Fréttablaðið - 21.06.2022, Qupperneq 28
Og þessi lög. Alveg
ógeðslega mörg lög.
Þetta er hrikaleg náðar-
gáfa sem hann fékk.
SJÓNVARP
Life & Beth
Amy Schumer
Leikarar: Amy Schumer, Michael
Cera, Violet Young.
Disney+
Nína Richter
Life & Beth eru sjálfsævi-
s ög u leg i r g r í nþ æt t i r
eftir Amy Schumer sem
komu út fyrr á árinu.
Þættirnir fjalla um til-
vistarkreppu framafólks
á heimsendaþröskuldi,
y f i rb orð sken nd a s a m-
félagsmiðla, vinnustaða-
menningu, unglingsárin,
fjölskyldusambönd, fyrir-
gefninguna og ástina. Þá
má túlka sem ástarbréf aldamóta-
kynslóðarinnar til hversdagsins
sem fær áhorfandann til að líta inn
á við.
Í þáttunum er Beth framakona
á Manhattan sem þénar vel í starfi
sínu í vínbransanum. Hún býr
með myndarlegum manni sem
hún lýsir sem „New York-áttu,“ og
nýtur aðdáunar æskuvinanna. Líf
hennar, æðislegt á yfirborðinu, er
í raun bragðlaust strit í stafrófsröð.
Óvæntur atburður sendir Beth á
æskuslóðirnar sem setur sögu af
stað sem spannar tíu þætti.
Handrit og persónusköpun er
vandaðri en gengur og gerist í sam-
bærilegu efni. Amy leikur aðalhlut-
verkið og byggir þættina að stóru
leyti á eigin lífi. Beth er millinafn
Amyar sem hefur frá árinu 2004
átt draumaferil í bandarískum
skemmtanaiðnaði.
Eftir hana liggja þáttaraðir, met-
sölubækur og heimsklassa uppi-
standsferill, hún er marg-
verðlaunuð og einhvern
veginn virðist hún eiga
helling inni.
Þeir eru margir og
háværir sem hata Amy
Schumer. Hennar eldri
verk hafa oft verið umbúða-
laust jaðarg r ín um
líkamsvessa og kyn-
ferðisbrot . Núna er
nálgun Amy að slípast.
Hún sendir spéhræðslu Banda-
ríkjamanna þó ennþá fingurinn,
er óhrædd við að hlæja að sjálfri sér
en tekst að gera það á hátt sem setur
samfélagið í fókus frekar en hennar
eigin persónu. Í Life & Beth fær ein-
faldleikinn að njóta sín, efnið er ein-
lægt og ekta. ■
NIÐURSTAÐA: Sjaldséð og vand-
fundin gæði innan um mýgrút
sjálfsmyndar-uppgjöra kvik-
myndafólks af aldamótakynslóð.
Drepfyndnir þættir og ferskir,
ekta og tragískir.
Gæðalegir grínþættir um uppgjör
aldamótakynslóðarinnar
Amy Schumer byggir
aðalpersónuna á
sjálfri sér í Life & Beth
Í dag þriðjudag 21. júní 2022 kl 14:00
verður stórum áfanga fagnað, en þá munu Hollvinir
afhenda skjólgóðan garð við Grensásdeild
eftir gagngerar endurbætur.
Guðrún Pétursdóttir formaður Hollvina Grensáss og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir,
framkvæmdastjóri meðferðarsviðs LSH, flytja ávörp en Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra veitir garðinum viðtöku ásamt Sigríði Hermannsdóttur iðjuþjálfa,
sem er fulltrúi skjólstæðinga deildarinnar.
Gradualekór Langholtskirkju syngur undir stjórn
Sunnu Karenar Einarsdóttur.
Í meira en aldarfjórðung hafa Hollvinir
Grensáss staðið þétt við bakið
á deildinni og notið stuðnings lands-
manna við að styðja starf deildarinnar.
Mætum á staðinn
og sýnum stuðning í verki.
Bítillinn Paul McCartney
varð 80 ára þann 18. júní og
fagnaðarlátanna varð ekki
síst vart á öldungadeildar-
fundum á Facebook þar sem
aðdáendur fóru í mannjöfnuð
og deildu uppáhaldslögum
sínum með afmælisbarninu.
„Þetta er bara minn meistari,“
segir Grímur Atlason, kollegi
Pauls í bassaleiknum og fram-
kvæmdastjóri Geðhjálpar.
toti@frettabladid.is
„Ég er tíu sinnum meiri McCartney-
maður en næstmesti McCartney-
maður landsins, sama hvað þú segir:
1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9 og 10,“ skrifaði
blaðamaðurinn Jakob Bjarnar
Grétarsson á Facebook laust
fyrir hádegi laugardaginn
18. júní í tilefni af átt-
ræðisafmæli bítilsins
Pauls McCartney.
Y f i r l ý s i n g u n n i
fylgdi síðan You-
Tu b e -my nd b a nd
af McCartney taka
lag ið Maybe I'm
Amazed, með hljóm-
sveit sinni Wings, á tón-
leikum 1976.
Grímur Atlason, bassaleikari
og framkvæmdastjóri Geðhjálpar,
gerði hins vegar pena athugasemd
við yfirlýsingu frummælandans: „Er
samt ekki viss … taldirðu mig með?“
Bestu bassalínurnar
„Hann kunni að stilla gítar. End
of story,“ segir Grímur þegar hann
er spurður hvað geri hann besta
Bítilinn áður en honum er bent á að
heldur sé þessi yfirlýsing snubbótt
þegar annað eins afmælisbarn eigi
í hlut.
„Þetta er helvíti góð lína samt.
Þetta tengir þetta í rauninni allt
saman. John var alveg „raw tal-
ent“ og geggjaður,“ heldur Grímur
áfram og bendir á að McCartney
hafi, umfram hæfileikana og sem
oft er vanmetið, líka verið dálítið
ferkantaður.
„Hann var sko líka kassi. Hann
var leitandi. Hann var kassi og hann
var svona maður sem hélt farar-
tækjunum gangandi. Menn hafa oft
gert lítið úr honum út af því en mér
fannst hann sko alltaf bara mesti
meistarinn.
Og hann var náttúrlega bassaleik-
ari líka, en hann er auðvitað ekki
bassaleikari. Þess vegna er hann
svona góður bassaleikari,“ segir
Grímur um þversagnakenndan
kollega sinn á strengjunum fjórum.
„Hann var bara píanómaður og
gítarmaður og svo þurfti bara ein-
hver að spila á bassa og þá gerði
hann það og kom náttúrlega bara
með margar af bestu bassalínunum
og mótaði bassaleik, öðruvísi.“
Ógeðslega flott
Grímur segir bassa-
leikinn svo f lottan
hjá Paul að hann
hey rist ek ki þótt
hann heyrist. Svo
haldið sé áfram með
þversagnirnar í fari
McCartneys. „Þú heyrir
ekki en þú heyrir það
líka ef þú hlustar á línurnar.
Þetta er ógeðslega f lott og svo
syngur hann yfir þetta.
Þú veist, að vera að spila svona á
bassa og syngja. Það er náttúrlega
eitthvert rugl á milli heilahvela
sem við höfum ekki, sko.“ Og þessar
melódíur hans, maður! Og þessi lög.
Alveg ógeðslega mörg lög. Þetta er
hrikaleg náðargáfa sem hann fékk.“
Tímaritið Variety birti lista yfir
80 bestu lög McCartneys um helg-
ina með þeim fyrirvara að valið var
næstum vonlaust og að vonandi
verði Paul 120 ára en sá árafjöldi
myndi gera það aðeins auðveldara
að þrengja valið.
Senjoríta í kjól
„Ég skoðaði þennan lista og þar í 79.
sæti er She Loves You. Ég meina …
Jafn ferskur í tuttuguþúsundasta skipti
Paul McCartney
eldhress á sviði
seint á síðasta
ári og enn er
hann að.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
fyrir mér var það lagið sem bara
breytti öllu,“ segir Grímur og rifjar
upp fyrstu kynni sín af laginu þegar
hann var fjögurra ára og það var
spilað af fyrri plötunni í safni bestu
Bítlalaganna sem skiptist milli
rauðu plötunnar og þeirrar bláu.
Platan hafði að v ísu far ið
umslagavillt í einhverju partíinu
þannig að Grímur fann hana í sól-
strandatónlistarumslagi kenndu
við Y viva Espana. „Þetta var allt í
ruglingi og ég fattaði ekkert og spil-
aði þetta bara endalaust og hélt í tvo
eða þrjá mánuði að Bítlarnir væru
kona í f lamenco-kjól. Svona sen-
jóríta sem var á plötuumslaginu.“
Móðir Gríms leiðrétti misskiln-
inginn og hann batt sitt trúss við
jakkafataklæddu fjórmenningana
og ekki síst Paul sem hann segir ekki
síður hafa risið hátt eftir að Bítlarnir
hættu.
Magnað vænghaf
„Wings er stórkostlegt band og nátt-
úrlega lög eins og Maybe I´m Ama-
zed, sko. Þetta er náttúrlega rosalegt
lag. Þetta er náttúrlega alveg sturlað
lag. Þetta voru bara lög sem maður
hlustaði á. Þeir komu bara Wings-
ararnir og dældu út lögum,“ segir
Grímur og minnir á að ekki megi
heldur gleyma frábærum sóló-
plötum McCartneys.
Þá bætir Grímur við að heldur
megi ekki taka af McCartney hversu
lagið honum er að skapa tónlistinni
umgjörð, gott „show“. Hann er ekki
eitthvað alltaf að fela sig í því að
vera nógu skrýtinn eitthvað,“ segir
Grímur, sem hefur séð kappann
fjórum sinnum á tónleikum.
Alltaf jafn gaman
„Ég kom svo snemma á fyrstu tón-
leikana sem ég sá af því ég var svo
spenntur þannig að ég var fyrir utan
og hlustaði á sándtékkið og þar var
bara rennandi í Hey Jude og Yest-
erday. Til að æfa sig.
Þetta voru örugglega tuttugustu
tónleikarnir á túrnum og þegar
hann tók Yesterday á tónleikunum,
sem er náttúrlega ofspilað, þannig
lagað, var það eins og hann væri að
taka þetta í fyrsta skipti.
Þá skildi maður að hann fattar
þennan þátt í „showbissnisinum“ og
hvernig það sem þú gerir er metið ef
þú vandar þig, leggur þig fram. Þess
vegna er hann svona risastór, ennþá.
Af því að hann gerir þetta svo ekta
og manni líður svo vel vegna þess
að manni finnst þetta svo vel gert
og lítur út fyrir að vera gaman. Að
spila þetta lag í þúsundasta skipti.
Eða tuttuguþúsundasta eða hvað
það er og það er alltaf bara, vá!“
Grímur stefnir ótrauður á að ná
McCartney á tónleikaferð sinni
þegar hann fer um Evrópu. „Af því
að þetta er alltaf skemmtilegt. Þú
veist, á meðan Rolling Stones taka
átján lög þá tekur Paul McCartney
30,“ segir Grímur og hlær. „Rolling
Stones, munurinn á þeim einhvern
veginn er að þar er bara ótrúlegt
magn en þú veist örfáar perlur.
Alveg örfáar.“ ■
Grímur Atlason
16 Lífið 21. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 21. júní 2022 ÞRIÐJUDAGUR