Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr 2018, Qupperneq 31
Siglfirðingablaðið
Unglingahljómsveitin Hendrix. Frá
vinstri talið: Viðar Jóhanns, Þórhallur
Ben, Guðni Sveins, Óttar Bjarna og sá
sem þetta ritar, Leó Ólason. Myndin er
tekin 37 árum eftir að hún starfaði þegar
bekkurinn hittist á árgangsmóti árið 2005.
Heimildarmenn:
Kristján Elíasson,
Ingvar Björnsson,
Guðmundur Ragnarsson,
Gunnar Trausti
Guðbjörnsson,
Sigurður Hólmsteinsson.
31
Leó R. Ólason
keypta af Sigga Hólmsteins í fyrirfram
gefna fermingargjöf, ásamt ágætum Teisco
magnara og reyndust þessar græjur þegar
frá leið mikill örlagavaldur í mínu lí.
Land of the thousand dances ásamt eiri
lögum sem þá voru komin á prógramm-
ið. Þessi nýi maður var Guðni Sveins
og mér var sagt að hann væri nú geng-
inn í hljómsveitina sem rythmagítar-
leikari, en Þórhallur yrði því héðan í
frá sólógítarleikari
Áður en ég komst í einhvern alvöru
gang með bandinu var Guðni búinn
að ná ágætum tökum á gamla Fender
Jazzmasternum sínum sem hann púss-
aði upp og lakkaði skínandi svartan.
Mér fannst það samt pínulítið súrt í
broti að inn kæmi maður á eftir mér
sem spændi fram úr mér, en ég gat samt
lítið annað en setið hjá og horft upp á
þessi ósköp gerast. Ég er heldur ekki
frá því að ég ha fundið fyrir örlitlum
straumum öfundar og afbrýðisemi
vegna þessarar þróunar, en það lagaðist
samt allt þegar frá leið og ég var farinn
að kunna eitthvað svolítið fyrir mér.
Þökk sé Gerhard Schmidth þeim frá-
bæra kennara, en hann vissi alveg hvað
hann var að gera, þegar hann sendi mig
heim með nótur með heitustu popp-
lögunum í staðinn fyrir þurrar ngra-
ængar, en ég drakk að sjálfsögðu þessi
ængarverkefni í mig eins og lang-
þyrstur maður. Um vorið vorum við
komnir með ein þrettán lög og spiluð-
um á balli í Æskó og fengum fyrir það
nokkra hundraðkalla á mann. Það verður
að teljast nokkuð gott að fá greitt fyrir
allra fyrsta giggið sitt, og ekki síst þegar
maður er aðeins 14 ára.
Nokkrir drengir sem tímdu ekki að
borga sig inn, estir fæddir árið ´53,
norpuðu fyrir utan í kvöldsvalanum
og hlustuðu.