Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2022, Page 2

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2022, Page 2
Siglfirðingablaðið2 ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ: SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ RITSTJÓRI: Gunnar Trausti SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS Ágætu Siglfirðingar! Það er búið að vera gaman að vinna þetta Sigl­ firðinga blað með Villi­ mönnum ungum og öld­ num. „Þarna bjó Herdís með sonum sínum, Gulla og Hirti, mest þekkt fyrir að vera með „græna fingur“ á þessum tíma. Einstaka gamall mórall tók sig upp og þetta fékk ég upp úr einum og eftirsjáin og leynir sér ekki: „Já aumingja Herdís sem galt þess að búa í útjaðri Villimannahverfisins. Hún mátti þola látlausa ásókn villimannanna í radísurnar, rófurnar og jafnvel gulrætur sem hún gerði tilraun til að rækta. Hún var einstaklega góð kona og kærði okkur aldrei.” Og annar minntist Braga Magg löggu með bland­ inni hlýju: „Bragi Magg hefði átt að fá heiðursmerki fyrir forvarnarstörf. En á þessum tímum var hann bara grýla í okkar huga.“ Meðan annar hélt því fram að Bragi hefði haft einhverja djöfulsins ánægju af að eyðileggja kajakana! En hvað um það ég vona að þarna hafi verið dregin upp mynd af kraftmiklum krökkum í bæjarfélagi sem ekki átti sína líka í fjölgun íbúa. Ástæða er til að vekja athygli á myndaseríunni af kajakarassíu lögreglunnar sem Júlíus Jónsson tók og leyfði okkur að birta enda nágranni villimanna. Kajakarnir voru úr bárujaárnsplötum sem lagðar voru saman og búinn til stafn og skutur úr tréstaurum. Kíttað var svo í naglagöt með stálbiki. Alveg ætti að vera óhætt að játa hér og nú að ekki var allt efni í kajakana fengið með því sem kallað er með leyfi eigenda, sem er önnur saga. Gunnar Trausti Fr á rit st jó ra www.gilbert.is KLASSÍSKT OG STÍLHREINT GILBERT DICTATOR VERUM VAKANDI ER ALLT Í GÓÐU? Fagleg og persónuleg dýrasnyrtistofa fyrir allar tegundir hunda og katta. Bókaðu tíma á noona.is/mariadyrasnyrting 868-7814 Hörgslundur 8, 210 Garðabæ @mariadyrasnyrting Samskipti ehf. hefur verið leiðandi fyrirtæki í prentþjónustu allt frá árinu 1978. Samskipti er reynslumikið þjónustufyrirtæki sem hefur alla tíð kappkostað að veita persónulega og góða þjónustu. Hafðu samband! Söluráðgafar okkar finna lausn sem hentar þér! 580 7820 · sala@samskipti.is · www.samskipti.is

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.