Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Side 8
Siglfirðingablaðið8
“Sé litið í sjónauka sögunnar
aftur í aldir, má líta í þá neyð og
niðurlægingu íslenskrar þjóðar,
að um það var rætt í fullri alvöru,
að flytja hana á Jótlandsheiðar til
framtíðarbúsetu. Þessi sögulega
staðreynd er að vísu fjarri í tíma
og andstaða líðandi stundar, en
þó hollur samanburður, sem
svartkrítar menn dagsins í dag
gætu sótt í þarfan lærdóm. Úr
litlu norðlensku byggðarlagi,
Siglufirði, er nú fyrirhuguð 80
manna söng og skemmtiför á
þessar sömu Jótlandsheiðar, sem
fyrrum var fyrirhugaður kirkju
garður íslensks þjóðernis”.
Og síðar segir í sömu grein:
“Alls taka um 40 kórfélagar þátt
í greindri söngferð, auk bland
aðs kvartetts, undirleikara og
um 30 eiginkonum kórfélaga.
Fyrirhugað er að fara til Akur
eyrar, miðvikudaginn 27. þ. m.
og verður þann dag konsert á
vegum kórsins í Sjálfstæðishúsinu
á Akureyri. Daginn eftir verður
flogið frá Akureyri til flugvallar
í nágrenni Herning á Jótlandi,
vinabæjar Siglufjarðar í Dan
mörku. Auk Herning syngur
karlakórinn Vísir í þremur öðrum
borgum á Jótlandi og auk þess
í Kaupmannahöfn og í danska
útvarpið. Á söngskrá kórsins eru
milli 20 og 30 lög, innlend og
erlend, allt frá gömlum íslenskum
til nýtísku tónlistar. Einsöngvarar
kórsins verða: Guðmundur Þor
láksson, Sigurjón Sæmundsson
og Þórður Kristinsson. Kvartett
inn, sem syngur með kórnum
skipa: frú Guðný Hilmarsdóttir,
frú Magðalena Jóhannesdóttir
Schiöth, Guðmundur Þorláks
son og Marteinn Jóhannesson.
Söngstjóri kórsins leikur einleik
á trompet. Hann hefur og útsett
mörg þeirra laga er kórinn syngur.
Fyrirhugað er að fljúga heim frá
Kaupmannahöfn þ. 8. maí nk.
Það er mikið starf sem liggur að
baki þessarar söngferðar, og förin
lýsir djörfu framtaki og menn
ingarviðleitni í litlum kaupstað.
Og vel mætti hljóma íslenskur
lofsöngur á Jótlandsheiðum, sem
nú fá heimsókn þeirrar þjóðar,
sem þangað var ætlað annað
erindi, við aðrar aðstæður, en hún
býr við í dag”.
En Danmerkurferðin ein og sér
var ekki látin nægja því auðvit
að var fyrst haldinn konsert á
Siglufirði á páskadag sem var eins
konar generalæfing, en fáeinum
dögum síðar söng Vísir á Akur
eyri á leið sinni til Danmerkur.
Fyrsti konsert í Danmörku var
að sjálfsögðu í Herning vinarbæ
Siglufjarðar, þar sem tekið var á
móti íslendingunum með mikilli
viðhöfn. Síðan var sungið í Vejle
og Árósum, en einnig söng kór
inn í danska útvarpið.
Haldin var sérstök söngskemmt
un ytra fyrir Carlsberg í þakk
lætisskyni fyrir að Carlsbergsjóð
urinn gerði á sínum tíma séra
Bjarna Thorsteinssonar kleift
að gefa út þjóðlagasafn sitt árið
1909.
Einsöngvarar með kórnum voru
þeir Guðmundur Þorláksson,
Sigurjón Sæmundsson og Þórður
Kristinsson, en einleik á trompet
lék söngstjórinn Gerhard Schmidt
og auk þess kom blandaði kvar
tettinn fram með kórnum.
En hópurinn var varla fyrr kom
inn heim en hann var farinn að
halda enn fleiri tónleika. Fyrsti
konsertinn var í félagsheimilinu
Stapa í Njarðvíkum, daginn eftir
í Bæjarbíói í Hafnarfírðí hvíta
sunnudag og á annan í hvíta
sunnu í Gamla Bíói í Reykjavík.
Í þessari ferð söng kórinn svo líka
inn á tvær hljómplötur fyrir Fálk
ann þannig að nóg var að gera hjá
kórfélögunum.
Skömmu fyrir jólin 1966 komu
út á vegum Fálkans h.f. í Reykja
vík báðar hljómplöturnar með
Karlakórnum Vísi, önnur platan
með 4 lögum, en hin með 14.
Þær náðu mjög miklum vinsæld
um og á rúmlega hálfu ári, eða til
1. júlí 1967, munu hafa selst af
stærri plötunni um 3500 ein
tök, og var mesta sala á íslenskri
hljómplötu í það minnsta það
árið.
Veturinn 1966 til 67 æfði Vísir
af kappi nýtt og metnaðarfullt
prógram og að sögn söngstjór
ans verður slíkt ekki fullæft á
skemmri tíma en tveimur vetr
um ef vel á að vera. Hann sagði
kórinn ekki hafa i hyggju að fara í
neinar söngferðir á þessu vori, en
talað hefði verið um aðra utan
landsferð um á næsta ári. Karla
kórinn hélt þó söngskemmtun
í heimabænum að vanda þá um
vorið.
Í lok ársins spurðist svo út að
kórnum hefði verið boðið að
syngja á MIDEM tónlistarráð
stefnunni sem haldin yrði í
Cannes árið eftir, og tilefnið væri
að platan hafði orðið sú næst
söluhæsta í heiminum miðað
við markaðssvæði í flokknum
“Folksongs”.
Útgefandi: Karlakórinn Vísir. • Framleiðandi: Myndbandavinnslan. • KV 2011 CD01 AAD
Flestar upptökur voru gerðar hjá Ríkisútvarpinu.
Hljóðvinnsla: Gunnar Smári Helgason. • Umsjón og undirbúningur: Karlakórinn Vísir.
Ljósmyndir af Gerhard: Ljósmyndastofa Siglufjarðar.
Hönnun umslags: Gunnar Steinþórsson, grafískur hönnuður.
Ciribiribin Gerhard Schmidt
1. Ciribiribin. Pestalozza – Hafliði Guðmundsson.
Einleikur á trompet: Gerhard Schmidt. ..............................................................(3.05)
2. Hæ, gott kvöld. Jóskt þjóðlag. .......................................................................(1.58
3. Miðnæturstemning. Þýskt þjóðlag – Stefán Friðbjarnarson ............................(5.42)
4. Okkar glaða söngvamál. Emmerich Kálmán – Bjarki Árnason. .......................(2.29)
5. Um vorkvöld bjart. Fr. Silcher – H. Björnsson. .................................................(1.43)
6. Kveiktu ljós. Springfield – Hafliði Guðmundsson.
Blandaður kvartett syngur með kórnum. ...........................................................(3.09)
7. Ljóð mitt og lag. G. Lathann – Stefán Friðbjarnarson. ....................................(2.08)
8. Allir sveinar af stað. Bernhard Weber – Hafliði Guðmundsson ......................(5.56)
9. Dans úr Zorba. Mikis Theodorakis – Bjarki Árnason. Hora staccato
Enecu / Heifetz – Bjarki Árnason. Einleikur á trompet: Gerhard Schmidt. ...........(4.41)
10. Aðeins til þín. Bert Kaempfert – Guðmundur Bjarnason.
Einleikur á trompet: Gerhard Schmidt. ..............................................................(4.22)
11. Rifjaðu upp Shakespeare – Wunderbar. Cole Porter – Egill Bjarnason. ........(3.42)
12. Sem lindin tær. Casano-Conti – Bjarki Árnason.
Einsöngur: Guðmundur Ó. Þorláksson...............................................................(3.00)
13. Troika. Rússneskt þjóðlag – Stefán Friðbjarnarson.
Einsöngur: Sigurjón Sæmundsson. ....................................................................(3.57)
14. Siglufjörður. Bjarki Árnason. ...........................................................................(1.19)
Gerhard Schmidt
Ciribiribin
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Gerhard (fors-bak a bok).pdf 5/31/11 10:21:31 PM