Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2018, Síða 27

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2018, Síða 27
27Siglfirðingablaðið Félagarnir Bjössi Birgis og Kristján með lúkkið á hreinu. Svo fengum við að æfa í Sjálf- stæðishúsinu og tókum það svo á leigu eitt sumar. Það var mikið brallað og þá voru Gummi Ingólfs og Guðmundur Ragnars- son komnir í stað Stjána Hauks og Jóa Skarp og spilastíllinn orðinn öllu þyngri; ”Here comes the sun” og allskonar blúsar og Anna Lára í ska-takti og svoleiðis stö. Böll voru haldin um hverja helgi, reyndar misvel sótt. Stundum voru tveir eða þrír en stundum alveg stappað, fór vita- skuld eftir því hvað annað var um að vera í bænum. Svo kom Hiroshima og þá ætlaði nú allt um koll að keyra, eða þannig. Það vorum við Gummi Ingólfs, Sigurður Hólm- steinsson og Gummi Ragnars sem stóðum að því bandi og æfðum í Borgarka. Þetta var býsna vanmetið band. Hólm- steinsson á Rickerbackerinn var magnaður og Gummi Ingólfs gat nú bara sungið allt!!! Við spiluðum ekkert voðalega mikið, svona eitt og eitt skólaball. Það var allt í lagi að spila á skóla- böllunum en djöfullegt að fá borgað fyrir það enda Kristján Lúðvík sem sá um þá fáu aura sem inn komu og sat fast á þeim. Það kom fyrir að þessar hljóm- sveitir sem ég var í spiluðu á jóla- böllum og er það einhver hall- ærislegasta vinna sem ég hef innt af hendi og alltaf hét ég því að gera þetta aldrei aftur, en það var borgað fyrir þetta og mann vantaði alltaf aur. Af einhverjum ástæðum vorum við beðnir um að spila á balli í Menntaskólanum á Akureyri og þótti okkur talsvert til þess koma að þurfa að leggjast í ferða- lög. Ingólfur í Höfn, pabbi Gumma, átti þá Landrover, sem Gummi fékk stundum lánaðan og við rúntuðum á mörg kvöldin og á sama tíma var Gunnar Júlíusson á rúntinum á jeppa sömu tegundar sem Júlíus Gunnlaugsson pabbi hans átti og þegar kom að því að koma hljómsveitinni inn á Akureyri var kominn vetur og engum fært nema vel búnum Landrover- jeppum. Með herkjum tókst okkur að troða græjunum og mannskapnum inn í Ingólfs- og Júlíusartröllin ásamt því að binda hluta tólanna upp á þök þeirra. Við vorum a.m.k. átta, ef ekki níu, sem fórum þessa ferð, sumir voru að taka kjéll- ingarnar með og svona. Það gekk ljómandi í fyrstu eða þar til við vorum að komast upp á Öxnadalsheiðina. Snjóföl á veg- inum, skítakuldi og næs og sem við ökum þarna sjáum við, í Ingólfströllinu hvar hjól undan bíl skoppar á fullri ferð fram úr okkur og þótti það mjög fyndið, þar til kom í ljós stuttu seinna að þetta var hægra afturhjólið undan okkar bíl. Svo vel var bíllinn lestaður að hann hélt fullu jafnvægi á þremur hjólum. Þarna rétt hjá var bóndabær og er mér ógleymanlegt hvað bænd- urnir þar voru hjálpsamir. Eftir nokkurra klukkutíma töf héld- um við síðan áfram ferð en vegna tafarinnar náðum við ekki að prófa hljóðfærin eða stilla þau saman neitt að ráði áður en ballið hófst. Hvort það var þessvegna eða bara vegna þess hvernig við spiluðum sem skólameistarinn kom til okkar og bað okkur vinsamlegast að lækka, veit ég ekki, en allavega, honum varð ekki kápan úr því klæðinu; við spiluðum eitt rólegt lag og þrusuðum svo öllu í botn, það bara varð að vera í botni!! Heimleiðis komumst við síðan klakklaust, eða þannig. Á þaki Ingólfströllsins vorum við með forláta hátalarasúlur, sem við höfðum smíðað sjálr og voru ”dúndur” fínar, grænar og gular, minnir mig. Nema hvað að við

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.