Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 2018, Síða 29
29Siglfirðingablaðið
Gerðu, Þorsteinn Guðmundsson,
sá um að tilkynna áhorfendum
hvenær þeir áttu að hlægja, á réttu
augnabliki, að hans áliti, og var
hann veifandi tilkynningaskiltum
sínum í tíma og ótíma.
Þessir tónleikar þóttu takast vel,
þó ekki væru þeir neitt sérstaklega
vel sóttir, en þeir sem fram komu
og þeir sem borguðu sig inn
gleyma þessu framtaki aldrei,
þetta var svo hrikalega gaman.
Svo mörg voru þau orð.
Tramps, Rauðu varðliðarnir
og Attack
Gunnar Trausti Guðbjörnsson
setti á síðasta ári inn eina af sín-
um frábæru færslum á facebook
um aðkomu sína að stórhljóm-
sveitinni Tramps sem ég leyfði
mér að "fá lánaða".
"Um svipað leyti og e Beatles
komu til Sigluarðar og Sverrir
Jóns kom úr sveitinni með hár
niður á herðar, stofnuðum við
Nonni Baddi, Þolli, Jói Skarp
og ég hljómsveit. Ég fórnaði næst-
um 10 krónum í kaup á dægur-
lagatextahefti vegna þess að í því
voru bítlatextar við bítlalög. Eftir
mikið japl, jaml og fuður kom-
um við okkur niður á nafn. Ebba
systir Jóa hafði lánað honum
enska orðabók. Það er til marks
um eljuna að við fundum ekki
nothæft nafn fyrr en í T-unum:
TRAMPS! - Það þýðir ækingar,
sagði Jói. Tramps vann sér það
helst til frægðar að syngja og
spila heima hjá Nonna Badda
þegar að Hadda og Hannes voru
ekki heima. Nonni spilaði á
potta með sleifum. Þolli söng í
Óli Ægis, Siggi Hólmsteins, Nonni Baddi og Þolli. Ekki er vitað
hvort einhverjir hafa fallið utan myndatarins og hvort þetta
gæti hafa verið fyrsti vísirinn að Rauðu varðliðunum.
Myndin er úr einkasafni Sigurðar.
þeytaraspaða (hann var nefnilega
bróðir Þorvaldar á sjó) og við Jói
spiluðum á kúst og skrúbb og
sungum í standlampa sem hægt
var að hækka og lækka eins og
hljóðnema. Vinsælasta lag þessar-
ar geðþekku hljómsveitar var
tvímælalaust Pretty woman eftir
Roy heitinn Orbison. Tramps
komu einu sinni fram opinber-
lega í Æskulýðsheimilinu við
gífurlegan fögnuð æstra ´53 ár-
gangs grúppía og þaðan af yngri
kvenna".
Það hefur líklega liðið einhver tími
frá því að Tramps andaðist og þar til
stofnað var til Rauðu varðliðanna,
en þar var Gunnar reyndar ekki með.
Rauðu varðliðarnir eins og þeir voru skipaðir lengst af. Siggi Hólm-
steins, Nonni Baddi, Gummi Ragnars og Sturlaugur.
Myndin er úr einkasafni Sigurðar.
Þá hljómsveit skipuðu þeir Siggi
Hólmsteins, Sturlaugur Kristjáns,
Jón Baldvin Hannesson eða Nonni
Baddi og Guðmundur Ragnarsson,
en eiri munu þó hafa komið eitt-
hvað við sögu. Óli Ægis og Þolli
(Þorleifur Halldórsson) í uppha,
en einnig Guðjón, strákur frá Seyðis-
rði módel 1951 sem var í Gaggan-
um einn vetur. Kannski var sá síðast-
nefndi bara gesta- eða aeysinga-
spilari í fá skipti. Flestir voru fæddir
1953 og urðu jótlega hálfgerðar
barnastjörnur á Sigló, enda ekki nema
12-13 ára gamlir. Þessir drengir
spiluðu talsvert á unglingaböllum
í Æskó en líka eitthvað í Gagganum.
En eins og gjarnt er um unglinga-