Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2017, Page 11
11Siglfirðingablaðið
Hver er maðurinn?
Ég heiti Pétur Halldórsson og er
fæddur 1. águst 1956 á Siglufirði.
Foreldrar mínir eru Ása Jónasdóttir
og Halldór Þorleifsson. Við erum alls
átta systkinin, þar af einn hálfbróðir,
sjö ólust upp saman á heimili foreldra
okkar á Siglufirði og er ég yngstur. Ég
flutti svo þaðan þegar ég var að verða
17 ára til Reykjavíkur.
Uppvöxtur og bernska
Við vorum kannski ekkert svo vel
fjáð á þessum tíma enda fjölskyldan
stór og því var maður sendur í sveit
þegar maður var ekki í skólanum. Ég
var sex ára þegar ég var fyrst sendur
í sveit og fór síðan öll sumur þar til
ég varð 12 ára. Það voru því frekar
fáar tómstundir sem maður var í s.s.
fótbolti og slíkt, sumaríþróttir duttu
alveg uppfyrir hjá mér. Ég stundaði
aðeins skíði yfir vetrartímann, það var
gaman en ég æfði ekki skíði. Söngur
og leiklist í skólanum þótti mér
mjög skemmtilegt og tók þátt í slíku
félagsstarfi.
Sumrin á Siglufirði, þeim man ég
lítið eftir nema að skólinn var búinn
og ég fór í sveitina og kom svo heim
í endaðan ágúst.Ég fékk til að mynda
ekki leyfi fyrr en ég var 12 ára til að
fara að vinna á síldarplani. Það var líka
síðasta síldarárið eða 1968, þá vann ég
hjá Hinriksen.
Á unglingsárunum neitaði ég að fara
í sveitina, ég fékk þá m.a. vinnu í
verslun hjá Gesti Fanndal, ég vann
við löndun hjá Stúarafélaginu, en
við lönduðum úr togurum og vorum
líka í því skipa út frystum fiski úr
frystihúsunum í borð um skip og
þess háttar. Stúrarafélagið var mjög
merkilegt, þar voru gamlir harðjaxlar
og þetta var skemmtileg vinna, það
var þroskandi að vinna með þessum
Ég er og verð Siglfirðingur,
því það er þar sem
ræturnar liggja
-segir Pétur Halldórsson, sem situr nú í bæjarstjórn
Sarpsborgar í Noregi.
Systkinin á Kirkjustíg.
Standandi: Valla og Sigga.
Sitjandi: Þorleifur, Þorvaldur með Pétur
þá Leifur og Jónas Halldórsbörn.
Æskuheimilið Kirkjustígur 5.