Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2022, Blaðsíða 5
Siglfirðingablaðið 5
Svo var bækistöð yfirmanna, sem var staðsett í Bragga,
sem ýmist hefur verið kallaður Rauði brakkinn eða
Pólstjörnubragginn, en húsið stóð við Ránargötu á svæði
sunnan við húsið þar sem Bás ehf. og fleiri er nú til húsa.
(2011) Þennan stað og íbúana heimsótti ég reglulega
á hernámsárunum þegar Bretarnir voru á Sigló. (Fyrsti
hópurinn).
Tungumálið var ekki upp á marga fiska, en með handapati
komst margt ótrúlega „vel til skila.“
Ég og Indriði Helgi Einarsson, fórum oft með sumum
þeirra, tveimur til þremur í göngutúra upp í Hvanneyrarskál
og stundum hærra. Þeir laumuðu oft til okkar súkkulaði
og fleiru góðgæti og stundum borðuðum við hjá þeim
í hádeginu, þegar þeir vissu af mæðrum okkar í síld á
Pólstjörnuplaninu. (Henning Bjarnason félagi okkar, kom
ekki á þessar slóðir en móðir hans, sem var þýsk hafði orðið
fyrir áreitni Bretanna).
Einu sinni gerðu þeir mér skiljanlegt að þeir hefðu áhuga
á að vita hver væri uppáhalds maturinn minn. Ég gat gert
þeim skiljanlegt að það væri skyr með rjóma. Nokkuð viss
er ég um, að þeir hafi ekki vitað hvað skyr var í raun og
veru. Þeir létu mig fá pening og báðu mig að kaupa það sem
mundi nægja fyrir fimm þeirra, en það voru viðkomandi
yfirmenn sem þarna bjuggu.
Þetta var að morgni til, ég hjólaði í mjólkurbúðina og
keypti 1 kg af skyri og flösku með ½ líter af rjóma. Þeir
gáfu mér afganginn af peningunum, sem var drjúgt í vasa
gutta eins og ég var þá. Síðan hélt ég á braut í mat heim
til mömmu.
Eftir hádegið þennan sama dag kom ég við hjá þeim til að
kanna hvernig þeim hefði líkað skyrið. Á móti mér kom
ókennilegur þefur, sambland af bruna og einhverju sem ég
ekki áttaði mig á.
Svipurinn á vinum mínum var enn torkennilegri. Ástæðan
var nokkuð brosleg þegar ég fékk staðfestingu á því af
hverju þessi torkennilega lykt og svipir þeirra stafaði.
1
2
3
4
5 6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Á nyrsta hluta eyrinnar var Villimannahverfið.
Herbraggarnir á Bretatúninu.
1. Hvanneyrarbraut 34
2. Sjúkrahúsið
3. Líkhúsið
4. Túngata 41
5. Ásgeirsbragginn
6. Túngata 39
7. Hvanneyrarbraut 36
8. Hvanneyrarbraut 35
9. Mjóstræti 2
10. Mjóstræti 1
11. Pólstjörnubragginn
12. Ásgeirshús skemma
13. Lúðuskúrinn
14. Hvanneyrarkrókur
15. Öskubryggja
16. Bæjarfógetabústaður
17. Laugi Gosa
18. Hólakot
19. Mjölhúsið í byggingu
20. Hvanneyrarbraut 30