Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2017, Page 12
Siglfirðingablaðið12
köllum sem kenndu manni ýmislegt.
Ég vann þar eitt sumar, svo vann
ég í frystihúsinu eitt sumar eða í
Síldarverksmiðju Ríkisins.
Menntun og atvinna
Ég gekk náttúrulega í barna- og
gagnfræðaskóla á Siglufirði og fór
svo suður í nám í kjötiðnaði hjá
Sláturfélagi Suðurlands. Ég tók
sveinspróf rúmum fjórum árum eftir
að ég kom suður en um leið tók ég
kokkapróf í kvöldskólanum. Ég tók
próf fyrir matsvein til sjós, fyrst sem
matsveinn á fiskiskipum og síðan á
farskipum, það hefur komið sér vel.
Ég starfaði síðan í Reykjavík, bæði í
Kjöthöllinni og Kjötbúðinni Víði.
Eftir að ég flutti suður þá kom ég
heim að sumri og fékk vinnu aftur í
fyrstihúsinu sem eftirlitsmaður því
ég var kominn í nám í Iðnskólanum
og farinn að læra næringarefnafræði
og um bakterírur, það þótti því gott
að hafa mann í eftirlitinu. Þetta var
nú allt gott ogt blessað nema hvað að
framtíðin lá ekkert í þessu.
Það var lítil uppbygging á Siglufirði og
ég man eftir að þegar ég var búinn að
læra og taka sveinsprófið, kom ég heim
í sumarfrí, þá kom einn af „heldri“
mönnum bæjarins og bankaði heima.
Hann vildi ræða við mig um að að ég
startaði kjötiðnaðarstöð á Siglufirði.
Hann gæti skaffað húsnæði og lagt
til fjármagn í startið. Ég horfði bara
á hann og sagði: Nei takk! . Ég hafði
nefnilega ekki hugsað mér að setjast að
á Siglufirði
Ég fór síðan til Vestmannaeyja eina
vertíð áður en ég ákvað að fara til
Ísrael með kunningja mínum. Þar
fór ég á Kibbutz (samyrkjubú) og
dvaldi þar í þrjá mánuði. Þar kynntist
ég fólki frá ýmsum þjóðum og nýrri
menningu.
Út um víðan völl
Í Ísrael kynntist ég stúlku frá Noregi
sem varð mér kær en ég ákvað samt
að fara aftur heim til Siglufjarðar
og vinna í nokkra mánuði við
síldarbræðsluna. Síðan fékk ég einn af
bræðrum mínum, Jónas Halldórsson,
til að fara með mér til Noregs.
Þegar Jónas fór heim varð ég eftir
í Noregi hjá kærustunni og fékk
fljótlega vinnu í kjötvinnslu. Ég flutti
svo út í desember árið 1980 og eftir
að hafa búið í um það bil einn mánuð
í Sarpsborg í Noregi var ég orðinn
deildarstjóri í stórri verslun Miranda
matsenter í Rakkestad. Ég fór síðar að
vinna við kjötskurð i Gylde en vorið
1982 ákváðum ég og þáverandi kona
mín Úrsúla Halldórsson að fara aftur
til Ísrael og dvöldum við þar í nokkra
mánuði.
Það breytti svolítið tilverunni fyrir
mig, ég fann út að mér finnst mjög
skemmtilegt að vinna með fólki. Við
héldum svo til baka til Sarpsborg í
Noregi og ég ákvað að fara í nám. Við
komum heim í desember og því var
of seint að sækja um skólavist. Við
urðum því að taka okkur hálfs árs frí
til að bíða eftir nýju skólaári.
Þá fórum við til Íslands, til Akureyrar,
þar sem við fengum vinnu og bjuggum
hjá bróður mínum Jónasi Halldórssyni
og Mary Halldórsson sem átti ættingja
á Kibbutzinu (samyrkjubúinu) þar
sem við höfðum dvalið áður. Má segja
að það hafi haft áhrif á að við fórum
enn og aftur út, og þá sem partur
af þeirri fjölskyldu enda áttum við í
góðum samskiptum við fólkið hennar
þar.
Heimili og fjölskylda
Eftir dvölina í Ísrael fórum við til
Pétur tekur á því á söngskemmtun með kórnum í Solbakken.