Fréttablaðið - 21.06.2022, Blaðsíða 12
Sif Ásthildur Guðbjartsdóttir
Sigríður Rakel Ólafsdóttir, mark-
aðsstjóri bílaumboðsins Öskju,
hefur búið sér og fjölskyldu sinni
fallegt heimili í Hlíðunum. Fjöl-
býlishúsið sem fjölskyldan býr í er
frá árinu 1957 og er íbúðin fjögurra
herbergja og rúmir 95 fm að stærð.
Það sem heillaði þau í upphafi var
hversu opin og björt íbúðin var.
Skipulag hennar var gott en það
var eitt og annað sem þau vildu
gera að sínu.
„Það sem heillaði mig við hverfið
á sínum tíma var þessi gamli
sjarmi sem er einkennandi fyrir
þetta svæði. Íbúðin sjálf var mjög
sjarmerandi og við ákváðum strax
að halda í sálina sem fylgdi henni.
Þannig leyfðum við karakternum
að skína í gegn á sama tíma og við
uppfærðum íbúðina að nýjum
tímum og okkar þörfum,“ segir Sig-
ríður Rakel.
Heimasmíðað borðstofuborð
Hjarta íbúðarinnar er eldhúsið að
hennar sögn.
„Eldhúsið og stofan eru eitt rými
og ég gæti ekki hugsað mér það
öðruvísi. Upprunaleg hönnun
íbúðarinnar er tvöföld stofa og eld-
húsið var þar sem nú er barnaher-
bergi. Þessi uppstilling er svolítið
barn síns tíma þegar áherslan var
á stórar stofur og lítil eldhús. Í dag
er meiri áhersla á að eldhúsið sé í
alrýminu. Ég eyði miklum tíma í
eldhúsinu og finnst frábært að geta
eldað matinn og á sama tíma verið
í samskiptum við krakkana sem
eru að horfa á barnaefnið eða gest-
ina sem sitja í stofunni á meðan ég
elda. Við eyðum langmestum tíma
í þessu rými og því vildi ég líka
stórt og fallegt borðstofuborð. Ég
er svo heppin að eiga handlaginn
mann sem smíðaði borðstofu-
borðið að okkar þörfum,“ segir
Sigríður Rakel.
Héldu í sálina í íbúðinni
„Við ákváðum að gera allt sjálf
sem tók auðvitað lengri tíma en
ég hef gott auga fyrir hönnun og
uppsetningu og svo er maðurinn
minn fær í f lestan sjó svo við
unnum þetta verkefni saman. Við
fengum því enga iðnaðarmenn en
góða hjálp frá fjölskyldu og vinum.
Þetta voru bara langir dagar og
unnið oft fram eftir kvöldi. Ég held
að þegar maður gerir allt sjálfur
þá þyki manni oft meira vænt um
það sem hefur verið gert í íbúðinni
því maður veit hve mikil vinna fer í
framkvæmdirnar,“ segir Sigríður.
Þau ákváðu að halda í sálina í
íbúðinni.
„Við til dæmis hvítlökkuðum
gömlu hurðirnar sem okkur finnst
létta á rýminu en héldum gömlu
hurðarhúnunum ásamt listunum
bæði í kringum hurðirnar og í
loftinu. Mér finnst djúpu glugga-
kisturnar heillandi inni í stofu
og pottofnarnir einnig, þó þeir
séu barns síns tíma þá gefa þeir
þessum gömlu íbúðum mikinn
karakter. Meðan þeir lifa fá þeir að
vera í íbúðinni.“
Innbyggðir fataskápar eru
svolítið einkenni gamalla íbúða í
Hlíðunum en þeir eru ekkert sér-
lega praktískir. Djúpar hillur sem
oft er erfitt að komast að.
„Við ákváðum að rífa þá og
setja nýstárlegri fataskápa sem
miða betur að okkar þörfum og
sköpum um leið meira rými. Mesta
áskorunin við gamlar íbúðir er
oft að skapa nægilegt geymslu-
rými og því þarf mikið skipulag og
útsjónarsemi til að koma öllu að,
sérstaklega þegar maður er með
lítil börn því þeim fylgir mikið dót,
útiföt og fleira. Fólk á líka mun
meira af fötum en þegar þessar
íbúðir voru byggðar, svo það getur
oft verið höfuðverkur að koma öllu
fyrir,“ segir hún.
Barn síns tíma
Parið ákvað að taka allt baðher-
bergið í gegn enda barn síns tíma.
„Ég teiknaði sjálf upp baðher-
bergið eins og ég sá það fyrir mér
en aðal áskorunin fólst í smæð þess
og var þetta mikil kúnst að koma
öllu haganlega fyrir, hámarka
geymslupláss og gera það stílhreint
og fallegt á sama tíma. Við létum
sérsmíða innréttinguna sem ég
hannaði en maðurinn minn sá um
uppsetninguna og flísalagði allt.
Við ákváðum að skapa rými fyrir
þvottavél og þurrkara og sé ég ekki
eftir því enda mikill tími sem fer
í að hlaupa upp og niður stigana
með þvott í fjölbýli. Það er líklegast
besta ákvörðunin sem hefur verið
tekin í breytingunum að koma
þeim fyrir inn á baðherbergi,“
bætir Sigríður Rakel við.
„Mér finnst fátt meira róandi
en að leggjast í bað eftir langan
dag, en við ákváðum að halda
baðkarinu í stað þess að setja upp
sturtuklefa. Það er frábært að hafa
baðkar þegar maður er með börn
en þau geta dundað sér í baði tím-
unum saman. Við vildum ná smá
jarðtengingu inni á baðherbergi.
Við erum með náttúrulegan lit á
veggjum og í lofti, náttúruflísar á
öllu og náttúrustein á baðborðinu.
Við vorum baðlaus í þrjá mánuði
og það var sannarlega skrautlegur
tími en þá kom Sundhöllin sér
vel og vorum við fastagestir þar
sumarið 2018.“
Heimilið er griðastaður
„Ég hef aldrei geta fylgt eftir
ákveðnum stefnum eða straum-
um þegar kemur að heildarútliti
íbúðarinnar. Ég tek í raun bara
það sem mér finnst fallegt. Það
skiptir mig mestu máli að íbúðin
sé hlý og heimilisleg. Það er eitt-
hvað við gamalt húsnæði sem
heillar mig, það er oft svo hlýlegur
andi í því. Ég er frekar stílhrein
og mínimalísk og þoli illa mikið
af smádóti og hef reynt að fylgja
því eftir bestu getu. Fyrir mér á
heimili að vera griðastaður þar
sem allir ná ró eftir langa og anna-
sama daga,“ segir Sigríður Rakel
að lokum. ■
Séð inn í fallega stofuna og eldhúsið, en þau hjónin opnuðu á milli rýmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Stofan er björt og skemmtileg. Hver hlutur er valinn af kostgæfni og útkoman er hlýleg, flott og heimilisleg.
Baðherbergið var allt gert upp enda var það orðið barn síns tíma.
Endurbæturnar
á baðinu eru
einkar vel
heppnaðar, lita-
valið heillandi
og spegla-
skáparnir gefa
rýminu enn
meiri vídd.
Gamli pottofn-
inn undir glugg-
anum gefur líka
sjarmerandi
karakter.
Við vorum baðlaus
í þrjá mánuði og
það var sannarlega
skrautlegur tími, en þá
kom Sundhöllin sér vel
og vorum við fastagestir
þar sumarið 2018.
Sigríður Rakel Ólafsdóttir
2 kynningarblað A L LT 21. júní 2022 ÞRIÐJUDAGUR