Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 26

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2019, Page 26
Siglfirðingablaðið26 Svipmynd: Þórunn Þórðardóttir Í höfuðið á hverjum heitir þú? Frænku minni úr Vestmanna­ eyjum Maki? Jón Helgi Guðmundsson Bifreið? G­Benz Fyrsti bíllinn? Mazda 353 Fallegasta land sem þú hefur ferðast til? Nýja Sjáland Mesta gleði í lífinu? Börnin Mestu vonbrigði í lífinu? Hrunið 2008 Besta bók? Eftirlýstur eftir Bill Browder (skyldulesning) Besta plata? With Heroes. George Martin­In my life Hvað myndir þú gera ef þú yrðir ósýnileg einn dag? Gera einhverjum grikk allan sólarhringinn Áhugamál? Ferðalög, matseld, golf, ávaxta­ rækt, siglingar, Siglunes. Gömul Deutz dráttarvél Helsti veikleiki? Stjórnsemi Helsti kostur? Stjórnsemi Uppáhands matur? Allt íslenskt úldið, þurkað og kæst Uppáhaldsdrykkur? Sellerísafi á morgnanna Uppáhalds fréttamiðill? Mogginn Uppáhaldshljómsveit? Bítlarnir/ Moody blues Versti matur? Grjónagrautur Uppáhaldstónlist? Jazz/kórar Uppáhalds íþróttamaður? Tiger Wood Besta kvikmynd? Brave heart Besti leikari? Morgan Freeman Besta leikkona? Angelina Jolie Verst í fari annarra? Ósannsögli Best í fari annarra? Heiðarleiki Uppáhaldsfélag í Íþróttum? Hryllingur Fallegasti maður fyrir utan maka? Russell Crowe Uppáhalds sjónvarpsefni? Vikings Hvað veitir mesta afslöppun? Sigla í sænska skerjagarðinum Hvað ætlarðu að gera í sumarfríinu? Drepa lúpínu Hvaða áherslu leggur þú mest á í þjóðmálum? Betri og skilvirkari meðhöndlun á opinberu fé Kærasta æskuminning? Gera upp húsið okkar á Siglunesi Neiðarlegasta atvikið? Þegar bíllinn minn drap á sér í Sorpu og var sóttur af Krók Við hvað ertu hrædd? Sósíalisma Þórunn Þórðardóttir fæddist á Túngötu 26, á Siglufirði á afmælisdegi föður hennar 14.12.1950. Hún trúði því lengi vel að hún hafi komið í ferðatösku sem afmælisgjöf til föður hennar. Foreldrar hennar voru Margrét Arnheiður Árnadóttir úr Svarfaðardal og Þórður Þórðarson frá Siglunesi. Börn foreldra minna eru sjö og er ég þriðja í röðinni. Eftir nám í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar lá leiðin til Houston í Texas þar sem hún dvaldi í eitt ár. Síðan tók við sjómennska bæði á humarbát, færum, trolli og fraktskipum um höfin blá. Hún vann ýmis störf á Dalvík þar sem hún bjó í 25 ár s.s skrifstofuvinnu, stofnaði og rak saumastofu í nokkur ár. Árið 1996 settist hún á skólabekk í þriggja ára nám við sjávarútvegsbraut VMA. Eftir útskrift 1999 keypti hún sjávarútvegsfyrirtæki á Dalvík þar sem unnu að jafnaði 25 manns. Hún rak það ásamt öðrum til 2002 er hún seldi fyrirtækið og fluttist suður. Þórunn starfaði sem Gæðastjóri hjá HB Granda frá 2002 til 2011.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.