Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Síða 5
Siglfirðingablaðið 5
hægjast um, en starfaði þó undir
stjórn Elíasar Þorvaldssonar um
tíma og m.a. árið 1977 þegar
hann tók þátt í kóramóti Heklu
sem haldið var um sumarið.
Guðjón Pálsson organisti stjórn
aði kórnum 1981 og 82, Andrew
Hurel 1983 og síðan aftur Elías
við einhver tækifæri eftir það. Það
mun hafa verið árið 1980 sem
síðasta stjórn kórsins var formlega
kosin á aðalfundi þó að hann
starfaði nokkur ár til viðbótar, en
mér er ekki kunnugt um að hann
hafi í sjálfu sér verið leystur upp.
Enn er því von.
Einherji spjallar við Gerhard.
Í desemberblaði Einherja árið
1963 er viðtal við Gerhard
Schmidt sem var þá nýtekinn við
sem skólastjóri hinna sameinuðu
tónlistarskóla á Siglufirði eftir að
Sigursveinn D. Kristinsson flutti
úr bænum. Það fer hér á eftir
óstytt.
“Í síðasta tbl. Einherja er sagt frá
þeim breytingum, sem átt hafa sér
stað, viðkomandi tónlistarmálum
í Siglufirði, stofnun tónlistarráðs
og sameiningu hinna tveggja
tónlistarskóla, sem starfað hafa
undanfarin ár. Þar voru og einnig
taldir upp þeir kennarar, sem
ráðnir hafa verið að skólanum
yfirstandandi skólaár. Einherji vill
nú gefa lesendum sínum kost á
að kynnast einum þeirra lítillega,
skólastjóranum sjálfum, þjóðverj
anum Gerhard Schmidt. Heima
á hinu aðlaðandi heimili skóla
stjórahjónanna, að Hólavegi 37,
svaraði Gerhard Schmidt eftirfar
andi spurningum, á meðan frú
Gisella Schmidt bar fram ágætar
veitingar.
Hvenær og hvar ert þú fæddur?
Ég er fæddur 14. sept. 1929 í
Romeburg í Thuringen í Mið
Þýzkalandi, en það er um það bil
15 þúsund íbúa bær. Þar stundaði
faðir minn hljómlistarstörf m.a
stjórnaði hljómsveit.
Hvað um nám þitt?
Ég byrjaði snemma að spila á
hljóðfæri, en þó var víst ekki
meiningin að ég gerði það
að lífsstarfi mínu, því ég varð
útlærður vefari, áður en ég hóf
reglulegt tónlistarnám, en þá fór
ég í tónlistarskólann í Gera, sem
er allstór borg, 8 km frá fæðingar
bæ mínum. Síðan fór ég á tónlist
arskólann í Erfurt og lauk þaðan
atvinnumannaprófi í músik árið
1954. Síðan innritaðist ég i tón
listar háskólann í Leipzig, og lauk
prófi þaðan vorið 1961, og var
trompetleikur aðal námsgreinin.
Hvernig bar það svo til, að þú réðst
að flytjast til Siglufjarðar?
Í skólanum hékk svört auglýs
ingatafla. Einn daginn var þar
auglýst eftir tónlistamanni
til Siglufjarðar, sem kenna skyldi
við tónskólann þar og stjórna
lúðrasveit. Ég fór að íhuga, hvort
tiltækilegt væri fyrir mig að sækja
um þetta starf.
Útvegaði ég mér allar þær bækur,
sem hægt var að fá um Ísland,