Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 16

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 16
Siglfirðingablaðið16 eða Geirharðs Valtýssonar eins og hann hét upp á íslensku, en hann lést í september 2010. Hann var mikilhæfur tónlista­ maður, frábær trompetleikari og vandvirkur útsetjari. Á konsertum stjórnaði hann kórnum gjarnan með annarri hendinni og spilaði á trompetnum með hinni. Á diskn­ um voru eingöngu lög frá þeim tíma sem hann stjórnaði kórnum og leikur á trompet í flestum þeirra. Að lokum. Ýmsir munir og skjöl sem tilheyra Karlakórnum Vísi og því starfi sem unnið var og honum tengd­ ist er nú varðveitt á Bókasafni Siglufjarðar, en til sendur að setja upp sýningu í Salthúsinu sem er nýjasta viðbótin við Síldarminja­ safnið, þar sem kórinn kemur mikið við sögu. Aðspurð sagði Aníta Elefsen safnstjóri nýju sýn­ inguna ekki komin nægilega langt í hönnun og skipulagi til að hún geti sagt nokkuð um hver stór hlutur kórsins verður, en hann komi þó til með að fá verðugan sess í henni. Meginþemað verður veturinn í síldarbænum og þá væntanlega þeir afþreyingarkostir sem íbúum hans stóð til boða í vetrartepptu og að miklu leyti lokuðu samfé­ lagi sem Siglufjörður var eftir að snjóa festi að hausti. Karlakórinn Vísir á Siglufirði var einstakur kór í sinni röð og naut fádæma vinsælda á sínum tíma og útgáfusaga hans er ennfremur lengri eða alla vega miklum mun fjölbreytilegri en flestra ef ekki allra annarra hérlendra kóra fyrr og síðar. Hann jók hróður Siglufjarðar út á við, og fyrir það á hann og allir þeir sem að honum stóðu miklar þakkir skildar. Ef til vill hefur ein­ angrunin í vetrarríkinu á Siglu­ firði líka þjappað kórfélögum saman og gert þá viljugri til stífra æfinga sem leiddi til betri kórs og hins fádæma góða árangurs sem raunin varð á. Heimildir: Magnús Guðbrandsson, Morgunblaðið, Tíminn, Alþýðublaðið, Þjóðviljinn, Glatkistan, Heimilisblaðið Frækorn, Tímaritið Tónlistin, Alþýðumaðurinn, Mjölnir, Einherji, Siglfirðingur, Neisti, Leó R. Ólason

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.