Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 25

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 25
Siglfirðingablaðið 25 ekki talist hafa elst mjög vel, en Dr. Gunni skrifaði eftirfar­ andi plötugagnrýni: “Stubbi og Stuðkarlarnir var eitt af þessum frábærlega hallærislegu böndum sem Stúdíó Bimbó á Akureyri gaf út örlí 80’s. Bandið var held ég frá Siglufirði. Aðalmennirnir voru Stubbi (Kristbjörn Bjarnason) og Leó Ólason sem samdi bæði lögin á smáskífunni sem kom út 1983. A­hliðin, Með kveðju til þín, er Geirmundarleg ballaða, en B­hliðin, Ég er táningur, er skemmtilegt stuðpopp. Ekki síst fer trommuheilinn “Þrusi” á kostum”. Cargo / Kargo Hljómsveitin Cargo var stofnuð í Sjálfstæðishúsinu árið 1986 og starfaði til 1989. Í upphafi voru í bandinu þeir Össi Arnars, Steini Sveins, Jón Erlings sem fór síðan í Sóldögg, Leifi Elíasar og Siggi Ingi Þorleifs og Laufeyjar, en Jói Abbýar tók þó fljótlega við af Sigga. Í upphafi hét hljósveitin Cargo með C, en vegna misprent­ unar nafnspjalds var nafninu af augljósum hagkvæmis ástæðum snarlega breytt í Kargo með K. Elías faðir Leifa útvegaði fullt af græjum og drengirnir fengu að æfa niður í Sjálfstæðishúsinu, en þar var fyrsta ballið haldið með diskótekinu Náttfríði. Kargo­ strákarnir voru duglegir að halda böll þegar fram í sótti, en komu til að byrja með fram í pásum hjá Gautum og Miðaldamönnum. Með tímanum fóru þeir svo að halda sín eigin böll eins og gengur og spiluðu talsvert, en oft á mjög óhefðbundnum stöðum. Þeir fóru til dæmis tvisvar sinnum til Grímseyar og voru þær ferðir hinar mestu svaðilfarir, allavega síðari ferðin. Einnig spiluðu þeir á Þórshöfn á Langanesi, í Bjarna­ firði á Ströndum og í Skeljavík sem er skammt hjá Hólmavík, en auðvitað líka í nærsveitum svo sem á Ólafsfirði, Ketilási, í Al­ þýðuhúsinu hjá Villa Friðriks og á Síldarævintýrinu. Skeljavíkur­ hátíðin sem Bítlavinafélagið stóð fyrir, var haldin í tvö skipti og eitt af númerunum var hljómsveitar­ keppni sem Kargo tók þátt í og sigraði. Verðlaunin voru nokkrir tímar í Stúdíói Bítlavinafélagsins, en þar voru tekin upp fjögur lög og þar á meðal lagið Vodka family sem margir þekkja. Svo var farið til Reykjavíkur til að meika það og tekið þátt í Músíktilraunum 1988, en árangurinn var ekki sá sem væntingarnar stóðu til, en þar var þó spilað í náttfötum sem tekið var eftir. Þetta voru stórhuga drengir sem sést meðal annars á því að þeir keyptu hljómsveitarbíl saman, en Jónsi og Steini borguðu sína hluti með sparimerkjunum. Ekki getur fjárfestingin þó talist hafa verið góð þegar upp var staðið, því bíll inn bræddi úr sér í Staðarskála í fyrstu ferðinni. Kargo var með nokkuð af frumsömdu efni, lögin að mestu eftir Jónsa en textarnir eftir Steina. Annars var Jónsi und­ ir aldri framan af, en fékk þó að spila með því skilyrði að foreldrar hans fylgdu honum eftir. Yfirleitt var Erlingur faðir hans því með í ferðum, en mamma hans mun þó einnig hafa farið slíka gæsluferð. Kargo héldu tónleika í SR. 46 síldarþrónni til styrktar kvennaknattspyrnunni á Siglu­ firði (KS) og gáfu stelpunum innkomuna. Það verður einnig að geta þess að Ásbjörn Ásgeirs, Stebbi Sigmars og Sævar Björns voru stoðir og styttur Kargo og fylgdu þeim gjarnan eftir þar sem þeir fóru. Hljómsveitin leystist svo upp þegar Jónsi fór í skóla, en Steini, Jói og Össi gengu Stur­ laugi á hönd og gerðust meðlimir í Miðaldamönnum. Hljómsveitin Kargo hefur komið saman nokkrum sinnum á liðn­ um árum með eitthvað breyttum mannskap. Þeir Össi, Jói og Steini hafa þó myndað kjarnann í bandinu, en eftirtaldir hafa komið mismikið við sögu á mis­ munandi tímum: Kiddi kennari á bassa, Magnús Reykvíkingur á hljómborð, Cecilia Magnúsdóttir söngur, Þröstur Þorbjörnsson á gítar, Kolbeinn Óttar Proppe á hljómborð og Magnús Benóný­ son á bassa. Undirritaður flutti úr bænum vorið 1986 og þekkir því öllu minna til þeirra hræringa sem urðu í tónlistarlífi bæjarins eftir það. Það fer nú óðum að styttast í sögulok í sögunni næstum því endalausu, en við skulum engu að síður sjá til hvort eitthvað dúkkar ekki upp í næsta blaði. Leó R. Ólason. Heimildarmenn: Baldur Jörgen Daníelsson, Steinunn Marteinsdótti og Þorsteinn Sveinsson.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.