Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Side 12

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Side 12
Siglfirðingablaðið12 víkur og Guðmundur Jónsson leiddu saman hesta sína, hins vegar kom út fimm laga 45 snún­ inga plata árið 1959 sem hafði að geyma Sigurð Ólafsson söngvara, Tígulkvartettinn og Karlakórinn Vísi, á vegum Íslenskra Tóna. Sú upptaka var frá tímum stjórnar­ tíðar Þormóðs. Karlakórinn Vísir og Karlakór Akureyrar [78 sn.] Útgefandi: Fálkinn árið 1933 1. Ég vil elska mitt land 2. Veiðimaðurinn Flytjendur: Karlakórinn Vísir og Karlakór Akureyrar Karlakórinn Vísir og blandaður kór [78 sn.] Útgefandi: Fálkinn árið 1933 1. Systkinin 2. Við börn þín Ísland Flytjendur: Karlakórinn Vísir – söngur undir stjórn Þormóðs Eyj­ ólfssonar einsöngur Aage Schiöth óþekktur blandaður kór – söngur undir stjórn Sigurðar Þórðarsonar Karlakórinn Vísir [78 sn.] Útgefandi: Fálkinn árið 1933 1. Ave María 2. Sunnudagsmorgun Flytjendur: Karlakórinn Vísir, einsöngur Aage Schiöth. Plöturnar sem aldrei komu út. Vísir tók upp lögin “Nú hnígur sól” og “Vor í dal” þar sem Daníel Þórhallsson söng einsöng, en sú plata kom aldrei út þó svo að “Vor í dal” hafi hljómað mjög oft í útvarpinu. Þá var búið að leggja drög að og taka upp lög sr. Bjarna Þorsteins­ sonar “Kirkjuhvoll” og “Ég vil elska mitt land” þar sem Aage Schioth söng einsöng, en sú plata kom ekki út. Að lokum var það lagið “Á vængj­ um söngsins” í flutningi Karla­ kórs Reykjavíkur og Guðmundar Jónssonar, en hinum megin á plötunni flutti Vísir lag sem heitir “Inn um gluggann” og kom þessi plata ekki heldur út frekar en hinar tvær fyrrnefndu. Alfaðir ræður. Árið 1954 gáfu Íslenskir Tónar út 78 snúninga hljómplötu með Karlakórnum Vísi þar sem kórinn flutti tónverkið Alfaðir ræður, en verkið var það langt að það þurfti að skipta því niður á báðar hliðar plötunnar. Það hefur þó greinilega verið á söngskránni í nokkuð langan tíma því þess er getið á tónleikum heilum áratug áður eða árið 1944. Það var Sigurður Eggerz sem samdi ljóðið þegar hann var sýslu­ maður Skaftfellinga, en kveikjan að því var sjóslys sem átti sér stað í Reynishöfn skammt frá Vík í Mýrdal, þegar skipinu Vensyssel hvolfdi þegar átti að afferma það með þeim afleiðingum að fimm menn sem allir voru úr Mýrdaln­ um drukknuðu. Skipið var búið að bíða fyrir utan ströndina í tvær vikur en komst ekki inn vegna brims, en það var lestað ýmsum varningi sem fara áttu til versl­ ana í Vík. Þegar brim minnkaði lítillega einn daginn var ákveðið að reyna löndun, en svo fór sem fór. Síðar samdi Sigvaldi Kalda­ lóns lag við ljóðið, Karlakórinn Vísir hljóðritaði það og naut við það undirleiks Emils Thoroddsen, Daníel Þórhallsson söng einsöng en stjórnandi var Þormóður Eyjólfsson. Ég bið að heilsa. Árið 1959 kom út svolítið sérkennileg blanda af tónlist á 45 snúninga plötu sem Íslenskir Tónar gáfu út. Þar fóru saman Sigurður Ólafsson, Tígulkvartett­

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.