Fréttablaðið - 21.06.2022, Page 9

Fréttablaðið - 21.06.2022, Page 9
Kannski gæti aukin gjaldtaka forðað for- svarsmönnum greinar- innar frá axarsköftum sem kalla á rannsóknir erlendra saksóknara? Framkvæmdastjóri Rannsóknar- miðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál sakar fyrrverandi ríkisskattstjóra og undirritaðan um öfund og af brýði í innsendri grein í Fréttablaðinu daginn fyrir þjóð- hátíðardaginn 2022. Eins og heimasíða Rannsóknar- miðstöðvarinnar ber með sér er aðstandendum hennar annt um hag útgerðar og útgerðarmanna. Ætla mætti að aðstandendur telji útgerðarmenn sérstaklega þurfa á umhyggju og náungakærleik að halda. Tilefni tilskrifa framkvæmda- stjórans til okkar Indriða er að 31. maí birtist frétt í Fréttablaðinu um að hagnaður nokkurra sjávarút- vegsfyrirtækja hafi aukist um 100 milljarða króna milli áranna 2020 og 2021. Árið 2020 nam veiðigjalda- reikningur útgerðarinnar tæpum 5 milljörðum króna. Veiðigjaldið er ekki skattur heldur afgjald sem útgerðinni er gert að greiða fyrir aðgang að auðlind sem er skil- greind sem eign íslensku þjóðar- innar. Ég benti blaðamanninum á að ef beitt væri svipuðum reglum við skattlagningu á náttúruauð- lindum í almenningseigu á Íslandi (fiskistofnar) og í Noregi (olía) yrði greiðsla útgerðarinnar til ríkissjóðs 55-60 milljarðar króna vegna ársins 2021. Að sjálfsögðu að því gefnu að spár um afkomu ársins 2021 stæð- ust. Degi fyrr hafði Indriði nefnt 40-60 milljarða sem eðlilegt veiði- gjald miðað við gefnar forsendur í viðtali við sama blaðamann. Ég bið lesanda að finna öfundina og afbrýðina í þessari frásögn! Annars er röksemdafærsla fram- kvæmdastjórans full þversagna- kennd fyrir aðila sem stjórnar stofn- un sem kennir sig við rannsóknir á samfélags- og efnahagsmálum. Í upphafsorðum greinarinnar full- yrðir hann að sjávarútvegur sé eina atvinnugreinin íslensk sem skarar fram úr á alþjóðavísu! Undir lok greinarinnar fullyrðir fram- kvæmdastjórinn svo að afkoma í sjávarútvegi sé lakari en í öðrum íslenskum atvinnugreinum! Hvern- ig í ósköpunum getur sama atvinnu- greinin borið af öðrum íslenskum atvinnugreinum og verið í andar- slitrunum á sömu stundu? Rann- sóknarstofnunarforstjórinn verður að endurskoða rannsóknaraðferðir sínar er ég hræddur um! Rannsóknarstofnunarforstjórinn kvartar undan því að ISAT-flokkun Hagstofunnar sé illa fallin til að einangra sjávarútveg sem atvinnu- grein. Það virðist hafa farið fram hjá forstjóranum að Hagstofan hefur um langt árabil unnið sérstaka vinnslu, byggða á rekstrar- og efna- hagsreikningum sjávarútvegsfyrir- tækja. Þessi vinnsla byggir á grunni sem varð til hjá Þjóðhagsstofnun, en sú stofnun gegndi mikilvægu hlutverki varðandi verðlagningu Framúrskarandi atvinnugrein í andarslitrunum? Þórólfur Matthíasson hagfræðipró- fessor við Háskóla Íslands sjávarafla á árum áður. Í samantekt (á ensku) síðustu útgáfu þessarar úttektar Hagstofunnar segir m.a: Samanlagðar eignir veiða og vinnslu námu 830 milljörðum ISK, skuldir námu 496 milljörðum og eiginfé var 333 milljarðar króna. (Aggregated balance sheet of fishing and fish processing shows that the total worth of assets of the fisheries are 830 billion ISK, liabilities are worth of 496 billion ISK and equity 333 bil- Hluthafafundur hjá Festi hf. Stjórn Festi hf. boðar til hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 14. júlí 2022 klukkan 10.00 árdegis í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Á dagskrá fundarins verður eitt mál: Stjórnarkjör. Í upphafi fundarins mun stjórn félagsins segja af sér til að tryggja að stjórnarkjör fari fram. Tilgangur fundarins er að gefa hluthöfum færi á að kjósa nýja stjórn, eftir atvikum að endurnýja umboð sitjandi stjórnar, eða kjósa nýja eða breytta stjórn, allt eftir því hvað hluthöfum sýnist og hverjir gefa kost á sér til stjórnarstarfa. Dagskrá fundarins 1. Stjórnarkjör. Aðrar upplýsingar: Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins www.festi.is/r/adalfundir Þar má einnig finna skýrslu Tilnefningarnefndar þegar hún verður tilbúin, sbr. það sem síðar segir. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka daga milli klukkan 9:00-16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@festi.is eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 laugardaginn 9. júlí 2022. Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundarins skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@festi.is eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 10.00 fimmtudaginn 30. júní 2022. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Tilnefningarnefnd tekur við framboðum til stjórnar til kl. 10 þriðjudaginn 28. júní 2022. Tilnefningarnefnd mun skila skýrslu sinni og tillögu um stjórnarmenn eigi síðar en kl. 10 þriðjudaginn 5. júlí 2022. Fráfarandi stjórn Festi hf. hefur lagt til við Tilnefningarnefnd að hún geri tillögu um fleiri stjórnarmenn en fimm í þetta sinn svo tryggt sé að hluthafar geti kosið á milli frambjóðenda og ekki verði sjálfkjörið. Fulltrúi stjórnar í Tilnefningarnefnd mun ekki að þessu sinni taka þátt í störfum nefndarinnar. Tillaga Tilnefningarnefndar takmarkar ekki frekari framboð til stjórnar. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 10.00 laugardaginn 9. júlí 2022. Framboðum skal skila á skrifstofu Festi hf., Dalvegi 10-14, Kópavogi, eða á netfangið hluthafar@festi.is. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en þremur sólarhringum fyrir aðalfund. Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör í tvo sólarhringa frá því að stjórn kunngerir niðurstöður framboða til stjórnar, ef ekki er sjálfkjörið. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 9.30 á fundardegi. Stjórn Festi hf. Framboð til stjórnar Festi hf. Tilnefningarnefnd Festi hf. auglýsir hér með eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna hluthafafundar Festi sem haldinn verður 14. júlí næstkomandi. Hlutverk tilnefningarnefndar er að undirbúa og gera tillögu um frambjóðendur við kjör stjórnar félagsins. Skal að því stefnt að stjórnin sé á hverjum tíma þannig samsett að hún búi yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu sem nýtist félaginu við stefnumótun og eftirlit í því umhverfi sem félagið starfar í á hverjum tíma. Við gerð tillögu um kosningu stjórnarmanna í Festi skal tilnefningarnefndin horfa til hæfni, reynslu og þekkingar, m.a. með tilliti til leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og niðurstöðu árangursmats stjórnar. Stjórnarmenn þurfa jafnframt að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög sbr. ákvæði 66. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu Festi. Athygli er vakin á því að sérstök skilyrði eiga við um stjórnarmenn í Festi vegna sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið dags. 30. júlí 2018. Geta frambjóðendur kynnt sér skilyrðin á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins þar sem þau eru aðgengileg án trúnaðarupplýsinga. Þess er óskað að tilnefningum eða framboðum sé skilað til tilnefningarnefndar á sérstökum eyðublöðum ásamt ferilskrá fyrir kl. 10 þann 28. júní 2022 á netfangið tilnefningarnefnd@festi.is. Nálgast má gögnin á www.festi.is/r/adalfundir Festi | Dalvegi 10-14 | 201 Kópavogi | festi.is lion ISK.). Samkvæmt blaðafréttum munu bætast allt að 100 milljarðar við á árinu 2021. Þá er ótalið það sem kann að vera geymt í skatta- skjólum á Kýpur og Maldíveyjum. Af þessu má draga þá ályktun að greinin geti vel greitt eðlilegt gjald fyrir aðgang að þjóðarauðlindinni. Kannski gæti aukin gjaldtaka forð- að forsvarsmönnum greinarinnar frá axarsköftum sem kalla á rann- sóknir erlendra saksóknara? ■ ÞRIÐJUDAGUR 21. júní 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.