Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Side 22

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2019, Side 22
Siglfirðingablaðið22 Poppað á Sigló - fimmti hluti Prímus Ævintýrið hófst upp í Gagga árið 1977, eða var það ´76? Það breytir svo sem ekki öllu máli hvort árið það var, en upphaf­ lega fengu drengirnir að æfa í kjallaranum í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar við hliðina á íbúðinni þar sem Jónas Tryggvason bjó ásamt fjölskyldu sinni. Þetta voru þeir Baldur Jörgen, Dúi Ben og Lárus Ingi sem þarna byrjuðu að fikra sig áfram á tónlistarbraut­ inni, nýlega búnir að eignast sín fyrstu hljóðfæri og þannig gekk það um nokkurra mánaða skeið. Það var bara æft og æft og tíminn leið, en svo var farið að hugsa stærra. Það gengu fljótlega fleiri til liðs við þennan nýtilkomna hljómsveitarsprota, sem hefur líklegast þá verið 1978 eða ´79 og í framhaldinu flutti hljómsveitin sig í rúmbetra húsnæði sem var að Gránugötu 14. Hún samanstóð nú af Guðmundi Gunnarssyni, Lárusi Inga Guðmundssyni, Kristbirni Bjarnasyni, Dúa Bene­ diktssyni, Guðlaugu Sverrisdóttir, Steinunni Marteinsdóttir, Baldri Jörgen Daníelssyni og Viðari Jóhannssyni. Þetta var orðið nokkuð fjölmennt band og enn var æft og æft, en þar kom að farið var að huga að einhveri spilamennsku og til að byrja með var stefnt á að koma fram í pásu hjá Miðaldamönn­ um á dansleik sem halda átti að Hótel Höfn. Þegar gera átti auglýsinguna fyrir ballið kom það auðvitað í ljós sem enginn hafði hugsað út í, að hljómsveit­ inni hafði ekki verið gefið nafn. Enginn tími var til að leggja höfuðið í bleyti vegna þess og Biggi Inga sem sá um auglýsinga­ gerð fyrir Miðaldamenn, varð að bjarga málinu í snarhasti og nefndi bandið “Indíánarnir” sem var síðan notað fyrst um sinn. Síðar var einnig komið fram í pásu hjá Miðaldamönnum í Tjarnarborg og svo stóð til að spila á nýjársballi í Grímsey, en þegar að því kom varð allt koló­ fært og Grímseyingar urðu að bjarga sér með einhverjum öðrum hætti þau áramótin. Sennilega kom hljómsveitin fram í fleiri skipti þó svo að meðlimun­ um gangi ekki vel að muna hvar það gæti hafa verið. Kannski það hafi verið í Höfðaborg á Hofsósi, því það er Baldri Jörgen og Steinunni í fersku minni að í sjoppunni á Hofsósi var hið endanlega nafn fundið. Þar voru hljómsveitarmeðlimirnir alla vega staddir eitt sinn og ræddu sín á milli að þetta Indíánanafn væri nú svolítið hallærislegt. Einhverj­ um þeirra varð þá litið upp á efstu hillu í sjoppunni og sá þar bláan prímus og varð þá að orði; hvað um Prímus? Það var í beinu fram­ haldi samþykkt þarna á staðnum og upp frá því hét hljómsveitin Prímus það sem hún átti eftir ólifað sem voru næstu tvö árin eða svo. Aðal lögin á prógramm­ inu voru t.d. Proud Mary, Jungle too the zoo, Hungy heart, You may be right, Standing at the end of the line og Sweet little rock svo dæmi sé tekið. Viddi byrjaði lagið I´m beliver með mikilfenglegri bassasóló og Guðlaug söng Xana­ du með mikilli innlifun. Aftur fékk hljómsveitin nýtt æfingahúsnæði sem var að þessu sinni KS húsið að Suðurgötu. Kristbjörn og Guðlaug voru þá hætt, en áfram var haldið að æfa og þessi nýi staður varð eins kon­ ar félagsmiðstöð fyrir meðlimina. Þar var oft mætt snemma dags og haldið út fram á kvöld, en það hefur líklega verið 1981 eða ´82 sem hún hætti störfum. Hljóm­ sveitin Prímus var til í u.þ.b. fimm ár, kom nokkrum sinnum fram opinberlega, lék þó aldrei á heilum dansleik, en gaf meðlim­ um sínum mikla lífsfyllingu og ótal góðar stundir. Miðaldamenn. Árið 1977 byrjaði sá sem þetta ritar að spila með Miðaldamönn­ um, en þar voru þá fyrir Sturlaug­ ur Kristjánsson, Magnús Guð­ brandsson og Birgir Ingimarsson. Upphaflega var stofnað til þeirrar hljómsveitar um 1970 og þá aðallega til að spila “eldrimanna­ músik” á dansleikjum Hjóna og paraklúbbsins, en það átti eftir að þróast og útvíkkast eftir því sem árin liðu. Aðspurður gaf Magnús þá skýringu á nafninu að í upphafinu hefðu tveir meðlim­ irnir þegar verið orðnir miðaldra þegar hljómsveitin var stofnuð, en hinir tveir voru fæddir um miðja öldina. Samstarfið gekk vel og það var ágætt að gera, ég tók fljótlega að mér umboðsmennsk­ una, lagðist í framhaldinu í mikla símavinnu og bættist þá talsvert við í bókanirnar. Birgir sá um auglýsingarnar og ekki er hægt

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.