Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Blaðsíða 9
Siglfirðingablaðið 9
Þar geta gestir komið og skoðað húsgögnin sem voru
smíðuð á blómatíma Siglufjarðar og séð húsmuni sem
áður prýddu fjöldamörg hús á Siglufirði.
Eins og flestir vita núorðið er starfræktur marokkóskur
veitingastaður á Hótel Siglunesi og vakti það kátínu og
gleði í sumar þegar starfsfólk í sal sá að franskir voru að
lesa sér til í Michelin ferðabæklingnum um staðinn.
Hvorki kokkurinn Jaouad Hbib né Hálfdán Sveinsson
eigandi hótelsins höfðu hugmynd um að þeir væru
komnir þar inn. Fyrir utan gæði matarins hafa
sérinnflutt vín
frá Ribera del Duero
á Spáni vakið verð-
skuldaða athygli gesta.
Skemmst er frá því
að segja að fullt var svo
til öll kvöld á matsölu-
staðnum í sumar og segja
gárungar að vinsældir
kokksins hafi kennt
Íslendingum að panta
borð fram í tímann. Ekki
gleyma að panta borð
áður en þú ferð norður
næst því gestir hótelsins
ganga fyrir og leiðinlegt
að missa af því að fara
í tveggja tíma þykjustu
til Marokkó.
Hótel Siglunes
er ekki venjulegt
Veit á vandaða lausn
fastus.is
VAKNAR ÞÚ UPP VIÐ
AÐ SNÚA ÞÉR Í RÚMINU?
Fastus býður upp á margar gerðir af lökum
sem auðvelda snúning og hagræðingu í rúmi.
Hafðu samband eða komdu og fáðu ráðgjöf við val
á snúningslaki hjá sérhæfðu starfsfólki okkar.
Kíktu á úrvalið í verslun okkar í Síðumúla 16 og í vefverslun fastus.is
Hirðljósmyndari Siglfirðingafélagsins Thomas Fleckenstein á nokkur snilldarverk
í Galleríinu, Skólavörðustíg. Þar er líka listakonan hún Gunnella að sýna.
Thomas og Gunella í Galleríinu
irðljósmyndari Siglfirðingafélag ins Thomas Flecke stein á nokkur snilldarverk
í alleríinu, Skólavörðustíg. Þar er líka listakona hú Gunnella að sýna.
as og Gunella í Galleríinu
TAKTU FRÁ27DESEMBER
DES
Jólaball Siglrðingafélagsins
verður haldið í sal KFUM&K
við Holtaveg, föstudaginn
27. desember kl. 17:00
Hljómsveitin Fjörkarlarnir
skemmtir og jólasveinar koma
í heimsókn. Við bjóðum uppá
heitt súkkulaði og vöur með
og krakkarnir fá nammi
frá sveinka. Allir velkomnir!Jólaballsnefndin