Fréttablaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 26
Tónleika- þyrst fólk þarf sem sagt ekkert að óttast rigning- una. Helgi Björns Helgi Björns segir streymið komið til að vera. Það kemur samt ekki í veg fyrir að veggir Ráðhússins nötri á laugar- dagskvöldið. Með Helga í hrynsveit verða góðkunn- ingjar sjónvarpsáhorfenda sem glatt hafa frónbúann á tímum heimsfaraldurs og sóttvarnatakmarkana, allar götur frá 21. mars 2020. ser@frettabladid.is „Já, streymi er komið til að vera, lagsmaður,“ segir Helgi og meinar að faraldurinn hafi fært okkur þá blessun. „Það kom eitthvað gott út úr þessu,“ bætir hann við. En sumsé, landinn getur keypt sér tónleika með kappanum í beinu streymi frá Tjörninni á laugardags- kvöld – og Helgi á von á góðum við- tökum. „Já, fólk fílar þetta í meira lagi,“ segir söngvarinn og telur lík- legt að margir láti sig hverfa inn fyrir skör á laugardagskvöld þar sem kveikt verður á viðtækinu og allt sett í botn, en hann verði náttúrlega í harðri samkeppni við útitónleikana víða um land. „Tónleikaþyrst fólk þarf sumsé ekkert að óttast rigninguna, þótt hún sé góð, það skellir sér bara inn í tjaldið, húsvagninn eða sumar- bústaðinn og opnar fyrir okkur strákana frá Tjörninni, þökk sé streyminu, sem er bara virkilega skemmtilegur valkostur þegar kemur að því að upplifa og njóta tónleika,“ segir Helgi sem verður að sjálfsögðu með óvænta gesti og er ekki grunlaust um að þar verði að minnsta kosti einhverjar konur á ferðinni. „Þetta verður svona á pari við góðan Eurovision-fíling,“ segir Helgi og kveðst alveg upplagður fyrir giggið á laugardagskvöld, enda nýkominn frá sínum heima- högum á Ísafirði þar sem gamlir æskufélagar hittust í gönguferð um Skutulsfjörð, en þeir fari svo gott sem árlega í göngur um töfra- landið á kjálkanum vestra. „Það er bara æðislegt að fara vestur og njóta Seljalandsdalsins í tuttugu stiga hita og sól í góðra vina hópi, bara æðislegt,“ endurtekur Helgi Björnsson söngvari. n Helgi Björns í streymi frá Tjörninni, nema hvað … Helgi Björnsson, tónlistarmaður og leikari, heldur tónleika við Tjörnina um verslunar- mannahelgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Davíð Lúther Sigurðarson Sahara „Ég man þegar maður gat skoðað myndir af vinum sínum á Instagram,“ skrifaði netverji nokkur á Twitter í gær. Á Instagram gera stuttar klippur líkt og vinsælar eru á Tik- Tok sig stöðugt meira gildandi. „Þessi stuttu myndbönd eru al- gjörlega að slá í gegn,“ segir Davíð Lúther, framkvæmdastjóri Sahara. TikTok-myndböndin hafa slegið í gegn og er alls konar mismikla vit- leysu þar að finna. Davíð bendir á að fleiri miðlar séu komnir með fídusinn, You- Tube, Facebook, LinkedIn, sem hafi hætt við, og svo er stutt í að Spotify verði líka með slík stutt myndbönd. „Þeir byrjuðu að prófa þetta 2020 en hafa aldrei opnað á þetta af alvöru fyrir almenning. Tón- listarfólk hefur fengið að prófa að deila svona með fylgjendum sínum en sögusagnirnar eru þær að þetta verði opið fyrir alla notendur, sem geta þá deilt því sem þeir að gera þegar þeir eru að hlusta.“ Hann segir TikTok hafa slegið í gegn. „Þá bara fylgdu Mark Zucker- berg og félagar, alveg eins og þeir gerðu með Story-svæðið svokall- aða sem sló fyrst í gegn á Snap- chat á sínum tíma.“ Davíð segist sjálfur hafa prófað fídusinn, á mörgum miðlum. „Ég er bara í þannig starfi að ég prófa alla miðla. Ég er á TikTok, Twitter og prófa þetta allt saman, þó ég endist kannski ekkert alltaf lengi,“ segir Davíð hlæjandi. „En maður þarf að vita hvernig þetta virkar, svo maður geti veitt viðskipta- vinum ráð um hvað virkar og svo framvegis.“ n Jafnvel Spotify vill vera TikTok  n Sérfræðingurinn Þessi stuttu myndbönd eru algjörlega að slá í gegn. KIA Ceed urban. Árgerð 2019, bensín, sjálfskiptur 7 gírar. Verð frá 2.990.000. Rnr.215442. KIA Ceed x. Árgerð 2019,bensín, sjálfskiptur 7 gírar. Verð frá 2.790.000. Rnr.215473. TOYOTA Rav4 gx. Árgerð 2019, bensín, sjálfskiptur. Verð frá 3.990.000. Rnr.371512. SUBARU Forester premium. Árgerð 2019, bensín, sjálfskiptur. Verð frá 3.790.000. Rnr.215535. KIA Sportage urban. Árgerð 2019, dísel, sjálfskiptur 7 gírar. Verð frá 3.490.000. Rnr.371416. Allir bílar í ábyrgð Ævintýraleg sala Yfir 35 ára reynsla VERSLUNARMANNA- HELGARSPRENGJA 22 Lífið 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.