfari. Kaupin voru aðallega gerð í Skagafirði, allt frá Austur-Fljótum og upp í Sæmundarhlíð, en einnig einu sinni í Hrísey. Þau fóru líklega hæst í 2000 hesta á einu ári, 1949, en urðu svo engin undir það síðasta. Þá var framleiðsla búsins sjálfs orðin um 3000 hestar á ári. Fyrsta hús Hólsbúsins var byggt árið 1928. Segja má að það standi enn, sem kjarninn í miðhluta þeirrar húsalengju sem nú prýðir Hólshlaðið. Syðsti hlutinn var byggður fyrir bústjóra og mötuneyti árið 1934, en nyrsti hlutinn var byggður um 1960; hann kom í stað timburhúss sem þar stóð en fauk í ofviðri í nóvember 1959. Fjósið og hlaðan, sem lengi settu stærstan svip á staðinn, voru byggð í þremur Heimilisfólkið á Hóli: Arnþór Blöndal, Lúðvík Albertsson, Reynir Sigurðsson, Gunnlaugur Sigurðsson, Sigmar Magnússon, óþekkt, Svava Aðalsteinsdóttir, Þorleifur Einarsson, Magnús Sigmarsson, Stefán Sigmarsson, Bára Stefánsdóttir, Marínó Magnússon, Guðrún Sigmundsdóttir, Guðmundur Jónasson, Margrét Jónsdóttir, Sæmundur Kristjánsson, Guðrún Jónsdóttir. Myndin líklega tekin 1953.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.