Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Apr 2018, Page 17

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Apr 2018, Page 17
Siglfirðingablaðið Ragnar Páll hefur átt góða og skemmtilega ævi og getur alls ekki gert upp á milli starfa, að eigin sögn. Hann er eldhress og mjög vel á sig kominn, enda búinn að ganga á öll áratugum saman sér til ánægju og gagnasöfnunar. Á uppstilltum trönunum er hann með málverk í smíðum og hljóðfærin eru í seil- ingararlægð. Útsýnið heima hjá honum er myndrænt. Víðátta sem aðeins er ron af einstaka alli og hæðum. Í mm ár hefur hann einu sinni í viku kennt á myndlistarnám- skeiði í Valhúsaskóla að áeggjan Sigurðar Konráðssonar, Sigga Konn, sem er liðtækur með pensilinn. Hópurinn samanstendur af 5-8 manns og það er ekki bara málað. Katími og bakkelsi er sjálfsagt á stundaskránni. Sagan segir að eitt sinn ha komið maður sem sagði að sig langaði til að læra að mála en vildi vita inntökuskilyrðin. Siggi sagði að það þyrfti að taka próf. Er þetta ertt próf spurði maðurinn. Fer eftir ýmsu, segir Siggi, mesta áherslan er reyndar á að kunna að baka! Maðurinn sást ekki meir. Ég þakka Ragnari Páli fyrir spjallið. Það var mjög gaman að fræðast um ævi hans og ria upp ýmis atvik úr bænum sem við eigum rætur okkar í. Það væri trúlega hægt að fylla heila bók með frá- sögnum af öllu því sem á daga hans hefur drið. Setning sem hann sagði í viðtali við Borghildi ors í bókinni Íslenskir mynd- listarmenn lýsir listrænni hugsun hans jafnvel eða betur en margt annað. Aðspurður þess hvað hann ætlaði að gera í júlí svaraði hann. „Vestur til að vaka um ljósar sumarnætur þar sem gullský sigla við sjónhring og blærinn gárar sund og voga." Jóna Möller Ragnar Páll á Hestskarðshnjúk við Sigluörð 30. júlí 1991. Kobbi mall. Teikning Ragnars Páls af eftirminnilegum nágranna á Siglurði. Í lok þessa spjalls um tónlistar- ferilinn minni ég Ragnar Pál á að hann ha samkvæmt google.is einnig samið kvikmyndatónlist. Það var við myndina Labbað um Lónsöræ, sem Ásgeir Long fram- leiddi 1965. 17

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.