Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2017, Qupperneq 15

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2017, Qupperneq 15
15Siglfirðingablaðið á Siglufirði svo það eru alltaf nægar ástæður til að heimsækja heimahagana. Siglufjörður finnst mér flottur bær í dag. Þegar ég flutti frá Siglufirði var ástandið frekar ömurlegt, fólk að flytja burtu, húsin voru að grotna niður og síldarplönin lúin og götótt og þar fram eftir götunum. Nú er búið að taka allt til, búið að rífa gömlu bryggjurnar, byggja nýja bryggju og stórt og glæsilegt hótel. Það eru einnig flottir menningarstaðir í bænum, glimrandi flott bakarí og veitingastaðir og svo eru auðvitað komin göng svo hægt er að keyra á milli Siglufjarðar, Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar. Það er stutt að keyra til Akureyrar, bara skottúr. Þetta er ekki eins og hér áður þegar þú fórst til Akureyrar þá fórstu kannski í nokkra daga. Mér finnst bærinn orðinn aðlaðandi og flottur í dag, það er gaman að koma í heimsókn en ég gæti þó ekki hugsað mér að eyða ellinni þar. Ég er líka ánægður með veðráttuna úti í Noregi meðal annars. Sarpsborg er í suðaustur Noregi, næstum því niðri við landamæri Svíþjóðar. það er heldur ekki svo langt fyrir mig að keyra til Gautaborgar en það tekur bara tvo tíma og það tekur bara um fimm tíma að keyra til Kaupmannahafnar. Þetta finnst mér líka gefa mér frelsi, og þess vegna finnst mér það tilheyra framtíðinni að vera í Sarpsborg áfram, að geta ferðast auðveldlega um og slíkt. Bærinn minn Siglufjörður, samfélagið þar og lífsreynsla manns í uppvextinum er þó það sem mótaði mig og persónuleika minn. Það að hafa farið að vinna ungur, öðlast skilning og þroskast með tilsögn frá þeim eldri og reyndari. Vinnan mótar mann, maður lærir mikið af reynslunni. Það eru bara ákveðnir hlutir sem maður fékk í veganesti að heiman frá Siglufirði sem ég hef alltaf með mér, ákveðin gildi í lífinu. Svo er það söngurinn, félagsstarfið í barna- og gagnfræðaskólanum, leiklist og söngur gaf einnig gott veganesti. Í dag syng ég mikið með kór og svo syng ég einnig einsöng með kórnum mínum. Það má líka nefna að þó mikill söngur sé í fjölskyldunni, þá voru karlakórinn Vísir, Gautarnir og fleiri, áhrifavaldar í tónlist, þetta hlustaði maður á og hlustar á enn í dag. Ég tek undir og syng með, ég kann þessi lög. Ég er Siglfirðingur sama hvað, af því að það er þar sem ræturnar liggja. Ég er með fjölda bekkjarsystkina á Facebook og má segja að maður hafi endurnýjað kynnin eftir að maður varð fullorðinn. Ég var á árgangsmóti í byrjun júlí 2016 sem var mjög skemmtilegt. Þá endurnýjuðust einnig kynni við gamla félaga en hins vegar fann maður líka til söknuðar vegna þeirra vina sem eru látnir. Það var samt sem áður mjög gaman að hitta skólasystkinin og endurnýja vinskap og við höfum ákveðið að hittast aftur. Það gefur manni mikið. Framtíðin Í dag vil ég lifa lífinu og stunda áhugamálin. Pólitíkin er óskrifað blað. Hvernig vil ég vinna í málum og hvaða tækifæri hef ég. Vegna þess að við erum í meirihluta í bæjarstjórn þá er léttara fyrir mann að framfylgja málum í gegnum bæjarstjórnina og um leið að þróa og þroska Sarpsborg sem bæ og samfélag. Sarpsborg er líka bær sem mér þykir vænt um og ég gæti aldrei hugsað mér að flytja annað. Þar vil ég vera og búa. Ég vil nýta krafta mína í þágu Sarpsborg, bæjarins míns í Noregi. Í framtíðinni vil ég vinna og leggja grunn að góðum eftirlaunaárum Ég er að koma mér upp litlu smíðaverkstæði á lóðinni við húsið mitt, þannig að þegar ég er orðinn ellilífeyrisþegi þá hef ég tíma til að smíða og skapa, jafnvel að selja handverk eftir mig. Þetta fer bara allt eftir heilsunni. Það væri líka gaman að geta heimsótt Siglufjörð svona einu sinni til tvisvar á ári, en það fer svo sem eftir því hvernig fjölskylduaðstæður eru á Siglufirði þannig sé ég þetta fyrir mér að koma kannski að sumri og um jól og fá að gæða mér á íslenskum jólamat. Það er nefnilega svo, að Siglufjörður er minn fæðingarbær og þar liggur hjartað. Gunnar Rafn og Birgir Schiöth með árgangi 1956 í skólaferðalagi.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.