Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2017, Qupperneq 22
Siglfirðingablaðið22
Bragi Magnússon, eða Bragi lögga
eins og hann var gjarnan nefndur á
Siglufirði, hefði orðið tíræður í janúar
á þessu ári hefði hann lifað. Bragi setti
svip sinn á Siglufjörð á sínum tíma
vegna starfs síns og ríkra hæfileika á
sviði teikninga og ritlistar.
Hér verður fjallað um Braga í tilefni
af þessum tímamótum og rætt við
Þórdísi Völu, dóttur hans, sem minnist
föður síns með mikilli hlýju.
Undir handarjaðri ömmu sinnar
Bragi Magnússon fæddist á Ísafirði
í janúar 1917. Hann andaðist í
apríl 2001. Bragi kvæntist Hörðu
Guðmundsdóttur og áttu þau tvær
dætur: Sigríði, Sirrý, sem var grafískur
hönnuður, fædd 1943 en lést 2013;
Þórdísi Völu, Systu, leikskólakennara
og ritara, fædd 1947.
Föðuramma Braga, Tormóna, tók
hann í fóstur nýfæddan. Ólst hann
upp undir handarjaðri hennar á
heimili föður síns og stjúpmóður en
þau fluttust til Siglufjarðar. Bragi
átti fimm hálfsystkini sammæðra og
jafnmörg samfeðra.
Bragi stundaði ýmsa vinnu, var
lengst af lögregluþjónn og varðstjóri
á Siglufirði, gerðist gjaldkeri hjá
bæjarfógetanum 1974 og gegndi því
starfi til eftirlaunaaldurs.
Heill og traustur
„Við pabbi vorum mjög náin. Hann
gerði fyrstu dúkkuna mína, smíðaði
skíðin mín, bjó til bækur handa mér,
kenndi mér að synda barnungri og
ég fór margar veiðiferðir með honum
í Fljótin. Hann var mjög ástríkur
og umhugað um velferð okkar
systra,“ segir Þórdís Vala í spjalli við
Siglfirðingablaðið. „Ég man aldrei
eftir því að hann hefði ekki tíma fyrir
okkur. Hann setti sig mjög vel inn
í það sem við vorum að gera, hvatti
okkur áfram og lagði ríkt á við okkur
að gera vel. Enda var hann sjálfur
mjög vandvirkur. Hann var heill og
traustur og stóð og féll með því sem
hann var að gera. Hann var stolt æsku
minnar.
Pabbi var fjölhæfur og greindur en
einnig gamansamur og skemmtilegur,
bæði út á við og inni á heimilinu.
Þrátt fyrir veikindi og erfiðleika ríkti
gleði á heimilinu enda voru báðir
foreldrar mínir spaugsamir.“
Smíðaði klukku, gítar og
veiðistöng
Sem dæmi um hve mikinn þátt
Bragi tók í leik dætra sinna nefnir
Þórdís Vala að hann hafi smíðað
skuggamyndavél fyrir þær. „Við
klipptum út myndir og myndasögur
úr blöðum og límdum á karton og
þessu var varpað á vegg. Krakkarnir
á Hafnarhæðinni fengu að vera
með. Stundum voru allir krakkarnir
í hverfinu í bíó inni í stofu hjá
okkur að sjá myndirnar og pabbi var
sögumaður.“
Bragi var handlaginn og hafði gaman
af að glíma við verk sem útheimtu
nákvæmni og vandvirkni. Meðal þess
sem hann smíðaði var gítar og forláta
klukka þar sem sjálft verkið var úr tré.
Einnig smíðaði hann sér veiðistangir.
Hver þeirra var límd saman úr sex
bambusrenningum. Þær eru mikil
listasmíð.
Snjall bakvörður
Bragi var mikill íþróttamaður og lagði
meðal annars stund á knattspyrnu,
skíði og sund. Hann var í liði KS
sem varð Norðurlandsmeistari í
knattspyrnu árið 1946. Hann var
bakvörður og þótti snjall í þeirri
stöðu. Seinni árin spilaði hann golf af
miklum áhuga.
Bragi starfaði ötullega að íþrótta- og
félagsmálum langt frameftir aldri.
Hann var skíðadómari í mörg ár og
gegndi formennsku eða var í stjórn
margra félaga á Siglufirði, einkum á
sviði íþrótta.
Þórdís Vala dóttir Braga löggu rifjar upp með
Kjartani Stefánssyni ævi föður hennar sem hefði
orðið 100 ára á árinu.
Hann var stolt
æsku minnar