Fréttablaðið - 04.08.2022, Page 6
Þetta hraun er ekki að
fara neitt langt en við
vitum það betur á
morgun.
Þorvaldur Þórðarson,
eldfjallafræðingur
24. febrúar
2021
2022
Skjálfti af stærðinni 5,7 skók
Reykjanesskaga og markaði upp-
haf jarðskjálftahrinu á svæðinu.
Stiklað á sögu gosanna
Heildartala mældra skjálfta
frá upphafi hrinunnar náði
fjórtán þúsundum.
Veðurstofan staðfesti að gosórói
hefði mælst á Reykjanesi.
Skjálftavirknin færðist í aukana
og fulltrúar almannavarna-
deildar Ríkislögreglustjóra,
Veðurstofunnar, Lögreglunnar
á Suðurnesjum og Grindavíkur-
bæjar hittust á næturfundi til
að ræða stöðuna.
Eldgos hófst í Geldingadölum við
Fagradalsfjall.
Eldgosið í Geldingadölum varð
langlífasta gos á 21. öld.
Síðasta hraunið flæddi úr gosinu.
Veðurstofan lýsti gosinu lokið þar
sem þrír mánuðir voru liðnir frá
síðasta hraunflæði.
Jarðskjálftahrina hófst á
Reykjanesi á ný og óvissustigi
almannavarna var lýst yfir.
Eldgos hófst í Merardölum.
Kvikuflæði úr nýja gosinu í Meradölum er talið margfalt meira en í gosinu sem stóð í Geldingadölum í sex mánuði í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2.
m
ar
s
3. mars
7.
m
ar
s
19. mars
16. september
18. september
18. desember
30
. j
úl
í
3. ágúst
Hafið var að reisa varnargarð
í Nátthaga til að hægja á flæði
hraunsins.
25. júní
7.
jú
lí Glóð sást í gígnum eftir um
tveggja sólarhringa hlé.
17. ágúst
Nýr gígur myndaðist tímabundið
við hlið hins gamla.
Eldfjallafræðingar segja enga
hættu steðja að mannvirkjum
á næstunni að minnsta kosti
vegna eldgoss í Meradölum.
ragnarjon@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
ELDGOS Margmenni dreif sig í gær í
átt að gosstöðvunum í Meradal til
að fylgjast með stórkostlegu sjónar-
spili sem þar er hafið að nýju.
Tæpir tíu mánuðir eru liðnir frá
því að eldgosinu í Geldingadölum
lauk eftir um hálfs árs gostímabil.
Eftir harða jarðskjálftahrinu dag-
ana á undan braust kvika loks upp
á yfirborðið að nýju, að þessu sinni
í gilskorningi í Meradölum, nokkru
norðar en gosstaðurinn í fyrra var.
Þorvaldur Þórðarson eldfjalla-
fræðingur var í Meradölum þegar
Fréttablaðið ræddi við hann undir
kvöld í gær.
„Ég er bara hérna við gíginn,“
svaraði Þorvaldur spurður hvort
hann væri mættur á svæðið. Sagði
hann gilskorninginn þar sem nú gýs
hafa verið dýpri áður en gaus í fyrra.
„Þessi gilskorningur mun fyllast
tiltölulega f ljótt,“ sagði Þorvaldur
og tók þannig í sama streng og eld-
fjallafræðingurinn Ármann Hösk-
uldsson sem Fréttablaðið ræddi
einnig við í gær. „Eftir það er spurn-
ing hvort hraunið renni í suður í
átt að Meradölum og þá hvort það
nær að komast upp úr þar og áfram
niður úr,“ sagði Þorvaldur.
„Staðsetningin er þannig að gosið
þyrfti að standa yfir í langan tíma
svo það gæti farið að teygja sig í ein-
hverja innviði sem skipta máli. Sem
betur fer,“ bætti Þorvaldur við „Ef
hraunið kemst út héðan, þá þarf það
að byggja sig upp töluvert til þess að
komast yfir hæðina. Þetta hraun er
ekki að fara neitt langt en við vitum
það betur á morgun [í dag].“
Talsvert af fólki var á gosstöðvun-
um í gær og töldu björgunarsveitir
vera yfir þúsund manns þar seinni
partinn. „Það er töluvert af fólki
hérna og eykst bara jafnt og þétt,“
sagði Þorvaldur sem kvað hópinn
vera dreifðan um svæðið.
Á fundi hjá Almannavörnum í
gær var bent á að gönguleiðin að
gosstöðvunum væri talsvert lengri
en að svæðinu í fyrra og að auki
grýtt. Fólk þyrfti að vera vant og vel
búið í slíka göngu. Auk þess þyrfti
að vera á varðbergi vegna gass frá
eldstöðinni.
Ítrekaði Þorvaldur að betur
muni sjást í dag hver þróunin verði.
„Eins og ég segi; ef það kemst upp
á hraunbeðurnar frá 2021 sem eru
Hugsa sér gott til glóðarinnar
en fólk varað við grýttri leið
Gossprungan var tvö- til þrjú hundruð metrar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Göngufólk lagði
strax leið sína
að nýja gosinu
í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
í Meradölum þá fer það í þá áttina.
Þá tekur það dágóðan tíma að fylla
Meradalina. En varðandi að þetta
byggi sig upp og stefni í norður, það
er líka töluvert í það,“ sagði Þor-
valdur sem kvað enga stórhættu á
ferðum.
„Það er dalverpi þarna í norðurátt
sem það þarf að fylla fyrst. En gosið
yrði að standa í dágóðan tíma og
tekur eflaust vikur, ef ekki mánuði,
áður en við förum að sjá einhverja
mögulega hættu gagnvart inn-
viðum. En það er líka miðað við að
gosið haldi áfram eins og það er og
það verði engar breytingar,“ undir-
strikaði eldfjallafræðingurinn.
Í gær gaus á sprungu sem var um
þrjú hundruð metrar. „Væntanlega
dregur hún sig eitthvað saman eins
og síðast og myndar kannski tvo
gíga,“ sagði Ármann Höskuldsson. n
ELDGOS Í MERADÖLUM FRÉTTABLAÐIÐ 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR