Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Síða 18
Siglfirðingablaðið18
Hljómsveitin Gautar
Frétt úr Vikunni 1968
Það var sannarlega tími til kom
inn, að hljómsveitin Gautar frá
Siglufirði sendi frá sér hljóm
plötu. Að vísu hefur hljómsveitin
látið í sér heyra á hljómplötum
karlakórsins Vísis frá Siglufirði,
en í ofanverðum desember kom
út fjögurra laga plata, þar sem
hljómsveitin er ein á ferðinni.
Eitt þessara laga er nokkuð sér
stætt og á eflaust eftir að vekja
nokkra athygli: það er lagið
Tvífarinn eftir Geirharð Valtýs
son, og leikur hann lagið sjálfur
á trompett eða réttara sagt: tvo
trompetta. Geirharður er sem
kunnugt er stjórnandi karla
kórsins Vísis, en hann leikur
einnig með Gautum, og er hann
jafnvígur á öll þau hljóðfæri, sem
hljómsveitin hefur yfir að ráða.
Önnur lög á plötunni eru
„Kysstu mig”, „Okkar dans”
og „Öldur rísa”.
— Tvö fyrstnefndu lögin syngur
Baldvin Júlíusson, en Guð
mundur Þorláksson syngur hið
síðastnefnda. Þessi hljómplata
Gauta er gefin út á vegum hljóm
sveitarinnar sjálfrar og hefur Fálk
inn hf. annast milligöngu, en um
dreifingu plötunnar sér Júlíus
Júlíusson í Föndurbúðinni á
Siglufirði.
Á plötuumslagi er mynd af
Gautum, sem Júlíus hefur tekið í
félagsheimilinu á Blönduósi, en á
bakhlið skrifar Ólafur Ragnarsson
um hljóm sveitina og segir m. a.
„Það er víst tæpur aldarfjórðungur
síðan tveir bræður í Skagafirði
eignuðust sín fyrstu hljóðfæri.
Það voru harmónikkur og þóttu
heilmikil hljóðfæri í þann tíð.
Piltarnir voru á fermingaraldri,
hétu Guðmundur og Þórhallur,
voru Þorlákssynir og áttu heima
á Gautlöndum. Innan fárra ára
voru þeir orðnir þekktir um allt
Norðurland, og léku þar fyrir dansi
við miklar vinsældir. Voru þeir
kallaðir Gautlandsbræður.
Árin liðu og bræðurnir fluttust
til Siglufjarðar. Þeir eignuðust
fleiri hljóðfæri og þeim bættust
nýir liðsmenn. En þegar meðlimir
hljómsveitarinnar voru orðnir
fjórir, og bræðurnir á Gautlöndum
því aðeins helmingur þeirra, gat
hún ekki lengur borið nafnið
Gautlandsbræður. Var því horfið
að því ráði að stytta það niður
í Gautar, og hefur hljómsveitin
haldið því nafni síðan.”
Af þessu má ráða, að hljómsveitin
á langa sögu að baki, og víst er
um það, að hún hefur jafnan notið
mikilla vinsælda, ekki aðeins fyrir
norðan heldur og um land allt,
því að þeir félagar hafa ferðast
víða og oft látið í sér heyra í út
varpinu. Því mun mörgum þykja
útkoma hinnar nýju plötu þeirra
góð tíðindi. Þetta er plata með
skemmtilegum lögum fyrir unga
sem eldri.
Hljómsveitin Gautar
ásamt konum sínum.
Fremri röð frá vinstri:
Guðný Jónasdóttir,
Sigurrós Arthúrsdóttir,
Gísela Schmith,
Svanhildur Eggertsdóttir
og Erna Karlsdóttir.
Aftari röð frá vinstri:
Jónmundur Hilmarsson,
Ragnar Páll Einarsson,
Gerhard Schmith,
Guðmundur Þorláksson
og Þórhallur Þorláksson.