Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Síða 8

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Síða 8
Siglfirðingablaðið8 “Sé litið í sjónauka sögunnar aftur í aldir, má líta í þá neyð og niðurlægingu íslenskrar þjóðar, að um það var rætt í fullri alvöru, að flytja hana á Jótlandsheiðar til framtíðarbúsetu. Þessi sögulega staðreynd er að vísu fjarri í tíma og andstaða líðandi stundar, en þó hollur samanburður, sem svartkrítar menn dagsins í dag gætu sótt í þarfan lærdóm. Úr litlu norðlensku byggðarlagi, Siglufirði, er nú fyrirhuguð 80 manna söng og skemmtiför á þessar sömu Jótlandsheiðar, sem fyrrum var fyrirhugaður kirkju­ garður íslensks þjóðernis”. Og síðar segir í sömu grein: “Alls taka um 40 kórfélagar þátt í greindri söngferð, auk bland­ aðs kvartetts, undirleikara og um 30 eiginkonum kórfélaga. Fyrirhugað er að fara til Akur­ eyrar, miðvikudaginn 27. þ. m. og verður þann dag konsert á vegum kórsins í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. Daginn eftir verður flogið frá Akureyri til flugvallar í nágrenni Herning á Jótlandi, vinabæjar Siglufjarðar í Dan­ mörku. Auk Herning syngur karlakórinn Vísir í þremur öðrum borgum á Jótlandi og auk þess í Kaupmannahöfn og í danska útvarpið. Á söngskrá kórsins eru milli 20 og 30 lög, innlend og erlend, allt frá gömlum íslenskum til nýtísku tónlistar. Einsöngvarar kórsins verða: Guðmundur Þor­ láksson, Sigurjón Sæmundsson og Þórður Kristinsson. Kvartett­ inn, sem syngur með kórnum skipa: frú Guðný Hilmarsdóttir, frú Magðalena Jóhannesdóttir Schiöth, Guðmundur Þorláks­ son og Marteinn Jóhannesson. Söngstjóri kórsins leikur einleik á trompet. Hann hefur og útsett mörg þeirra laga er kórinn syngur. Fyrirhugað er að fljúga heim frá Kaupmannahöfn þ. 8. maí nk. Það er mikið starf sem liggur að baki þessarar söngferðar, og förin lýsir djörfu framtaki og menn­ ingarviðleitni í litlum kaupstað. Og vel mætti hljóma íslenskur lofsöngur á Jótlandsheiðum, sem nú fá heimsókn þeirrar þjóðar, sem þangað var ætlað annað erindi, við aðrar aðstæður, en hún býr við í dag”. En Danmerkurferðin ein og sér var ekki látin nægja því auðvit­ að var fyrst haldinn konsert á Siglufirði á páskadag sem var eins konar generalæfing, en fáeinum dögum síðar söng Vísir á Akur­ eyri á leið sinni til Danmerkur. Fyrsti konsert í Danmörku var að sjálfsögðu í Herning vinarbæ Siglufjarðar, þar sem tekið var á móti íslendingunum með mikilli viðhöfn. Síðan var sungið í Vejle og Árósum, en einnig söng kór­ inn í danska útvarpið. Haldin var sérstök söngskemmt­ un ytra fyrir Carlsberg í þakk­ lætisskyni fyrir að Carlsbergsjóð­ urinn gerði á sínum tíma séra Bjarna Thorsteinssonar kleift að gefa út þjóðlagasafn sitt árið 1909. Einsöngvarar með kórnum voru þeir Guðmundur Þorláksson, Sigurjón Sæmundsson og Þórður Kristinsson, en einleik á trompet lék söngstjórinn Gerhard Schmidt og auk þess kom blandaði kvar­ tettinn fram með kórnum. En hópurinn var varla fyrr kom­ inn heim en hann var farinn að halda enn fleiri tónleika. Fyrsti konsertinn var í félagsheimilinu Stapa í Njarðvíkum, daginn eftir í Bæjarbíói í Hafnarfírðí hvíta­ sunnudag og á annan í hvíta­ sunnu í Gamla Bíói í Reykjavík. Í þessari ferð söng kórinn svo líka inn á tvær hljómplötur fyrir Fálk­ ann þannig að nóg var að gera hjá kórfélögunum. Skömmu fyrir jólin 1966 komu út á vegum Fálkans h.f. í Reykja­ vík báðar hljómplöturnar með Karlakórnum Vísi, önnur platan með 4 lögum, en hin með 14. Þær náðu mjög miklum vinsæld­ um og á rúmlega hálfu ári, eða til 1. júlí 1967, munu hafa selst af stærri plötunni um 3500 ein­ tök, og var mesta sala á íslenskri hljómplötu í það minnsta það árið. Veturinn 1966 til 67 æfði Vísir af kappi nýtt og metnaðarfullt prógram og að sögn söngstjór­ ans verður slíkt ekki fullæft á skemmri tíma en tveimur vetr­ um ef vel á að vera. Hann sagði kórinn ekki hafa i hyggju að fara í neinar söngferðir á þessu vori, en talað hefði verið um aðra utan­ landsferð um á næsta ári. Karla­ kórinn hélt þó söngskemmtun í heimabænum að vanda þá um vorið. Í lok ársins spurðist svo út að kórnum hefði verið boðið að syngja á MIDEM tónlistarráð­ stefnunni sem haldin yrði í Cannes árið eftir, og tilefnið væri að platan hafði orðið sú næst söluhæsta í heiminum miðað við markaðssvæði í flokknum “Folksongs”. Útgefandi: Karlakórinn Vísir. • Framleiðandi: Myndbandavinnslan. • KV 2011 CD01 AAD Flestar upptökur voru gerðar hjá Ríkisútvarpinu. Hljóðvinnsla: Gunnar Smári Helgason. • Umsjón og undirbúningur: Karlakórinn Vísir. Ljósmyndir af Gerhard: Ljósmyndastofa Siglufjarðar. Hönnun umslags: Gunnar Steinþórsson, grafískur hönnuður. Ciribiribin Gerhard Schmidt 1. Ciribiribin. Pestalozza – Hafliði Guðmundsson. Einleikur á trompet: Gerhard Schmidt. ..............................................................(3.05) 2. Hæ, gott kvöld. Jóskt þjóðlag. .......................................................................(1.58 3. Miðnæturstemning. Þýskt þjóðlag – Stefán Friðbjarnarson ............................(5.42) 4. Okkar glaða söngvamál. Emmerich Kálmán – Bjarki Árnason. .......................(2.29) 5. Um vorkvöld bjart. Fr. Silcher – H. Björnsson. .................................................(1.43) 6. Kveiktu ljós. Springfield – Hafliði Guðmundsson. Blandaður kvartett syngur með kórnum. ...........................................................(3.09) 7. Ljóð mitt og lag. G. Lathann – Stefán Friðbjarnarson. ....................................(2.08) 8. Allir sveinar af stað. Bernhard Weber – Hafliði Guðmundsson ......................(5.56) 9. Dans úr Zorba. Mikis Theodorakis – Bjarki Árnason. Hora staccato Enecu / Heifetz – Bjarki Árnason. Einleikur á trompet: Gerhard Schmidt. ...........(4.41) 10. Aðeins til þín. Bert Kaempfert – Guðmundur Bjarnason. Einleikur á trompet: Gerhard Schmidt. ..............................................................(4.22) 11. Rifjaðu upp Shakespeare – Wunderbar. Cole Porter – Egill Bjarnason. ........(3.42) 12. Sem lindin tær. Casano-Conti – Bjarki Árnason. Einsöngur: Guðmundur Ó. Þorláksson...............................................................(3.00) 13. Troika. Rússneskt þjóðlag – Stefán Friðbjarnarson. Einsöngur: Sigurjón Sæmundsson. ....................................................................(3.57) 14. Siglufjörður. Bjarki Árnason. ...........................................................................(1.19) Gerhard Schmidt Ciribiribin C M Y CM MY CY CMY K Gerhard (fors-bak a bok).pdf 5/31/11 10:21:31 PM

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.