Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 7

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 7
Siglfirðingablaðið 7 lenskra karlakóra sem var stofnað það árið og eftir því sem næst verður komist var hann einn að stofnendum þess. Aðdragandinn að stofnuninni var sá, að söng­ málanefnd vann að undirbúningi Alþingishátíðarinnar 1930 og var þetta fyrsta viðfangsefni hins nýstofnaða sambands. Var Vísir því einn þeirra kóra sem stóð að “Landskórinu” svokallaða, en það var sameinaður kór sem hafði það hlutverk að syngja á Alþingis­ hátíðinni á Þingvöllum sumarið 1930. Kórarnir sem tóku þátt í samsöngnum á Alþingishátíðinni voru: Vísir, Siglufirði (19 söng­ menn), Karlakór Reykjavíkur (35), Stúdentakórinn (14), Karla­ kór KFUM (37), Geysir (26) og Karlakór Ísafjarðar (19), eða alls 150 söngmenn. Aðrar heim­ ildir segja þó að Vísir hafi verið minnsti kórinn með aðeins 15 söngmenn þarna á Þingvöllum og enn aðrir 14. Árið 1934 fór Vísir á söngmót Sambands íslenskra karlakóra og sjálfstæðar söngferðir til Reykjavíkur árin 1937 og 1944 og auðvitað fékk hann alltaf góðar viðtökur og frábæra dóma. Því miður eru mjög strjálar upplýs­ ingar um söngferðir kórsins næstu árin, en vitað er að hann fór nokkuð reglulega í tónleikaferðir um landið, bæði norðanlands og sunnan. Í 25 ára afmælisgrein kórsins í Einherja árið 1949 segir að Vísir hafi þá alls verið búinn að fara 15 söngferðir út um land og sungið á 24 stöðum. Að morgni Hvítasunnudags árið 1955 lagði Karlakórinn Vísir upp í söngferðalag og hélt fyrstu tón­ leikana á Akureyri síðdegis þann sama dag og aftur á Sauðárkróki um kvöldið, en daginn eftir voru haldnir tónleikar á Akranesi. Næsta dag lá leiðin til Reykjavík­ ur og þaðan á Selfoss, en óhætt er að segja að ekki hafi verið slegið slöku við þar sem haldnir voru fimm tónleikar á fjórum dögum í ýmsum landshlutum. Söngstjóri í þessari ferð var Haukur Guð­ laugsson en honum til aðstoðar var Siglfirðingurinn Þorsteinn Hannesson óperusöngvari sem dvaldist á Siglufirði tvo mánuðina fyrir ferðina við raddþjálfun kór­ félaga. Undirleikari var Guðrún Kristinsdóttir píanóleikari, en einsöngvarar Daníel Þórhallsson og Sigurjón Sæmundsson. Veruleg breyting verður á eftir að Gerhard Schmidt tekur við kórn­ um, en hann kemur til Siglufjarð­ ar 1961 og hefur þá kennslu í nýsameinuðum tónskóla Vísis og verkalýðsfélaganna. Fyrst sem kennari en þó fljótlega sem skóla­ stjóri hans, og gerist síðan söng­ stjóri kórsins árið 1963. Upp úr því tók við nýtt skeið í sögu Vísis, en kórinn heimsótti Ólafsfjörð í maímánuði á afmælisárinu og verður ekki séð annað en að þetta hafi verið fyrsta söngferð hans út úr bænum undir stjórn Gerhards. Hann söng þá í Tjarnarborg ásamt einsöngvurunum Guð­ mundi Þorlákssyni og Sigurjóni Sæmundssyni, 26 hljóðfæraleikar­ ar aðstoðuðu kórinn síðari hluta skemmtunarinnar auk þess sungu tíu konur með í tveimur síðustu lögunum. Ógleymanleg kvöldstund sagði fréttamaður Tímans á Ólafsfirði. Um haustið er svo auglýst eftir söngmönnum, því til stóð að fjölga í kórnum og stækka hann umtalsvert. Á árinu 1965 var ekki mikið um tónleikaferðir því að sögn stjórn­ andans skyldi tíminn notaður til æfinga, því stefnt væri að því að gera víðreist næsta árið á eftir og þá væri gott að koma vel undirbúinn til leiks. Þó var ekki alveg hægt að sitja heima, því í maímánuði var haldið af stað upp á Sauðárkrók þ. 14. maí. ásamt Lúðrasveitinni, kvennakórnum og sennilega Gautunum þó þeirra hafi ekki verið getið í neinum heimildum sem ég hef aðgang að. Mun hópurinn hafa verið með þeim allra fyrstu sem fóru um Siglufjarðarskarð eftir að það var opnað það vorið. Kórinn hélt söngskemmtun í félagsheimil­ inu Bifröst, en söngstjórar voru Gerhard Schmidt og Sigurður Demetz Franzson. Einsöngvarar voru Guðmundur Þorláksson, Sigurjón Sæmundsson og Þórður Kristinsson. Húsið var þéttskipað og áheyrendur tóku kórnum með svo mikilli hrifningu að hann varð að endurtaka flest lögin. Eft­ ir skemmtunina lék lúðrasveitin svo nokkur lög á flötinni fyrir framan húsið. Og Gerhard setti vissulega markið hærra næsta ár og um vorið 1966 fór kórinn í vikulanga söngferð til Herning í Danmörku, og söng á þrennum tónleikum. Þess ber að geta að það var ekki á hverjum degi sem kórar fóru í ferðalög til annarra landa á þessum tíma og allra síst landsbyggðarkórar. Um Danmerkurferðina má lesa í Morgunblaðinu þ. 28. apríl 1966:

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.