Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2022, Page 29
Siglfirðingablaðið 29
Í síðasta blaði birtum við mynd af listaverkinu af Palla á
Höfninni sem lent hafði í hremmingum við tiltekt á Hótel
Hvanneyri.
Kiddi bróðir Guðbjarnar Haralds er kvæntur Pálínu dóttur
fyrrnefnds Páls Jónssonar. Guðbjörn brá skjótt við og bað
Ragnar Pál að lagfæra myndina af Palla sem hafði orðið
fyrir hnjaski. Ragnar gerði gott betur og skipti um föt á
Palla; færði hann úr léttum bikini baðfötum og kom fyrir
á honum slaufunni sem hann bar allajafnan og setti á hann
þessa fínu kokkahúfu.
Þeir félagar hafa komið í heimsókn til ritstjóra Sigl
firðingablaðsins um nokkurt skeið og látið gamminn geisa
og er það skoðun okkar Bubba að minni Ragnars Páls
jafnist á við minni kerlingarinnar sem mundi getnað sinn!
Þeim hefur orðið vel til vina og Guðbjörn launaði Ragnari
greiðann með því að gera við og huga að bíl málarans, sem
þarf oft að skjótast í snögga túra um okkar fagra land og
skissa mótív, fell og flóa.
Guðbjörn hafði komist yfir orginal tunnubotn, sem
framleiddur var undir vökulum augum Rögnvaldar
Sveinssonar í Tunnuverksmiðju ríkisins á Siglufirði sem
brann til kaldra kola árið 1964.
Þegar verkinu lauk þá vorum við Guðbjörn kallaðir til því
hvorki listmálarinn eða við vildum að hann hætti sér út í
hálkuna sem þá var yfir öllu og listmálarinn góði auk þess
með klemmda taug sem ekki þoldi nokkurt hnjask.
Verkið er unnið af alúð og er af síldarkerlingu sem er
að fá afhent merki fyrir tunnu sína. Og auðvitað gnæfir
Hólshyrnan yfir og við sjáum Sunnusalthús gægjast upp úr
málverkinu bakvið.
Fjær má sjá í Þóroddarbraggann og Nöfina hans Skafta.
Milli þeirra vina arkar síldarkerling á leið til að bjarga
verðmætum fyrir þjóðina.
Ragnar málaði á hlemminn
Vinirnir Ragnar Páll og Guðbjörn Haraldsson með tunnubotn úr Tunnuverksmiðju ríkisins á Siglufirði.