Fréttablaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 22
LungA hefur gengið í
gegnum ýmsar
umbreytingar á síðustu
árum.
TÓNLIST
Orgelsumar í
Hallgrímskirkju
Verk eftir Chernysovu, Franck,
Rakhmanínoff og Mozart.
Flytjendur: Alexandra Chernysova
og Lenka Mátéóva
Hallgrímskirkja
laugardaginn 23. júlí
Jónas Sen
Nítjándu aldar tónskáldið Cesar
Franck fékk það einu sinni óþvegið
hjá gagnrýnanda. Í umsögninni
stóð að myrkrið í tilteknu verki
hefði verið svo algert að það hefði
verið hægt að teikna á það hvítar
línur með kolamola.
Víst er að tónlist Francks er
mjög alvarleg. Í henni er oft það
sem kalla mætti kaþólska trúar
vímu, líka í veraldlegum verkum.
Hið fræga Panis Angelicus er engin
undantekning, en þar er textinn
eftir kirkjufræðara á þrettándu öld,
heilagan Tómas Akvínas.
Andaktug tónlist
Verkið var f lutt af Alexöndru
Chernyshovu sópran og Lenku
Mátéóvu orgelleikara á hádegistón
leikum í Hallgrímskirkju á laugar
daginn. Heilagur Tómas segist vona
í textanum að brauð englanna, sem
er Kristur, verði líka að fæðu mann
kyns. Í samræmi við þessi orð er
mikil andakt í tónlistinni. Vand
aður f lutningurinn skilaði stemn
ingunni prýðilega til áheyrenda.
Söngurinn var bjartur og ein
beittur, víbratóið smekklegt og
túlkunin full af tilfinningu. Orgel
leikurinn var sömuleiðis skýr og
nákvæmur. Mismunandi raddir
hljóðfærisins voru í ágætu innra
samræmi og heildarhljómur söng
raddar og orgels var sannfærandi.
Cantabile (sem þýðir syngjandi),
úr Þremur stykkjum (Trois piéces)
eftir Franck var einnig á dag
skránni. Þar lék Mátéóva ein. Spila
mennskan var einstaklega falleg, í
senn fáguð og litrík, túlkunin djúp
og virðuleg. Ólíkar raddir orgelsins
mynduðu áhrifaríkar andstæður
sem aftur sköpuðu tilkomumikla
heildarmynd, syngjandi fagra.
Of drungalegt
Nokkuð síðri voru Vókalísa Rakh
manínoffs og Vögguvísa eftir Alex
öndru. Orgelið hefur verið kallað
drottning hljóðfæranna, enda í
rauninni heil sinfóníuhljómsveit.
Það breytir því ekki að sum tónlist
passar því engan veginn. Vöggu
vísan, sem heyra má á YouTube, er
þar leikin á tréblásturshljóðfæri.
Afmarkaðir, kroppaðir hörputónar
vefjast svo um þokukenndan blást
urinn og mynda þannig skemmti
leg blæbrigði. Engu slíku var til að
dreifa hér. Hljómur orgelsins var of
þungur og dökkur til að tónlistin
kæmist almennilega á f lug.
Sömu sögu er að segja um
Vókalísuna eftir Rakhmanínoff.
Undirleikurinn er upphaf lega
fyrir píanó, og tærir hljómar þess
mynda fallegan ramma utan um
tilfinningaþrunginn sönginn. Hér
voru þyngslin í orgelinu svo mikil
að laglínan varð fremur draugaleg
– sem passaði henni illa.
Rödd geldingsins
Hið glaðlega Hallelúja úr Exsult
ate Jubilate eftir Mozart var af allt
öðrum toga. Mozart samdi tón
smíðina táningur að aldri á meðan
verið var að setja upp óperuna
hans, Lucio Silla. Í einu aðalhlut
verkinu þar var geldingur, en þeir
voru algengir í tónlistarlífinu í den.
Það þótti sko ekkert tilkomumál að
skera undan drengjum sem voru
efnilegir söngvarar, áður en þeir
urðu kynþroska með tilheyrandi
dýpkun raddarinnar. Geldingur
inn í óperunni söng stórkostlega að
mati Mozarts, og því samdi hann
téða tónlist fyrir hann.
Alexandra stóð sig glæsilega hér
og sömu sögu er að segja um organ
istann. Söngurinn var dillandi, og
hraðar trillur orgelsins glitruðu.
Óneitanlega var það flottur endir á
tónleikunum – sem var síður en svo
geldingslegur. ■
NIÐURSTAÐA: Misáhugaverð dag-
skrá og misáhugaverðar útsetn-
ingar, en flutningurinn var góður.
Drottning hljóðfæranna í misflottum fötum
Þrátt fyrir misáhugaverða dagskrá var flutningur Alexöndru og Lenku góður.
MYND/AÐSEND
LISTAHÁTÍÐ
LungA
Fram komu: Gugusar, Cyber, Birnir,
Skrattar, russian.girls, Bríet, Svala
o.fl.
Seyðisfjörður
10. til 17. júlí
Þorvaldur S. Helgason
LungAhátíðin hefur verið haldin
á Seyðisfirði síðan 2000, hátíðin
byrjaði sem grasrótarframtak
ungra Seyðfirðinga en hefur vaxið
yfir í alþjóðlega listahátíð er saman
stendur af listasmiðjum, gjörning
um, ungmennaskiptum, samfélags
verkefnum og svo auðvitað sjálfum
hátíðartónleikunum sem kóróna
LungA á föstudegi og laugardegi
hátíðarvikunnar. Undirritaður
hefur mætt á LungA nánast árlega
frá 2014 og var nú viðstaddur hátíð
ina í fyrsta sinn sem blaðamaður.
Ógjörningur væri að fjalla um alla
dagskrá LungA í einum pistli auk
þess sem yðar einlægur gat því
miður ekki verið á Seyðisfirði alla
vikuna sökum vinnu.
LungA hefur gengið í gegnum
ýmsar umbreytingar á síðustu
árum. Covid setti auðvitað sitt
mark á hátíðina eins og á allar
aðrar fjöldasamkomur, LungA var
af lýst 2020 en hún var þó ein af
fáum hátíðum sem tókst að halda
sumarið 2021. Það sem varpaði þó
líklega enn stærri skugga á hátíðina
eru skriðurnar sem féllu á Seyðis
fjörð í desember 2020. Áhrifa þeirra
gætir enn í bænum og fyrir LungA
höfðu skriðurnar meðal annars
þau áhrif að hátíðarsvæðið var flutt
frá iðnaðarhöfninni Norðursíld
vegna skriðuhættu. Norðursíld var
tilkomumikið hátíðarsvæði með
rúmt pláss fyrir svið og tónleika
gesti og ægifagurt útsýni yfir fjörð
inn. LungA er augljóslega enn svo
lítið að finna sig eftir þann missi en
í fyrra var brugðið á það ráð að búa
til stórtónleikastemningu í íþrótta
húsi bæjarins. Í ár leituðu hátíðar
haldarar aftur til upprunans og
héldu tónleikana utandyra í brekk
unni fyrir framan barnaskólann og
girtu af svæðið fyrir framan sam
komuhúsið Herðubreið, miðstöð
LungA til margra ára. Þetta virkaði
ekki alveg sem skyldi og gerði það
að verkum að hátíðarsvæðið, sem
oftast hefur einkennst af miklu
sjónarspili með sérsmíðuðu sviði
og tilkomumiklum skreytingum,
var nú aðeins skugginn af sjálfu
sér. Í staðinn mætti hátíðargestum
ósköp fábrotið hvítt tjald sem hefði
sómt sér á hvaða bæjarhátíð úti
á landi sem er og skreytingarnar
samanstóðu af marglitum tuskum
er strengdar höfðu verið á línu yfir
hátíðarsvæðið. Aðsókn á hátíðina
virtist að sama skapi örlítið minni
heldur en í fyrra þótt erfitt sé að
fullyrða um slíkt.
Tónleikarnir sjálfir voru þó vel
heppnaðir og komu margir góðir
listamenn fram með áherslu á
ungu kynslóðina í poppi og rokki.
Á föstudagskvöldið reið ungstirnið
Gugusar á vaðið og þrátt fyrir að
tónleikagestir hafi enn verið að
tínast inn náði hún að keyra stemn
inguna í gang með sinni grípandi
blöndu af raftónlist og svefnher
bergispoppi. Ef Gugusar heldur rétt
á spilunum er ljóst að hún hefur
alla burði til að verða ein skærasta
stjarna íslenskrar popptónlistar.
Kvöldið endaði svo með sprengju
frá Birni, einum vinsælasta rappara
landsins um þessar mundir. Eins og
sannri poppstjörnu sæmir var Birn
ir ekkert að drífa sig á svið en undir
ritaður sá hann hanga í mannfjöld
anum ásamt vinum sínum einungis
nokkrum mínútum áður en hann
átti að byrja. Áhorfendur þustu að
eins og mýflugur er hann steig loks
á svið og tók hann vel heppnað sett
með ýmsum góðum gestum á borð
við Brynjar Barkarson úr ClubDub
sem tók lagið ásamt Birni og lista
manninn Benedikt Andrason sem
rakaði hár rapparans í miðju lagi við
góðar undirtektir. Kvöldið kláraðist
svo með DJsettum og raftónleikum
á tveimur mismunandi svæðum inn
andyra, annars vegar í samkomusal
Herðubreiðar, þar sem reynt var að
skapa eins konar reifstemningu,
og hins vegar í efri sal íþróttahúss
ins, þar sem reynt var að skapa eins
konar Berlínarklúbba stemningu.
Seinna kvöldið á LungA var ekki
síðra. Rokkhundarnir Skrattar hófu
leika og þótt undirritaður geti ekki
fyrir sitt litla líf munað eftir einu ein
asta lagi þá var spilamennskan engu
að síður þétt. Hápunktur kvöldsins
var án efa flutningur Bríetar, sem er
á hraðri leið með að verða ein flott
asta poppsöngkona sem Ísland
hefur alið af sér. Hún vafði áhorf
endum um fingur sér áreynslulaust
og sýndi að það þarf hvorki sjónar
spil né sýndarmennsku til að ná
upp góðri stemningu, aðeins inn
lifun og einlægni. Reynsluboltinn
Svala lauk svo kvöldinu og þar með
hátíðartónleikunum og myndaði
gott mótvægi við hina ungu Bríeti.
Lagalisti hennar var þó nokkuð
sundurlaus og samanstóð bæði af
hennar eigin lögum og klassískum
diskóslögurum en Svala söng af
innlifun með rödd sem er ein sú
kraftmesta í bransanum. Að tón
leikunum loknum hélt svo fjörið
áfram á danssvæðum hátíðarinnar
innanhúss. ■
NIÐURSTAÐA: LungA heldur velli
þrátt fyrir skriður og samkomu-
takmarkanir en ljóst er að hátíðin
þarf að leggjast í einhverja sjálfs-
skoðun ef hún ætlar að ná sömu
hæðum og áður.
Lágstemmt LungA
Flutningur Bríetar var einlægur.
Það var stemning í árlega karaókí-partíinu. Hátíðin er enn að finna sig eftir skriður og Covid.
MYNDIR/MELKORKA EMBLA OG LÓA FENZY
Svala var kraftmikil að vanda.
18 Menning 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGUR