Fréttablaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 16
Birgir Ómarsson, formaður
Íslenska frisbígolfsambandsins,
kynntist frisbígolfi í Bandaríkjun-
um á yngri árum. „Ég var í námi í
grafískri hönnun í Bandaríkjunum
árið 1995 og þar var íþróttin kynnt
fyrir mér,“ segir hann. „Svo þegar
ég flutti heim árið 1998 komst ég
að því að það var enginn frisbígolf-
völlur á Íslandi svo mig langaði að
bæta úr því. Í gegnum tengsl við
skátahreyfinguna tókst mér svo
að fá fyrsta völlinn settan upp á
Úlfljótsvatni árið 2003 og hægt og
rólega hefur þeim fjölgað síðan.
Árið 2011 settum við upp völl á
Klambratúni, þann fyrsta sem var
í almenningsgarði og í alfaraleið.
Það var sjötti völlurinn, en núna,
10 árum síðar, eru þeir orðnir 92.
Þannig að þessi völlur opnaði þetta
sport eiginlega alveg á Íslandi,“
segir Birgir. „Við erum með flesta
velli í heimi miðað við höfðatölu
og þetta er orðið ótrúlega vinsæl
íþrótt. Gallup gerði könnun fyrir
okkur í fyrra og þá kom í ljós að
55 þúsund Íslendingar höfðu
prófað frisbígolf, sem er eiginlega
alveg galið miðað við mannfjölda.
Íþróttin er sérstaklega vinsæl
í aldursflokknum 18 til 25 ára,
en þar höfðu 52 prósent prófað
þetta og hlutfallið var 45 prósent í
aldursflokknum 18 til 35 ára. Það
er gaman að sjá að unga fólkið
hefur tekið ástfóstri við þetta.“
Einfalt, ódýrt og aðgengilegt
„Frisbígolf, eða folf, er ótrúlega
skemmtilegur og einfaldur leikur.
Nánast allir geta kastað frisbídisk
og reglurnar eru einfaldar, en allir
sem hafa farið í mínígolf þekkja
þær,“ segir Birgir. „Þetta snýst bara
um að fara brautina í sem fæstum
köstum og í lokin þarf að hitta
ofan í körfu. Fólk er mjög fljótt að
ná tökum á þessu og það eina sem
þarf er einn diskur.
Þetta er einfalt, ódýrt, diskurinn
tekur lítið pláss og það kostar
ekkert inn á vellina. Þetta er líka
frábært fjölskyldusport og það er
vinsælt á fjölskylduferðalögum að
hafa disk í skottinu og koma við á
völlunum,“ segir Birgir. „Þetta er
ágæt hreyfing, það geta allir verið
með og það er hægt að byrja á
þessu á hvaða aldri sem er.“
Öflug þátttaka í öllum veðrum
Birgir hefur verið formaður
Íslenska frísbígolfsambandsins frá
því að það var stofnað árið 2005,
en á þeim tíma hafa tíu frisbígolf-
félög verið stofnuð víða um land.
„Það hefur enginn annar sóst
eftir embættinu og þess vegna
hef ég setið áfram,“ segir hann.
„Uppbyggingin hefur líka gengið
mjög vel. Við höldum yfir 100 mót
á hverju ári og hittumst þrisvar
í viku og þátttakan er afar góð,
meira að segja yfir veturinn. Það
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767
| Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón
Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Birgir segir að
það sé komið
upp öflugt starf
í kringum frisbí-
golf og að ungt
fólk hafi tekið
miklu ástfóstri
við íþróttina.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
er gríðarlega öflugur hópur sem
tekur þátt og lætur veðrið ekki
aftra sér. Við höfum það sem
mottó að fresta aldrei móti vegna
veðurs og það er hægt að spila
í öllum veðrum. Það þarf bara
að nota sérstaka diska ef það er
brjálað veður. Það er kannski
meira gaman að spila í sumri og
sól en það er líka mjög gaman í
snjóbyl.“
Auðvelt að sannfæra bæjarfélög
Birgir segir að það sé gott fyrir
íþróttina að hafa ákveðin form-
legheit og það henti betur þegar
Íslandsmótin eru haldin, en þau
hafa verið á hverju ári.
„Það er líka einfaldara að vera
tekinn alvarlega og fá fundi þegar
ég hef samband við bæjarfélög
sem formaður Íslenska frisbí-
golfsambandsins en bara Biggi
frisbígolfáhugamaður úti í bæ.
Ég hef stundum grínast með það
að ég vinn í markaðsmálum sem
grafískur hönnuður og að hlutverk
mitt sem formaður sé í rauninni
bara markaðssetning,“ segir hann.
„En það að kynna frisbígolf er
auðvitað bara frábært lýðheilsu-
verkefni og það er ekki erfitt að
sannfæra bæjarfélög um að setja
upp velli. Ég hef verið duglegur að
banka upp á hjá þeim og mér hefur
verið tekið mjög vel. Fyrir vikið
hafa orðið til 10 til 15 nýir vellir á
hverju ári síðustu 3 til 5 ár.
Öll bæjarfélög þurfa sundlaug,
kirkjukór, gönguleiðir og annað
til að fólki líði vel þar og fólk hefur
séð að þetta er góð viðbót við flór-
una,“ segir Birgir. „Frisbígolfvellir
eru líka einfaldir og ódýrir og það
þarf engar landbreytingar og það
er lítið viðhald. Það kostar ekki
nema 1,5 milljónir að setja upp
völl, sem er mjög ódýrt í samhengi
við mörg önnur verkefni bæjar-
félaga. Svo er stór hópur sem getur
notað þetta, allt árið um kring.
Það hefur líka orðið rosaleg
heilsuvakning og mörg bæjarfélög
eru skráð sem heilsueflandi bæjar-
félög hjá Landlækni. Þá þarf að
setja upp aðstöðu og um leið og þú
setur hana upp kemur fólk og fer
að nota hana,“ segir Birgir. „Covid
hjálpaði líka mikið, það lokaði svo
margt en það var enn hægt að fara
út að leika sér og frisbígolf var eitt
af því sem fólk gat haldið áfram
að stunda, svo þá kynntust margir
þessu.
Það er líka margt ungt fólk sem
er hrifið af tölvuleikjum sem
kann að meta frisbígolf og það að
setja upp velli er eitt af því sem
sveitarfélög hafa séð sem leið til
að fá krakkana frá skjánum,“ segir
Birgir. „Ef það er eitthvað skemmti-
legt að gera, þá drífa þau sig út.
Við höfum sett upp heilsársvelli
á gervigrasi sem eru reistir upp
svo þeir haldast þurrari í bleytu
og standa upp úr klakanum á
veturna, sem gerir upplifunina
ánægjulegri. Við höfum líka verið
að bæta vellina sem eru til staðar
og í sumar opnuðum við einn
flottasta völlinn á landinu í Grafar-
holti,“ segir Birgir. „Hann fór úr 9
brautum í 18 og var lagaður til, svo
þetta er orðið glæsilegt mann-
virki. Við settum líka upp „driving
range“ þar sem fólk getur æft sig
í að kasta á opnu svæði. Það er
stanslaus traffík á þann völl og það
er alltaf einhver að æfa sig þarna.
Það sama gildir um alla vinsælu
vellina, það er spilað á þeim frá
morgni til kvöld á hverjum degi
ársins.“
Öflugur hópur keppenda
„Íslandsmeistarinn okkar, Blær
Örn Ásgeirsson, er ótrúlega fram-
bærilegur á erlendum mælikvarða.
Hann hefur unnið nokkur mót
erlendis og um síðustu helgi var
hann einmitt að spila á European
Open, risastóru móti í Finnlandi.
Hann er bara 19 ára og alltaf að
bæta sig,“ segir Birgir. „Við erum
líka með hóp annarra mjög öflugra
spilara. Sem dæmi er einn 10 ára
sem var að keppa á heimsmeistara-
mótinu í Bandaríkjunum fyrir
þremur vikum og hann vann
lengdarkeppni í sínum flokki.
Hann er gríðarlegt efni.
Ég held að það séu um 100
manns sem hafa farið út að keppa
í sumar, þetta er ótrúlega öflugur
hópur og það er mikill áhugi til
staðar. Blær setur standardinn
dálítið hérna heima, hann vinnur
eiginlega öll mót sem hann tekur
þátt í hérna heima, svo menn læra
af honum og vilja bæta sig,“ segir
Birgir. „Við verðum með Íslands-
mót eftir mánuð og ég held að
hann þurfi að hafa dálítið fyrir því
að vinna núna í ár, það eru margir
sem ætla sér að sigra.“
Efla starfið og vilja stórt mót
„Í framtíðinni ætlum við svo bara
að þétta raðirnar og gera vellina
betri og fleiri. Við erum með þrjá
alvöru keppnisvelli og það er í
kortunum að fjölga þeim,“ segir
Birgir.
„Við erum líka spennt fyrir því
að efla barna- og unglingastarfið.
Við héldum Íslandsmót barna í
fyrsta sinn í sumar og vorum með
hátt í 40 keppendur,“ segir Birgir.
„Við viljum líka efla kvennastarfið.
Það eru tvær konur í fimm manna
stjórn sambandsins og þær eru
staðráðnar í að fjölga konunum
í íþróttinni. Konur eru farnar að
spila meira en keppa lítið.
Á næstu 2 til 3 árum langar
okkur líka að halda stórt alþjóðlegt
frisbígolfmót. Í síðustu viku hélt
Ricky Wysocki námskeið, en hann
er tvöfaldur heimsmeistari, og á
föstudaginn kemur einn öflugasti
og skemmtilegasti keppandinn,
Eagle McMahon, í heimsókn.
Þessir strákar eru að hjálpa okkur
að undirbúa að halda stórt mót,“
segir Birgir. „Það eru líka miklir
peningar í þessari íþrótt og ungu
keppendurna okkar langar að geta
lifað á þessu.“
Að lokum vill Birgir hvetja alla
sem hafa ekki prófað frisbígolf til
að drífa sig af stað. „Það þekkja
orðið allir einhvern sem á diska og
ég hvet alla að prófa og sjá hvort
þetta sé ekki sport fyrir þau,“ segir
hann. ■
Þetta er einfalt,
ódýrt, diskurinn
tekur lítið pláss og það
kostar ekkert inn á
vellina. Þetta er líka
frábært fjölskyldusport.
Birgir Ómarsson
2 kynningarblað A L LT 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGUR