Fréttablaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 2
Þjóðverjar og Frakkar mætast í undan­ úrslitum í dag. Aðdráttarafl hvalsins Hvalir hafa í mörg ár laðað erlenda ferðamenn til Íslands en boðið er upp á hvalaskoðunarferðir víða um landið. Þótt flestir komi til að virða þessar risaskepn- ur fyrir sér í sínu náttúrulega umhverfi hefur Ísland líka dregið að sér áhyggjufulla umhverfissinna sem fylgjast með veiði, slátrun og verkun í hvalstöðinni í Hvalfirði. Ólíklegt er að hin síðarnefndu fari eins sátt héðan og þau fyrrnefndu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Enn talar Alþingi Íslendinga kornrækt niður, segir kokkur á Héraði, þrátt fyrir aukin tækifæri í kornrækt hér á landi. Matvælaframleiðsla í heiminum er að færast norðar á bóginn. bth@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR Blikur eru á lofti í kornrækt í heiminum. Hnattræn hlýnun hefur torveldað framleiðslu á hefðbundnum ræktunarslóðum, auk þess sem stríðið í Úkraínu hefur mikil áhrif. Þeir sem hafa af komu af kornrækt hér á landi segja tímabært að setja kornrækt hérlendis af fullum þunga á dag- skrá. „Ég nota korn, framleitt hér á Vallanesi, á hverjum einasta degi, bæði kvölds og morgna,“ segir Gunnhildur Emilsdóttir, kokkur á Héraði. Umfangsmikil framleiðsla hefur um skeið verið á lífrænu korni á staðnum. Heiðgulir akrar prýða nágrennið með skjólbeltum. „Hér er korn í morgunmatnum, korn í öllu meðlæti, heimaræktað bygg í salatinu og flest öllu,“ sagði Gunnhildur þegar Fréttablaðið tók hana tali fyrir austan. Gunnhildur, sem er landskunn fyrir að hafa opnað Á næstu grös- um, fyrsta grænmetisstaðinn hér- lendis, segir að matvælaframleiðsla sé að færast norðar í heiminum. „Þeir geta ekki ræktað eins mikið og áður á Spáni, í Portúgal og Frakklandi vegna veðurs. Svo er ástandið í Úkraínu vegna stríðsins. Ég er búin að vera í þessum bransa í 40 ár og enn er Alþingi að tala kornrækt niður. Það er einhver mikill misskilningur í gangi.“ Eygló Björk Ólafsdóttir korn- ræktarbóndi segir að f lestir inn- lendir ræktendur framleiði korn í skepnufóður en korn til manneldis sé einkenni Vallaness. „Við höfum sérhæft okkur í lífrænu heilkorni og svo er líka verið að rækta bygg í brennda drykki, komin íslensk byggmjólk á markað og töluvert af bökunarvörum, þannig mætti lengi telja. Ísland er innflutningsdrifið land og við þurfum að hamla gegn því,“ segir Eygló. Tilraunastjóri hjá Landbún- aðarháskólanum hefur sagt að enginn markaður sé fyrir korn hér á landi. Staðreyndin er önnur að sögn kornræktenda. Vallanes, Þorvaldseyri og Sandhóll eru auk margra annarra býla dæmi um far- sæla framleiðslustaði en uppskeran getur sveiflast mjög milli ára. „Kornrækt er sem stendur algjör- lega óvarin fyrir áföllum,“ segir Eygló og bendir á að reglum Bjarg- ráðasjóðs þurfi að breyta auk þess sem flestar aðrar atvinnugreinar geti snúið sér til tryggingafélaga eftir afkomubrest. „Umhverf ið er stóra málið. Þetta umhverfi getur ráðið hvort fólk snýr sér að þessari ræktun og vinnslu eða ekki. Það þarf að milda höggin. Það er rosalega mikið í húfi fyrir alla matvælaframleiðslu.“ ■ Hnattræn hlýnun og stríð bæti forsendur kornræktar Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi, segir að það stefni í meðalupp- skeru þetta árið. Guli liturinn setur svip sinn á umhverfið. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN Hnattræn hlýnun gæti aukið mögu- leika á kornrækt hér á landi, í það minnsta um skeið. GEFÐU GJÖF TIL HEILLA HEILLAGJAFIR.IS erlamaria@frettabladid.is KJARAMÁL Fjársýsla ríkisins hefur sætt gagnrýni fyrir að greiða ekki út laun fyrr en eftir verslunarmanna- helgi. „Ef þetta eru þakkirnar fyrir það sem fólk er búið að leggja á sig, og sérstaklega starfsfólk ríkisins bæði í heilbrigðiskerfinu og öðrum kerfum til að halda þeim gangandi síðustu tvö og hálft árið, þá er eitt- hvað mikið að,“ segir Þórarinn Eyfjörð, varaformaður BSRB. Samkvæmt starfsmannalögum á að greiða út laun fyrsta virka dag hvers mánaðar en alla jafna eru laun- in greidd út fyrir mánaðamót, beri þau upp á frídegi. Þegar það brást í fyrsta skipti í maí síðastliðnum töldu margir að um mistök væri að ræða. „Við skulum ekki gleyma því að það er mjög stór hópur ríkisstarfs- manna sem hefur lagt bæði fjöl- skyldulíf sitt til hliðar, áhugamál og umgengni við sína nánustu vegna faraldursins, og hefur verið í ákaf- lega erfiðri stöðu við að reyna af öllum mætti að halda samfélaginu gangandi. Að þetta skuli svo vera kveðjurnar sem ríkið sendir sínum starfsmönnum er með ólíkindum,“ segir Þórarinn. ■ Kaldar kveðjur til ríkisstarfsmanna Þórarinn Eyfjörð, varaformaður BSRB England hafði betur gegn Svíþjóð. adalheidur@frettabladid.is FÓTBOLTI Englendingar tryggðu sér sæti í úrslitum á Evrópumeistara- móti kvenna í knattspyrnu eftir að þær völtuðu yfir sænska landsliðið á Bramall Lane í Sheffield á Englandi í gærkvöld með fjórum mörkum gegn engu. Ensku stelpurnar mæta annað hvort Frökkum eða Þjóðverjum í úrslitaleiknum sem fram fer um næstu helgi en liðin tvö mætast í síðari undanúrslitaleik mótsins í dag. Liðin þykja mjög jöfn að styrk- leika og því má búast við hörkuleik. Íslenska kvennalandsliðið komst ekki upp úr sínum riðli í mótinu þrátt fyrir að hafa ekki tapað leik. ■ Ensku stelpurnar spila til úrslita 2 Fréttir 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.