Fréttablaðið - 21.06.2022, Side 11

Fréttablaðið - 21.06.2022, Side 11
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 21. júní 2022 Sigríður Rakel Ólafsdóttir er ánægð með breytingarnar sem hún og eiginmaðurinn hafa staðið í að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Féllu fyrir gamla sjarmanum Hlíðahverfið í Reykjavík stendur í hjarta borgarinnar. Það er í senn sjarmerandi og fjöl- skylduvænt og því ekki að undra að Hlíðarnar séu með vinsælli hverfum borgarinnar. 2 Leikhópurinn Spindrift Theatre. sandragudrun@frettabladid.is Spindrift Theatre sýnir leikverkið THEM í Tjarnarbíói á miðviku- daginn klukkan 20 og á Reykjavík Fringe Festival 22. júní klukkan 21.30. THEM er einlæg kómedía um sársaukann sem fylgir því að passa ekki inn í, spennuna við að uppgötva sitt eigið afl, skömmina við að nota það rangt og sorgina yfir því að geta ekki grátið. Verkið fjallar um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla – og öll að reyna bara að fá að vera. Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlut- verkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Áhorfendur munu hitta fyrir karlmenn að berjast við að vera berskjaldaðir – og að uppgötva hvers vegna það er þeim nauðsynlegt. Byggt á viðtölum við karla Hætta á váhrifum (trigger warn- ing); eftirfarandi er fjallað um í sýningunni: kvenfyrirlitningu, ofbeldi, kynferðisofbeldi, hinsegin fordóma. Verkið er byggt á tugum viðtala við karla frá mismunandi löndum auk frásagna höfundanna sjálfra af því að vera konur í karllægum heimi. Leikstjóri er Unnur Elísabet Gunnarsdóttir og leikkonurnar eru Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Tinna Þorvalds Önnudóttir, Marjo Lahti og Anna Korolainen Crevier. Verkið er sýnt á ensku. ■ Berskjaldaðir karlmenn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.