Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2017, Qupperneq 9
9Siglfirðingablaðið
Fögnum 100
ára afmælinu
2018
ldarafmælis kaupstaðarréttinda á
Siglufirði verður fagnað á næsta ári.
Siglufjörður hlaut kaupstaðarréttindi
20. maí 1918 og hundrað árum áður
verslunarréttindi. Það er því ærið
tilefni til að fagna nú 100 ára kaupstaðarafmælinu og
200 ára verslunarafmælinu. En það eru ekki einu afmælin
sem við ætlum að fara í á árinu! 1. desember fögnum við
100 ára fullveldi Íslands. Alþingi ætlar að gera þeim stóru
tímamótum góð skil og við Siglfirðingar, hvort sem við
erum búsett í Fjallabyggð eða utan, ætlum að gera afmæli
okkar góða bæjar góð skil.
Bæjarstjórn Fjallabyggar hefur sett á laggirnar afmælisnefnd
sem hefur það verk með höndum að setja saman dagskrá
fyrir afmælishátíðina. Undirrituð situr í nefndinni fyrir
hönd Siglfirðingafélagins og liggja nú drög að dagskrá
hátíðarinnar fyrir. Það helsta sem mætti nefna nú á þessu
stigi er að stefnt er að því að hápunktur afmælisársins verði
á afmælisdeginum sjálfum 20. maí en þá verði slegið upp
veglegri afmælisveislu og þangað boðið Siglfirðingum nær
og fjær. Fólk ætti því að merkja við daginn í dagatalinu og
gera ráðstafanir til að vera fyrir norðan um Hvítasunnu
2018 en 20. maí 2018 ber upp á Hvítasunnudag. Næsta
sumar má síðan búast við hinum ýmsu uppákomum
tengdum afmælinu í tengslum við hinar ýmsu hátíðir á
Siglufirði eins og til dæmis Þjóðlagahátíðina, Trilludaga og
Norræna strandmenningarhátíð, sem til stendur að halda í
júlí.
Við hjá Siglfirðingafélaginu ætlum að sjálfsögðu að
halda upp á afmælið einnig hér sunnan heiða og hefur
sunnudagurinn 27. maí 2018 orðið fyrir valinu. Þetta er
daginn eftir sveitarstjórnarkosningar 2018 sem gerir daginn
vonandi bara enn betri. Hefð er fyrir því að halda hið árlega
Siglfirðingakaffi í kringum afmælisdaginn 20. maí og því
upplagt að slá saman kaffideginum og stórafmælinu 2018
í eina heljarinnar stórafmælisveislu. Afmælið hér sunnan
heiða verður haldið í Grafarvogskirkju sunnudaginn 27.
maí og hefst með messu kl. 14. Dagskráin verður auglýst
síðar.
Nú, afmælisbörnum viljum við gefa afmælisgjöf. Ekkert
er meira viðeigandi fyrir þetta fallega afmælisbarn en 100
ára saga þess í máli og myndum. Vildarvinir Siglufjarðar,
með þá Guðmund Stefán Jónsson, Gunnar Trausta
Guðbjörnsson, Jónas Skúlason og Árna Jörgensen í
broddi fylkingar, hafa undarfarnar vikur og mánuði unnið
ötullega að því að fjármagna gerð sjónvarpsþátta um 100
ára sögu Siglufjarðar. Samningar hafa náðst við RÚV um
gerð 4 -5 þátta og er gert ráð fyrir að þeir verði sýndir í
vetrardagskrá RÚV 2018/2019. Þættirnir verða gjöf okkar
allra til Fjallabyggðar og verða þeir formlega afhentir
afmælisbarninu að gjöf í afmælisveislunni heima á Sigló 20.
maí 2018.
Við hvetjum ykkur til að taka þessa daga frá, sunnudaginn
20. maí 2018 á Siglufirði og sunnudaginn 27. maí 2018
í Grafarvogskirkju . Frekari dagskrá fyrir báða viðburði
verður auglýst síðar.
Rakel Fleckenstein Björnsdóttir
Formaður Siglfirðingafélagsins
A