Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2017, Side 14
Siglfirðingablaðið14
lauk kennaranáminu eða í 28 ár og á
orðið stóra fjölskyldu, vini og félaga
hérna. Ég kenni krökkum á aldrinum
13 til 16 ára og t.d. kenni ég 14 ára
krökkum matreiðslu og næringarfræði.
Það er bæði gaman og gefandi og þau
vaxa mikið á einu ári, þroskast og eru
móttækileg. Kennslan hefur gefið mér
mjög mikið og eftir öll þessi ár þá
hlakka ég alltaf til að mæta til vinnu á
ný eftir leyfi, fá nýja nemendur, hitta
vinnufélagana og gera ný kennsluplön.
Maður hefur nóg að vinna og snúast
hér í Noregi. Fyrir utan kennsluna,
starfa ég einnig í stéttarfélaginu
Skolenes Landsforbund, er í stjórn
LO-Sarpsborg og tek þátt í pólitíkinni,
þá syng ég einnig í kór. Kórinn er samt
svona meira tómstund og ventill fyrir
mig, til að fá útrás og hugsa bara um
tónlist. Þá gleymir maður pólitík og
öllu öðru og slappar af.
Ég hef einnig verið viðriðinn
stéttarfélagsstörf, verið í stjórn
stéttarfélags kennara, í landsstjórn,
var héraðsformaður í nokkur ár og er
ennþá starfandi í héraðsstjórn. Ég sit
einnig í stjórn í Borgen Arbeiderlag
hér í bænum og gerði það eftir stóru
skotárásin í Utøya hér í Noregi. Þá
ákvað ég að ganga í stjórnmálaflokkinn
Arbeiderpartiet og stuttu eftir var ég
kominn í stjórn LO- Sarpsborg. Þá
tók ég þátt í bæjarstjórnarkosningum
og sit nú í bæjarstjórn.
Við þetta má bæta að ég starfa
einnig í stjórn skóla og menntamála
í Sarpsborg og er spennandi að sjá
hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég hef
reyndar ekki enn ákveðið hvort ég gef
kost á mér annað kjörtímabil en það
eru þrjú ár eftir af þessu, svo það er
eiginlega of snemmt að segja nokkuð.
Heimahagarnir
Ég gæti ekki hugsað mér að flytja
aftur heim, þ.e. að flytja aftur til
Íslands. Það er þó gaman að koma í
heimsóknir en ég á í dag fjögur börn í
Noregi. Halldór er elstur fæddur 1975
og flutti sextán ára gamall til mín
út til Noregs og er búsettur þar auk
þriggja barna minna. Þannig að fjögur
eru hér í Noregi og nú eru komin sex
barnabörn. Ég er því kominn með
stóra fjölskyldu hér í Noregi Það er
því kannski skiljanlegt að ég get ekki
hugsað mér að flytja í burtu héðan.
Við Svala eigum einnig börn og
barnabörn á Íslandi og þar á meðal
Leikrit í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar. Björn Sveinsson, Jóel Kristjánsson, Pétur
Halldórsson, Siggi Rikki og Lóa, Guðrún Blöndal og Jóhanna Ingimars.
Pétur og Svala hafa komið sér vel fyrir í Solbakken með sína stóru fjölskyldu.
Ég er Siglfirðingur sama
hvað, af því að það er þar
sem ræturnar liggja.